Morgunblaðið - 28.05.2021, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 28.05.2021, Blaðsíða 54
54 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 2021 Myndlistarsýn- ingin Vera verð- ur opnuð í dag milli kl. 16 og 18 í Listasal Mosfells- bæjar og er hún fyrsta einkasýn- ing Iðu Brár Ingadóttur sem hefur komið víða við í listsköpun sinni, m.a. hann- að sviðsmyndir og búninga, tekið ljósmyndir og fengist við skrif. Við- fangsefni sýningarinnar er milli- bilsástandið milli svefns og vöku, eins og segir í tilkynningu, og leit- ast Iða Brá við að umbreyta list- rýminu í heilunarstað og skapa til- finningu fyrir þyngdarleysi og djúpslökun. Til þess notar hún ýmsa miðla. Listasalur Mosfells- bæjar er í Bókasafni Mosfellsbæjar. Iða Brá Ingadóttir Fyrsta einkasýning Iðu Brár opnuð Snorri Ásmunds- son opnar í kvöld kl. 20 tvær sýn- ingar í Hann- esarholti. Sú fyrri er einkasýning á nýjum mál- verkum sem Snorri málaði í skógum Svíþjóð- ar en þar hefur hann dvalist síðasta árið og lítið samneyti haft við annað mannfólk í raunheimum, eins og segir í tilkynn- ingu. Hin sýningin er í tónlistarrými Hannesarholts, ljósmyndasýning þar sem Snorri og listamaðurinn Kristján Frímann Kristjánsson fara á tímaflakk og skoða Ísland og her- námsárin. Sagnfræðigrúskarinn Þór Eysteinsson var þeim innan handar. Tvær sýningar í Hannesarholti Snorri Ásmundsson Fjölskyldusöngleikurinn Emil í Kattholti fer á fjalirnar í Borgar- leikhúsinu í nóvember og það er fyrsta stóra leikstjórnarverkefni Þórunnar Örnu Kristjánsdóttur en hún hefur verið leikkona við Borg- arleikhúsið í mörg ár. Þórarinn Eldjárn gerir nýja þýðingu. Dans- höfundur sýningarinnar er Lee Proud og tónlistarstjóri Agnar Már Magnússon. Leikmynd er í höndum Evu Signýjar Berger og María Ólafsdóttir hannar búninga. Leit stendur núna yfir að Emil og Ídu og 1.200 börn skráðu sig í pruf- ur. Áætlað er að vera búin að velja börnin sem fara með hlutverkin í byrjun júní. Foreldra Emils og Ídu leika Þorsteinn Bachmann og Esther Talía Casey. Með hlutverk Alfreðs vinnumanns og Línu vinnu- konu fara Sigurður Þór Óskarsson og Ásthildur Úa Sigurðardóttir, sem útskrifaðist sem leikari frá Listaháskóla Íslands vorið 2019 og var nýverið ráðin til Borgarleik- hússins. Með önnur hlutverk í sýningunni fara Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Sigrún Edda Björnsdóttir, Jóhann Sigurðarson, Rakel Ýr Stefáns- dóttir, Þuríður Blær Jóhannsdóttir og Aron Már Ólafsson. „Það er mikil spenna í loftinu og ég get ekki beðið eftir því að fá að hitta öll börnin sem sóttu um. Það að Borgarleikhúsið sé að fara að fyllast af hæfileikaríkum börnum næstu vikurnar passar verkefninu sérstaklega vel. Það er gleðilegt að finna þennan mikla áhuga fyrir sýningunni og ég er ekki í nokkrum vafa um það að Emil og Ída í Katt- holti munu finnast í þessum flotta barnahópi,“ segir Þórunn Arna Kristjánsdóttir leikstjóri. Leikstjórinn Þórunn Arna Krist- jánsdóttir hefur starfað sem leik- kona við Borgarleikhúsið í mörg ár. Leita að Emil og Ídu - Fyrsta stóra leikstjórnarverkefni Þórunnar Örnu Kristjánsdóttur Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Það er mér mikill heiður að hljóta verðlaun sem kennd eru við Guðrúnu Helgadóttur, enda er hún alveg í sér- flokki íslenskra barnabókahöfunda. Hún hefur verið mér mikilvæg fyrir- mynd, ekki bara sem höfundur heldur líka sem stjórnmálamaður, þannig að mér þykir sérstaklega vænt um þetta. Ég er einnig mjög þakklát fyrir þetta góða brautargengi sem Sterk fær,“ segir Margrét Tryggvadóttir sem í gær hlaut Barnabókaverðlaun Guð- rúnar Helgadóttur fyrir handrit sitt að