Morgunblaðið - 28.05.2021, Blaðsíða 33
33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 2021
Loftfimleikar Margir hafa lagt leið sína í Skrímslið við Perluna og sumir taka stökkið.
Kristinn Magnússon
Í dag, laugardaginn 29. maí,
verður haldið prófkjör Sjálf-
stæðisflokksins í Norðaust-
urkjördæmi vegna alþingis-
kosninga 25. september nk.
Ég gef kost á mér í 1. sæti á
lista flokksins og bið um
stuðning í leiðtogasætið.
Ég hóf störf á Alþingi fyrir
kjördæmið árið 2016 og hef
staðið fyrir gildi og frelsissýn
sjálfstæðisstefnunnar. Þar hef
ég talað fyrir athafnafrelsi og
einkarekstri, gegn oftrú ríkis-
rekstrar og sífellt öflugra mið-
stjórnarvaldi, eftirliti og aukn-
um sköttum. Trú mín er að
athafnafrelsi og velferð haldist
í hönd og hver megi uppskera
í samræmi við eigið framlag.
Hef látið til mín taka á vett-
vangi atvinnu- og samgöngu-
bóta, en ekki síst í málum er
varða byggðamál, byggðafestu, hug-
myndaauðgi og framkvæmdahug. Lengst-
um hef ég setið í fjárlaganefnd og atvinnu-
veganefnd þingsins og er nú varaformaður
utanríkismálanefndar og formaður Íslands-
deildar NATO-þingsins. Verið í virku sam-
bandi við kjósendur Norðausturkjördæmis
og víðar. Störf mín og áherslur eru að-
gengileg á samfélagsmiðlum.
Fólk kýs en fyrirtækin ekki
Í prófkjörinu eigum við kost á vali milli
öflugra frambjóðenda víða úr kjördæminu.
Ég er stoltur að tilheyra þeim góða hópi.
Hann vil ég leiða.
Vegna umfjöllunar fjölmiðla síðustu daga
er ástæða til að minna á að sjálfstæðisfólk
kýs í prófkjörinu en fyrirtæki ekki eða
hagsmunasamtök. Þar leita ég beint og
milliliðalaust til sjálfstæðis-
fólks eftir umboði til að leiða
listann. Að baki framboði mínu
standa hvorki sérhagsmunir
né fyrirtæki. Það ætti að vera
öllum ljóst þar sem ég er ekki
af valdafjölskyldu eða með
sterka hagsmuni að baki. Ég
er engum háður og reiðubúinn
til að starfa af heilindum og
krafti fyrir fólkið í kjördæm-
inu. Sonur einstæðrar móður
sem ól upp fjögur börn sín af
elju og dugnaði. Okkur var
kennt að fara vel með þær
bjargir sem í boði voru, sýna
sanngirni, virðingu gagnvart
sjálfum okkur og öðrum, og að
hafa metnað og kjark til að
sækja fram. Það var hollt
veganesti út í lífið.
17 vikur
Á fundum og ferðum um
kjördæmið síðustu mánuði hef
ég fundið að störf mín og hug-
myndir eiga sterkan hljómgrunn í
Norðausturkjördæmi. Þar hef ég minnt á
prófkjörið sem upptakt farsællar kosninga-
baráttu, enda einungis 17 vikur til alþing-
iskosninga. Með öflugu prófkjöri stillum við
upp lista sem laðar að sér ólíkt fólk með
fjölbreyttan bakgrunn til samstarfs úr öllu
kjördæminu. Slíkur framboðslisti og öflugt
umboð úr prófkjöri gefa skýr fyrirheit um
forystu í kjördæminu.
Fjölmenn og víðtæk þátttaka yrði sterk-
ur meðbyr fyrir framboðslista Sjálfstæðis-
flokksins í kjördæminu í haust. Þann lista
vil ég leiða og hvet alla til þátttöku.
Eftir Njál Trausta
Friðbertsson
» Prófkjörið er
upptaktur
farsællar kosn-
ingabaráttu.
Hana vil ég
leiða.
Njáll Trausti
Friðbertsson
Höfundur er alþingismaður Norðaustur-
kjördæmis.
ntf@althingi.is
Tökum þátt í prófkjörinu
í Norðausturkjördæmi
Það var annar brag-
ur yfir Antony Blinken,
utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, daginn
fyrir utanríkis-
ráðherrafund norður-
skautsráðsins 20. maí
2021 í Reykjavík en
forvera hans Mike
Pompeo fyrir ráðs-
fundinn í Rovaniemi í
Finnlandi í maí 2019.
Pompeo flutti eldheita bar-
átturæðu gegn hernaðarumsvifum
Rússa á norðurslóðum og sagði Kín-
verja ekki eiga neitt erindi þangað.
Var þetta magnaðasta ræða af hálfu
bandarísks ráðamanns í tengslum
við fundi ráðsins frá því að það var
stofnað árið 1996. Ákafinn var svo
mikill í Rovaniemi að ekki náðist
samkomulag um lokayfirlýsingu ráð-
herrafundarins.
