Morgunblaðið - 28.05.2021, Side 40
SÍMI 587 2000 · KLETTHÁLSI 2, 110 REYKJAVÍK · WWW.TOPPBILAR.IS
VOLVO XC60
MOMENTUM
Raðnúmer 280238
Nýskráður 7/2018
Akstur 42 þ.km.
Dísel
Fjórhjóladrif
Sjálfskipting
191 hestöfl
5 manna
Næsta skoðun 2022
Aðgerðahnappar í stýri
Bakkmyndavél
Bluetooth
Dráttarkrókur (aftengjanlegur)
Fjarlægðarskynjarar aftan
Glerþak
Heilsársdekk
Hiti í fram- og aftursætum
Hraðastillir
Hraðatakmarkari
ISOFIX festingar í aftursætum
Leðuráklæði
Loftkæling
Lykillaus ræsing
Rafdrifin framsæti
Rafdrifin handbremsa
Regnskynjari
Reyklaust ökutæki
Stafrænt mælaborð
Start/stop búnaður
Tveggja svæða miðstöð
USB tengi
Verð 7.790.000 kr.
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150
Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju
Einstök
minning
Útskrifta-
myndatökur
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 2021
Marta María
mm@mbl.is
„Meginmarkmiðið með nýju BL+-
húðvörulínunni frá Blue Lagoon
Iceland er að bjóða upp á hágæða
húðvörur sem vinna gegn öldr-
unareinkennum húðarinnar og
stuðla að heilbrigði hennar. Kjarn-
inn í BL+ er nýtt, byltingarkennt
innihaldsefni, BL+ COMPLEX,
sem er afrakstur 30 ára rann-
sóknavinnu. BL+ COMPLEX nýt-
ir einkaleyfi á hinum lífvirku ör-
þörungum og kísil Bláa lónsins og
byggist á brautryðjandi tækni í
sjálfbærri framleiðslu. Við hönnun
á BL+ COMPLEX er notuð nátt-
úruleg fosfólípíðferja til þess að
koma einstakri blöndu af örþör-
ungum og kísil djúpt niður í húð-
lögin til að hámarka virkni. BL+
COMPLEX styrkir náttúrulegar
varnir húðarinnar og vinnur gegn
ótímabærri öldrun hennar með því
að örva nýmyndun kollagens og
vinna gegn niðurbroti þess,“ segir
Ása.
Finnst þér fólk vera að sækjast
eftir öðruvísi húðvörum í dag en til
dæmis þegar Bláa lónið fór að
bjóða upp á húðvörur á sínum
tíma?
„Að mínu mati er fólk almennt
að sækjast eftir svipuðum eigin-
leikum í húðvörum og áður. Hins
vegar gerir markaðurinn mun
meiri kröfur um að það séu stað-
festar rannsóknir á bak við vör-
urnar, þær innihaldi hrein, rekjan-
leg innihaldsefni og séu öruggar
fyrir manninn og umhverfið. Við
hjá Bláa lóninu höfum ávallt lagt
áherslu á að bjóða upp á hágæða
vörur, sem byggjast á vísindum,
virkni og sjálfbærni.“
Þegar Ása er spurð að því
hverju hún sé stoltust af þegar
kemur að seruminu, segir hún að
varan vinni gegn öldrunar-
einkennum.
„BL+ The Serum er vara sem
hefur einstaka virkni sem vinnur
gegn öldrunareinkennum húð-
arinnar og eykur heilbrigði hennar
til langs tíma. Hér er á ferðinni
öflug formúla með blöndu af líf-
virkum innihaldsefnum; BL+
COMPLEX, sem byggir upp kolla-
genbirgðir húðar og styrkir efsta
varnarlag hennar, C-vítamín sem
hefur andoxunarvirkni, þrjár gerð-
ir hýalúransýra sem veita húðinni
raka og nærandi jarðsjór Bláa
lónsins sem er ríkur af steinefnum
og stuðlar að aukinni upptöku
virkra efna. Út frá rannsóknum
okkar sjáum við að serumið er öfl-
ugur rakagjafi, þéttir húðina,
styrkir hana og dregur úr fínum
línum. Við hönnun vörunnar lögð-
um við ríka áherslu á að fylgja
ströngustu kröfum um framleiðslu
náttúrulegra og umhverfisvænna
snyrtivara. BL+ The Serum-
formúlan er 100% náttúruleg, inni-
heldur einungis COSMOS
APPROVED innihaldsefni og er
varan COSMOS NATURAL vott-
uð af Ecocert Greenlife. Vottunin
staðfestir að innihaldsefni húð-
varanna séu af endurnýjanlegum
og ábyrgum uppruna og séu einnig
rekjanleg, vegan og laus við erfða-
breytt efni og gerviefni. Auk þess
eru umbúðirnar endurvinnanlegar.
