Morgunblaðið - 28.05.2021, Síða 40

Morgunblaðið - 28.05.2021, Síða 40
SÍMI 587 2000 · KLETTHÁLSI 2, 110 REYKJAVÍK · WWW.TOPPBILAR.IS VOLVO XC60 MOMENTUM Raðnúmer 280238 Nýskráður 7/2018 Akstur 42 þ.km. Dísel Fjórhjóladrif Sjálfskipting 191 hestöfl 5 manna Næsta skoðun 2022 Aðgerðahnappar í stýri Bakkmyndavél Bluetooth Dráttarkrókur (aftengjanlegur) Fjarlægðarskynjarar aftan Glerþak Heilsársdekk Hiti í fram- og aftursætum Hraðastillir Hraðatakmarkari ISOFIX festingar í aftursætum Leðuráklæði Loftkæling Lykillaus ræsing Rafdrifin framsæti Rafdrifin handbremsa Regnskynjari Reyklaust ökutæki Stafrænt mælaborð Start/stop búnaður Tveggja svæða miðstöð USB tengi Verð 7.790.000 kr. Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150 Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju Einstök minning Útskrifta- myndatökur MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 2021 Marta María mm@mbl.is „Meginmarkmiðið með nýju BL+- húðvörulínunni frá Blue Lagoon Iceland er að bjóða upp á hágæða húðvörur sem vinna gegn öldr- unareinkennum húðarinnar og stuðla að heilbrigði hennar. Kjarn- inn í BL+ er nýtt, byltingarkennt innihaldsefni, BL+ COMPLEX, sem er afrakstur 30 ára rann- sóknavinnu. BL+ COMPLEX nýt- ir einkaleyfi á hinum lífvirku ör- þörungum og kísil Bláa lónsins og byggist á brautryðjandi tækni í sjálfbærri framleiðslu. Við hönnun á BL+ COMPLEX er notuð nátt- úruleg fosfólípíðferja til þess að koma einstakri blöndu af örþör- ungum og kísil djúpt niður í húð- lögin til að hámarka virkni. BL+ COMPLEX styrkir náttúrulegar varnir húðarinnar og vinnur gegn ótímabærri öldrun hennar með því að örva nýmyndun kollagens og vinna gegn niðurbroti þess,“ segir Ása. Finnst þér fólk vera að sækjast eftir öðruvísi húðvörum í dag en til dæmis þegar Bláa lónið fór að bjóða upp á húðvörur á sínum tíma? „Að mínu mati er fólk almennt að sækjast eftir svipuðum eigin- leikum í húðvörum og áður. Hins vegar gerir markaðurinn mun meiri kröfur um að það séu stað- festar rannsóknir á bak við vör- urnar, þær innihaldi hrein, rekjan- leg innihaldsefni og séu öruggar fyrir manninn og umhverfið. Við hjá Bláa lóninu höfum ávallt lagt áherslu á að bjóða upp á hágæða vörur, sem byggjast á vísindum, virkni og sjálfbærni.“ Þegar Ása er spurð að því hverju hún sé stoltust af þegar kemur að seruminu, segir hún að varan vinni gegn öldrunar- einkennum. „BL+ The Serum er vara sem hefur einstaka virkni sem vinnur gegn öldrunareinkennum húð- arinnar og eykur heilbrigði hennar til langs tíma. Hér er á ferðinni öflug formúla með blöndu af líf- virkum innihaldsefnum; BL+ COMPLEX, sem byggir upp kolla- genbirgðir húðar og styrkir efsta varnarlag hennar, C-vítamín sem hefur andoxunarvirkni, þrjár gerð- ir hýalúransýra sem veita húðinni raka og nærandi jarðsjór Bláa lónsins sem er ríkur af steinefnum og stuðlar að aukinni upptöku virkra efna. Út frá rannsóknum okkar sjáum við að serumið er öfl- ugur rakagjafi, þéttir húðina, styrkir hana og dregur úr fínum línum. Við hönnun vörunnar lögð- um við ríka áherslu á að fylgja ströngustu kröfum um framleiðslu náttúrulegra og umhverfisvænna snyrtivara. BL+ The Serum- formúlan er 100% náttúruleg, inni- heldur einungis COSMOS APPROVED innihaldsefni og er varan COSMOS NATURAL vott- uð af Ecocert Greenlife. Vottunin staðfestir að