Nú notaði Antony Blinken daginn
fyrir fundinn til að eiga í fyrsta sinn
sem utanríkisráðherra tvíhliða fund
með Sergeij Lavrov, utanríkis-
ráðherra Rússa. Var fundurinn frið-
samur og nýttist til að ákveða fyrsta
fund forsetanna Joes Bidens og Vla-
dimirs Pútins. Hann verður í Genf
um miðjan júní í tengslum við ferð
Bidens á ríkisoddvitafund NATO-
ríkjanna í Brussel.
Utanríkisráðherrar ríkjanna átta í
norðurskautsráðinu rituðu í Hörpu
undir Reykjavíkuryfirlýsinguna. Á
ellefu blaðsíðum árétta þeir skuld-
bindingu ráðsins um „að viðhalda
friði, stöðugleika og uppbyggilegri
samvinnu á norðurslóðum“ eins og
segir í tilkynningu utanríkisráðu-
neytisins. Lögð er áhersla „á ein-
staka stöðu norðurskautsríkjanna til
að stuðla að ábyrgum stjórnunar-
háttum á svæðinu“ og „mikilvægi
þess að takast þegar í stað á við
loftslagsbreytingar á
norðurslóðum“. And-
staða stjórnar Donalds
Trumps Bandaríkja-
forseta við Parísar-
samkomulagið gegn
loftslagsbreytingum
réð miklu um enga yfir-
lýsingu frá Rovaniemi
2019.
Í tilefni af 25 ára af-
mæli norðurskauts-
ráðsins samþykktu ráð-
herrarnir einnig fyrstu
stefnuyfirlýsingu þess.
Verður hún höfð að leiðarljósi á kom-
andi áratug.
Rússar tóku við formennsku í
ráðinu af Íslendingum. Forysta Guð-
laugs Þórs Þórðarsonar utanrík-
isráðherra og íslensku utanríkis-
þjónustunnar hlaut almennt lof,
opinberlega og í einkasamtölum.
Á hitafundinum í Rovaniemi og
eftir hann reyndi verulega á innviði
norðurskautsráðsins. Undir ís-
lenskri forystu var skútunni siglt á
kyrrari sjó og lögð áhersla á að halda
starfinu innan marka samþykkta
ráðsins. Þar skiptir verulegu máli að
norrænu ríkin, fimm af átta aðild-
arríkjum, fylgja markvisst stefnu
um að fjölþjóðlegt samstarf sé í
krafti laga og reglu.
Hernaðarmál falla utan starfs-
ramma ráðsins. Rússar liggja hins
vegar ekki á óánægju sinni yfir að
norrænu ríkin hafa undanfarin tvö ár
enn eflt samstöðu sína í öryggis- og
varnarmálum með NATO og Banda-
ríkjunum. Beina rússnesk stjórnvöld
spjótum sínum einkum að Norð-
mönnum sem stofna nú til endurbóta
á fjórum flugvöllum, Rygge, Sola,
Evenes og Ramsund, í samvinnu við
Bandaríkjastjórn til að auðvelda
bandarískum hervélum að athafna
sig frá Noregi. Að túlka þessa þróun
á þann veg að hún sé reist á þrýst-
ingi frá Bandaríkjamönnum er
rangt. Að baki henni býr sameigin-
legt hættumat eftir árás Rússa á
Úkraínu árið 2014. Hún varð til
dæmis til að gjörbreyta stefnu Svía í
öryggis- og varnarmálum.
Vikurnar fyrir Reykjavíkurfund-
inn hömpuðu Rússar eigin hervæð-
ingu á norðurslóðum. Þeir efndu til
dæmis í fyrsta sinn til kynnisferðar
fyrir erlenda blaðamenn til Alexand-
er-eyju í Franz Josef Land-
klasanum lengst í norðri til að sýna
þeim nýja herstöð sína þar og
hreykja sér af því að hafa nú aðgang
að 19 herflugvöllum á og við norður-
strönd Rússlands. Á þeim slóðum
ætla þeir að vinna olíu og gas fyrir
utan að stórauka siglingar um norð-
urleiðina milli Atlantshafs og Kyrra-
hafs.
Sergei Lavrov sagði við blaða-
menn skömmu fyrir Reykjavíkur-
fundinn: „Öllum varð það fullkom-
lega ljóst fyrir löngu að þetta er
okkar svæði, okkar land. Við berum
ábyrgð á því að tryggja öryggi norð-
urstrandar okkar. Leyfið mér að
árétta enn einu sinni – þetta er okkar
land og okkar haf.“
Þegar Antony Blinken hitti Lavr-
ov í fyrsta sinn hefði hann getað lagt
höfuðáherslu á að mótmæla þessum
ummælum og sagt þau ögrandi.