bókinni Sterk sem kemur út hjá Máli og menningu. Þetta er í þriðja sinn sem Reykjavíkurborg veitir verð- launin, en þeim er ætlað að hvetja til metnaðarfullra skrifa fyrir börn og ungmenni og halda á lofti merkjum eins ástsælasta barnabókahöfundar landsins.Verðlaunaféð er ein milljón króna. Margrét segir það ritstjóra sínum, Sigþrúði Gunnarsdóttur, að þakka að hún sendi handritið inn í keppnina. „Ég er alltaf svo spéhrædd þegar ég skrifa og því var ritstjóri minn að lesa þetta yfir rétt áður en fresturinn til að senda inn handrit rann út. Hún hvatti mig eindregið áfram.“ Kveður við nýjan tón Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg kemur fram að í Sterk kveði við „nýj- an tón í íslenskum bókmenntum þar sem söguhetjan er trans stúlka sem er að fóta sig í nýju lífi í Reykjavík, þang- að sem hún er komin utan af landi til náms“. Að sögn Margrétar hafði hana lengi langað að skrifa skáldsögu fyrir ungt fólk. „Ég var hins vegar ekkert viss um að ég gæti það,“ segir Mar- grét og bendir á að hún hafi fram að þessu fyrst og fremst skrifað mynda- og fræðibækur sem kallað hafi á tölu- verða rannsóknarvinnu. „Mig langaði hins vegar mjög mikið að skrifa um trans veruleikann þar sem það hafði ekki verið gert áður á íslensku. Það skiptir svo miklu máli að dægur- menningin geri ráð fyrir öllum og að allir lesendur geti speglað sig í bók- um,“ segir Margrét og rifjar upp að hún hafi fyrst farið að leiða hugann að aðstæðum trans fólks í samfélaginu þegar einstaklingur í fjölskyldu henn- ar kom út sem trans. „Ég fór í fram- haldinu að skoða hvernig trans fólk birtist í menningunni og komst að því að það annaðhvort birtist ekki eða myndin af því er mjög bjöguð,“ segir Margrét sem fékk Uglu Stefaníu Kristjönudóttur Jónsdóttur og fleiri sem hafa góða innisýn til að lesa handritið yfir. „Mér fannst það al- gjörlega nauðsynlegt, því maður get- ur aldrei séð allt þó maður rannsaki málefnið og reyni af fremsta mætti að setja sig í spor annarra.“ Spurð hvort Sterk bjóði upp á framhald svarar Margrét því játandi. „Ég skildi eftir tvo glugga þar sem hægt væri að halda áfram með þenn- an söguheim, en það ræðst auðvitað að hluta af viðtökunum,“ segir Mar- grét og tekur fram að hún hafi notið þess að skrifa sig inn í glæpasögu- hefðina. „Norrænar glæpasögur hafa reynst skemmtilegur spegill á sam- félagið til að beina sjónum að ákveðnum vandamálum. Sterk fellur mjög vel að því formi og er á köflum býsna brútal enda nokkur morð. Mér finnst því dómnefndin mjög hugrökk í vali sínu.“ „Er mér mikill heiður“ - Margrét Tryggvadóttir hlýtur Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur 2021 fyrir handrit sitt að bókinni Sterk - „Dómnefndin hugrökk í vali sínu“ Morgunblaðið/Eggert Gleðistund Verðlaunahafinn Margrét Tryggvadóttir og borgarstjórinn Dagur B. Eggertsson í Höfða í gær. Valgerður Guðlaugsdóttir myndlistarmaður lést 27. apríl sl. og hafði fram að andlátinu unnið að verkum sem sýnd verða frá og með morgundeginum í Galleríi listamönnum, Skúlagötu 32. Sýn- ingin nefnist Lipstick state of mind eða Varalitur á heilanum og segir í tilkynningu að Valgerður hafi nálgast myndlistina frá upphafi með því að skoða og skilgreina sína eigin persónu, sjálfsmynd og mismunandi grímur og gera verk sem lýstu að hluta sameiginlegum reynsluheimi sem margir gætu speglað sig í. „Hún skilur eftir sig mikilvægt og áleitið höfundarverk sem talar sterkt inn í samtímann. Verkin á þessari einkasýningu hennar eru meðal þeirra síðustu sem hún gerði, með dyggri aðstoð Helga Hjaltalín myndlistarmanns, í sjálfskipaðri einangrun vegna heimsfaraldurs og ólæknandi