innihaldsefni húð- varanna séu af endurnýjanlegum og ábyrgum uppruna og séu einnig rekjanleg, vegan og laus við erfða- breytt efni og gerviefni. Auk þess eru umbúðirnar endurvinnanlegar. Serumið er í glerflösku, sem sér- staklega er hönnuð til að verja vöruna fyrir UV-geislum sólar- innar, tryggir gæði vörunnar og lengir líftíma hennar. Við leitum ávallt leiða til að gera alla okkar framleiðsluferla umhverfisvænni. Sem dæmi þá höfum við þróað nýja tækni við að draga úr kolefn- islosun með því að fóðra örþör- unga með koltvísýringi sem annars færi út í andrúmslofið. Bláa Lónið er fyrsti snyrtivöruframleiðandinn, að við vitum til, sem nýtir jarð- varmastraum með þessum hætti til hráefnaframleiðslu snyrtivara. Við kolefnisjöfnum bæði hráefna- framleiðslu okkar og flutning var- anna úr vöruhúsum til viðskipta- vina. Við settum serumið fyrst á markað í febrúar á þessu ári í Bandaríkjunum og hafa móttök- urnar verið virkilega góðar. BL+ The Serum hefur vakið athygli fjölmiðla á borð við Coveteur og Forbes sem ein af bestu nýjung- unum á markaðnum og hlaut það nú í apríl viðurkenninguna 2021 ELLE Green Beauty Star. Þá við- urkenningu hljóta vörur eða vöru- merki sem bjóða upp á byltingar- kennda nálgun við hönnun snyrtivara með velferð neytenda og náttúru í huga. Við erum afar þakklát og stolt af þessum við- tökum og hlökkum til að kynna vöruna hér á landi,“ segir Ása. Hvenær hófst þróun á BL+ The Serum? „Þróun á nýja seruminu byrjaði fyrir rúmum tveimur árum. Hins vegar er mun lengra síðan við hóf- um þróunina á lykilinnihaldsefni vörunnar, BL+ COMPLEX. Við höfum undanfarin 30 ár stundað rannsóknir á jarðsjó Bláa lónsins og lífvirkum innihaldsefnum hans, örþörungum og kísil. Þessar rann- sóknir okkar hafa meðal annars leitt í ljós að örþörungarnir og kís- illinn hafa einstaka virkni þegar kemur að því að draga úr öldrun húðarinnar. Rannsóknirnar sýndu að þau örva nýmyndun kollagens í húð, draga úr niðurbroti þess og styrkja efsta varnarlag húð- arinnar. Byggt á þessum rann- sóknum, sem fyrst voru birtar 2008, hófum við þróun á BL+ COMPLEX sem er þessi einstaka blanda örþörungs og kísils.“ Spurð um markhópinn segir hún að serumið sé fyrir fólk frá 30 ára aldri og upp úr. Á næstunni koma fleiri vörur sem búa yfir sömu eig- inleikum og serumið. „Markhópur BL+-húðvörulín- unnar eru karlar og konur 30 ára og eldri sem sækjast eftir virkum hágæða vörum, eru meðvituð um mikilvægi heilbrigðrar húðar og umhverfi sitt. Við höfum tekið mið af því við hönnun BL+-húðvörulín- unnar að fólk hefur áhuga á því að einfalda sína daglegu húðumhirðu og eins og nafn vörunnar, BL+ The Serum, gefur til kynna þá er þetta serumið sem uppfyllir þínar daglegu þarfir. BL+ The Serum er frábær viðbót inn í daglega húð- umhirðu og er það notað undir rakakrem eða sólarvörn.“ Dregur úr öldrunareinkennum Ása Brynjólfsdóttir, rannsókna- og þróun- arstjóri Bláa lónsins, er stolt af nýja seruminu sem fyrirtækið var að setja á markað. Serumið hefur verið tvö ár í þró- un og segir Ása að var- an marki tímamót. Nýjung BL+ The Serum er alfarið unnið úr náttúru- legum efnum. Stolt Ása Brynjólfsdóttir, rannsókna- og þróun- arstjóri Bláa lónsins, segir markaðinn gera ríkari kröfu um staðfestar rannsóknir bak við snyrtivörur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.