Serumið er í glerflösku, sem sér-
staklega er hönnuð til að verja
vöruna fyrir UV-geislum sólar-
innar, tryggir gæði vörunnar og
lengir líftíma hennar. Við leitum
ávallt leiða til að gera alla okkar
framleiðsluferla umhverfisvænni.
Sem dæmi þá höfum við þróað
nýja tækni við að draga úr kolefn-
islosun með því að fóðra örþör-
unga með koltvísýringi sem annars
færi út í andrúmslofið. Bláa Lónið
er fyrsti snyrtivöruframleiðandinn,
að við vitum til, sem nýtir jarð-
varmastraum með þessum hætti til
hráefnaframleiðslu snyrtivara. Við
kolefnisjöfnum bæði hráefna-
framleiðslu okkar og flutning var-
anna úr vöruhúsum til viðskipta-
vina. Við settum serumið fyrst á
markað í febrúar á þessu ári í
Bandaríkjunum og hafa móttök-
urnar verið virkilega góðar. BL+
The Serum hefur vakið athygli
fjölmiðla á borð við Coveteur og
Forbes sem ein af bestu nýjung-
unum á markaðnum og hlaut það
nú í apríl viðurkenninguna 2021
ELLE Green Beauty Star. Þá við-
urkenningu hljóta vörur eða vöru-
merki sem bjóða upp á byltingar-
kennda nálgun við hönnun
snyrtivara með velferð neytenda
og náttúru í huga. Við erum afar
þakklát og stolt af þessum við-
tökum og hlökkum til að kynna
vöruna hér á landi,“ segir Ása.
Hvenær hófst þróun á BL+ The
Serum?
„Þróun á nýja seruminu byrjaði
fyrir rúmum tveimur árum. Hins
vegar er mun lengra síðan við hóf-
um þróunina á lykilinnihaldsefni
vörunnar, BL+ COMPLEX. Við
höfum undanfarin 30 ár stundað
rannsóknir á jarðsjó Bláa lónsins
og lífvirkum innihaldsefnum hans,
örþörungum og kísil. Þessar rann-
sóknir okkar hafa meðal annars
leitt í ljós að örþörungarnir og kís-
illinn hafa einstaka virkni þegar
kemur að því að draga úr öldrun
húðarinnar. Rannsóknirnar sýndu
að þau örva nýmyndun kollagens í
húð, draga úr niðurbroti þess og
styrkja efsta varnarlag húð-
arinnar. Byggt á þessum rann-
sóknum, sem fyrst voru birtar
2008, hófum við þróun á BL+
COMPLEX sem er þessi einstaka
blanda örþörungs og kísils.“
Spurð um markhópinn segir hún
að serumið sé fyrir fólk frá 30 ára
aldri og upp úr. Á næstunni koma
fleiri vörur sem búa yfir sömu eig-
inleikum og serumið.
„Markhópur BL+-húðvörulín-
unnar eru karlar og konur 30 ára
og eldri sem sækjast eftir virkum
hágæða vörum, eru meðvituð um
mikilvægi heilbrigðrar húðar og
umhverfi sitt. Við höfum tekið mið
af því við hönnun BL+-húðvörulín-
unnar að fólk hefur áhuga á því að
einfalda sína daglegu húðumhirðu
og eins og nafn vörunnar, BL+
The Serum, gefur til kynna þá er
þetta serumið sem uppfyllir þínar
daglegu þarfir. BL+ The Serum
er frábær viðbót inn í daglega húð-
umhirðu og er það notað undir
rakakrem eða sólarvörn.“
Dregur úr öldrunareinkennum
Ása Brynjólfsdóttir,
rannsókna- og þróun-
arstjóri Bláa lónsins, er
stolt af nýja seruminu
sem fyrirtækið var að
setja á markað. Serumið
hefur verið tvö ár í þró-
un og segir Ása að var-
an marki tímamót.
Nýjung BL+
The Serum er
alfarið unnið
úr náttúru-
legum efnum.
Stolt Ása Brynjólfsdóttir, rannsókna- og þróun-
arstjóri Bláa lónsins, segir markaðinn gera ríkari
kröfu um staðfestar rannsóknir bak við snyrtivörur.