krabbameins á vinnustofu sinni á heimili þeirra hjóna í Höfnum á vormánuðum 2021,“ segir í til- kynningu. Valgerður lauk námi frá Mynd- lista- og handíðaskóla Íslands árið 1990 og stundaði framhaldsnám við Listaakademíu Helsinki 1996- 1997 og við Listaháskóla Íslands 2002-2004. Hún vakti athygli fyrir verk sín um kvenímyndir með kröftugu tvíræðu myndmáli. Sýningaropnun fer fram á morg- un frá kl. 14 til 18. Mikilvægt og áleit- ið höfundarverk Á sýningu Verkið Kick Ass Wheel. Mobile Home, ný breiðskífa hljóm- sveitarinnar GusGus, kemur út í dag, 28. maí. Á henni eru níu ný lög og hafa nokkur þeirra þegar komið út sem smáskífur, þ.e. „Higher“, „Stay The Ride“, „Our World“ og „Love Is Alone“. „Sem fyrr ögrar gussið sjálfu sér og aðdáendum sín- um með því að fara óvæntar leiðir í listsköpun sinni,“ segir í tilkynn- ingu og að Margrét Rán úr VÖK komi við sögu í sjö lögum. Í fyrsta sinn í 19 ár vinnur hljómsveitin að lagasmíðum með einum af stofn- endum sveitarinnar, Sigurði Kjart- anssyni, og John Grant syngur í einu lagi með Daníel Ágústi. Í til- efni af útgáfunni mun GusGus halda tónleika í Stúdíó Sundlaug- inni sem verður streymt á netinu á morgun og verða tónleikarnir sér- hannaðir fyrir kvikmyndavélar í leikstjórn Arni & Kinski. Mögulegt er að horfa á tónleikana í streymi gegnum www.momenthouse.com/ gusgus, en þeir verða líka í boði hjá Vodafone og í Sjónvarpi Símans. GusGus fagnar nýrri plötu Platan Mobile Home með GusGus. Sýning Valgerðar Hauksdóttur, Síbreytileiki / Embrac- ing Change, var opnuð í Sal Íslenskrar grafíkur, Hafn- arhúsinu, um síðustu helgi og stendur hún yfir til 6. júní. Valgerður sýnir grafíkverk sem hún hefur unnið á síðustu tíu árum og hafa fæst þeirra verið sýnd áður hér á landi. „Viðfangsefni verka Valgerðar í gegnum árin eru sótt í ólík áhugasvið sem þó tengjast; náttúruvís- indi, tónlist, tímann og tilveruna,“ segir í tilkynningu og að á undanförnum árum hafi hún þróað eigin tækni þar sem unnið sé með sambland steinþrykks, ætingar og málunar á handgerðan þunnan pappír. Sum verkanna hanga úr lofti og eru unnin á báðar hliðar pappírsins. Í þeim nýtur gegnsæi pappírsins sín sérstaklega og hefur Valgerður einnig hin síðustu ár unnið að rannsókn og gert tilraunir með heilsu- og umhverf- isvænar þrykkaðferðir í listgrafík. Á sýningunni má sjá ætingar unnar með þessari aðferð. Síbreytileiki í grafíkverkum Valgerður Hauksdóttir Samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg bárust hátt á fjórða tug handrita í samkeppnina í ár. Dómnefnd skipuðu þau Geir Finnsson, sem var formaður, Halla Þórlaug Óskarsdóttir og Heiða Rún- arsdóttir. Í umsögn dómnefndar um verðlaunahandritið segir: „Þetta er grípandi saga sem dregur upp mynd úr lífi minnihlutahópa á Íslandi. Sagan fjallar meðal annars um daglegt líf og viðkvæma stöðu trans fólks og innflytjenda í sam- félaginu. Hér opnast sagnaheimur sem fáir rithöfundar hafa fetað. Það er mikilvægt fyrir þroska og skilning lesenda að eiga kost á að upplifa fjölbreytileika samfélagsins í gegnum lestur, setja sig í spor ólíkra sögupersóna og finna sam- kennd með þeim. Það að söguhetja er trans er hvorki aðalatriði frá- sagnarinnar né óvænt atriði til að þjóna fléttu hennar heldur fellur sá veruleiki átakalaust inn í söguþráð- inn. Af einlægni og með virðingu fyrir viðfangsefninu hefur Margréti tekist að setja fram sögu sem fjallar um vegferð trans stúlku og þörf hennar fyrir viðurkenningu fjölskyldu og vina; að vera metin á eigin forsendum.“ „Þetta er grípandi saga“ HÁTT Á FJÓRÐA TUG HANDRITA BÁRUST Í SAMKEPPNINA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.