Blinken tók hins vegar annan pól í
hæðina og sagði Lavrov að ráðuneyti
sitt hefði sama dag og þeir hittust til-
kynnt Bandaríkjaþingi að endur-
skoðun á refsiaðgerðum gegn lagn-
ingu á Nord Stream 2, gasleiðslu
Rússa til Þýskalands, væri lokið.
Felldar yrðu niður aðgerðir gegn
fyrirtækinu Nord Stream 2 AG og
forstjóra þess Matthias Warnig,
fyrrverandi austurþýskum njósna-
foringja, vini Pútins.
Lavrov tók þessu fagnandi og
einnig Heiko Maas, utanríkis-
ráðherra Þýskalands, sem sagði
ákvörðunina til marks um að Þjóð-
verjar væru mikilvægir samstarfs-
aðilar Bandaríkjamanna og þeim
mætti treysta í framtíðinni.
Nord Stream 2 gasleiðslan er á
botni Eystrasalts og tengir Vyborg í
Rússlandi og Greifswald í Þýska-
landi. Lagningu hennar er næstum
lokið (95%) en harðar refsiaðgerðir
Trump-stjórnarinnar, sem tóku gildi
19. janúar 2021, daginn fyrir forseta-
skiptin, settu lokaframkvæmdum við
leiðsluna skorður. Enn eru í gildi
refsiaðgerðir gegn fjórum rúss-
neskum skipum.
Leiðslan er deilumál til margra
ára. Utan Rússlands og stjórn-
arflokkanna í Þýskalandi á gasleiðsl-
an fáa málsvara. Joe Biden, Antony
Blinken, báðir flokkar á Bandaríkja-
þingi, ESB-þingið og framkvæmda-
stjórn ESB hafa lýst andstöðu og
efasemdum um réttmæti þess að
leiðslan sé lögð.
Nú fyrr í maí sagði Blinken við
BBC:
„Við teljum gasleiðsluna slæma
hugmynd. Hún þjónar hagsmunum
Rússa og grefur undan hagsmunum
Evrópumanna og okkar eigin. Hún
gengur í raun þvert á grundvallar-
sjónarmiðin sem ESB hefur kynnt
að því er varðar orkuöryggi og að
forðast beri að verða of háður ein-
hverri annarri þjóð, í þessu tilviki á
þetta við um Rússa.“
Bandaríski diplómatinn og blaða-
maðurinn Daniel Benjamin, forstjóri
American Academy í Berlín, sagði
nýlega á vefsíðunni Politico: „Það
kann að vera fyllilega réttmætt að
refsa Rússum en það skiptir ekki
máli hve miklu tjóni ný bylgja refs-
inga kann að valda Rússum, það tjón
verður ávallt hlutfallslega minna en
skaðinn á tvíhliða samskiptum
Bandaríkjamanna og Þjóðverja á
raunverulega viðkvæmu augna-
bliki.“
Donald Trump deildi hart á An-
gelu Merkel og stjórn hennar, ekki
aðeins vegna samningsins um Nord
Stream 2 heldur einnig vegna fram-
lags Þjóðverja til NATO, þeir ættu
að leggja meira fé af mörkum til
varnarmála. Joe Biden velur annan
kost sem hann telur að bæti and-
rúmsloft innan NATO, sporni gegn
viðleitni Rússa til að hlutast til um
innri málefni bandalagsins og styrki
samstöðu gegn þrýstingi Kínverja á
Evrópuríki.
Daniel Benjamin lýkur grein sinni
á þessum orðum:
„Hver er tilgangurinn með því að
styðja átak Bandaríkjamanna til að
hafa hemil á slæmri hegðun Kínverja
ef ekki er unnt að treysta Banda-
ríkjamönnum til að líta á Atlants-
hafsbandalagið sem tvístefnu-
vettvang?“
Norðurslóðir setja sífellt meiri
svip á þessa stóru mynd vegna þess
að Pútin og stjórn hans líta á hags-
muni sína í norðri sem lykilinn að
áhrifum á alþjóðavettvangi. Rúss-
neskt gas selt um leiðslu til Þýska-
lands kemur að norðan og án mark-
aðar fyrir það þrengdi fjárhagslega
að Kremlverjum.
Blinken rétti Lavrov gullmola í
Hörpu. Biden og Blinken hafa meiri
trú á friðmælum en stóryrðum í anda
Trumps og Pompeos. Viðskipti Þjóð-
verja og Rússa eru reist á tvístefnu.
Þjóðverjar geta hert að Rússum með
því að skrúfa fyrir gasið í leiðslunni.
Mikil hætta felst í að kasta trúnni á
frjáls viðskipti og áhrif þeirra í þágu
friðar.
Eftir Björn
Bjarnason »Undir íslenskri for-
ystu var skútunni
siglt á kyrrari sjó og
lögð áhersla á að halda
starfinu innan marka
samþykkta ráðsins.
Björn Bjarnason
Höfundur er fv. ráðherra.
Gullmoli Blinkens til Lavrovs