Morgunblaðið - 28.05.2021, Side 22

Morgunblaðið - 28.05.2021, Side 22
Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Lokið er niðurrifi tveggja húsa við Vatnsstíg í Reykjavík. Bæði húsin voru friðuð vegna aldurs en vegna þess hve þau voru illa farin var frið- un aflétt með leyfi Minjastofnunar Íslands. Vatnsstígur liggur í halla milli Hverfisgötu og Laugavegar. Stærra húsið, Vatnsstígur 4, hefur verið hálfgert vandræðahús um ára- bil og komist í fréttirnar. Húsið hef- ur staðið mannlaust og með byrgða glugga í meira en áratug og ástand þess hefur óneitanlega verið lýti á miðborginni. Húsið var byggt árið 1901 og er 360 fermetrar. Það komst í fréttirnar árið 2009 vegna þess að hústökufólk hafði þar aðsetur. Fólkið var fjarlægt með lögregluvaldi í apríl það ár, alls 22 einstaklingar. Á milli fjörutíu og fimmtíu lögreglumenn í óeirðabún- ingum tóku þátt í aðgerðinni. Síðar kviknaði í húsinu í tvígang og skemmdist það talsvert. Í greinar- gerð sérfræðings Húsverndar- stofnunar Íslands, dags. 24. sept- ember 2018, kemur fram að við nánari skoðun telji hann ekki verj- andi að gera upp Vatnsstíg 4, svo illa sé það farið, en ítrekar að þegar hús- ið verður tekið niður skuli allt not- hæft „tekið til handargagns“. Innan lóðarinnar Vatnsstígur 4 er hús sem áður var skráð Laugavegur 33a, byggt 1911. Húsið er friðað skv. lögum um menningarminjar. Minja- stofnun veitti leyfi til að rífa bæði húsin. Ástand Vatnsstígs 4 var metið mjög slæmt og varðveislugildi Laugavegar 33a var metið miðlungs og tæknilegt ástand þess metið lágt. Í júní 2029 veitti skipulags- og samgönguráð Reykjavíkur heimild til að vinna deiliskipulagstillögu fyr- ir Frakkastígsreit, þ.e. lóðirnar Laugaveg 33, 33a, 33b, 35 og 37 og Vatnsstíg 4 á kostnað lóðarhafa og Ónýt Húsin tvö urðu að víkja. Þau voru mjög illa farin, sérstaklega það neðra, Vatnsstígur 4. Breytt götumynd Húsin tvö, sem staðið hafa við Vatnsstíginn í meira en öld, eru nú rústir einar. Vandræðahús við Vatnsstíg rifið - Vatnsstígur 4 komst í fréttir fyrr á árum - Lögreglan fjarlægði hústökufólk í viðamikilli aðgerð Mynd/Zeppelin arki tektar Nýju húsin Tvær byggingar munu rísa en önnur hús verða gerð upp. að mestu í samræmi við nýjustu til- lögur, dagsettar 24. maí 2019. Lóð- arhafi var félagið Leiguíbúðir ehf. Reiturinn, sem skipulagið nær til, afmarkast af Hverfisgötu í norðri, Laugavegi í suðri, Vatnsstíg í vestri og Frakkastíg í austri. Deiliskipu- lagstillagan er unnin af Zeppelin arkitektum og felst hún í að hús á Laugavegi 33 og 33b verði færð í átt að upprunalegu útliti, hús á Lauga- vegi 35 verði hækkað um eina hæð og timburhluti sama húss verði end- urbyggður og hækkaður um eina hæð, hús á Laugavegi 33a og Vatns- stíg 4 verði rifin og ný byggð í þeirra stað, uppbyggingu á Laugavegi 37 o.fl. Hin nýju hús verða steinsteypt, allt að fimm hæðir hvort. Þarna er gert ráð fyrir íbúðum og leiguíbúð- um, samkvæmt tillögunni. Gamalt steinhús gert upp Á fundi skipulagsfulltrúa Reykja- víkur nýlega var lögð fram umsókn dagsett 31. mars sl. um breytingu á deiliskipulagi Frakkastígsreits. Samkvæmt henni er fallið frá því að rífa steinhús á baklóð Laugavegar 37 og nýbygging sem fyrirhugað er að rísi á baklóðinni verður stytt sem því nemur og verður hluti af Lauga- vegi 35, sem og áðurnefnt steinhús. Húsið, sem byggt var 1906, verður gert upp og fært nær upprunalegu horfi. Samþykkt var að grenndar- kynna framlagða tillögu að óveru- legri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum. Morgunblaðið/sisi 22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 2021 Rauðarárstígur 12-14, sími 551 0400 · www.uppbod.is V efu ppboð n r.54 3 Glæsilegt vefuppboð til 2. júní Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir Forsýning á verkunum hjá Fold uppboðshúsi og á vefnum uppbod.is ÚT ÚR KÓFINU Jakob Veigar Biskup Íslands auglýsti fyrir nokkru eftir presti til þjónustu í Garða- og Saurbæjarprestakalli, Vesturlands- prófastsdæmi. Þessi sóttu um: Árni Þór Þórsson guðfræðingur, Edda Hlíf Hlífars- dóttir guðfræðingur, Erna Kristín Stefánsdóttir guðfræðingur, Helga Bragadóttir guðfræðingur, Hilmir Kolbeins guðfræðingur, Hjördís Perla Rafnsdóttir guðfræðingur, séra Ólöf Margrét Snorradóttir, Þorgeir Albert Elíesersson guð- fræðingur og séra Ursula Árnadótt- ir. Tveir umsækjenda óskuðu nafn- leyndar, en það er heimilt sam- kvæmt reglum sem samþykktar voru á kirkjuþingi í fyrra. Í auglýsingunni kom fram að mið- að væri við að viðkomandi gæti hafið störf 1. ágúst næstkomandi. Matsnefnd velur að jafnaði fjóra hæfustu umsækjendurna en þó aldr- ei fleiri en fimm og skilar skýrslu þar að lútandi til biskups. Kjörnefnd Garða- og Saurbæjarprestakalls kýs prest úr hópi umsækjenda, að loknu valferli kjörnefndar. Garða- og Saurbæjarprestakall samanstendur af fjórum sóknum, Akranessókn með um 7.800 íbúa, Saurbæjarsókn á Hvalfjarðarströnd með rúmlega 140 íbúa, Leirársókn með rúmlega 300 íbúa og Innra- Hólmssókn með rúmlega 150 íbúa. Fjórar kirkjur eru í prestakallinu, Akraneskirkja, Hallgrímskirkja í Saurbæ, Leirárkirkja og Innra- Hólmskirkja. Séra Jónína Ólafsdóttir gegndi embætti prests á Akranesi en hún var nýlega valin til að vera sóknar- prestur í Hafnarfjarðarprestakalli. sisi@mbl.is Ellefu sækja um embætti prests - Margir eru reiðu- búnir til þjónustu á Akranesi og í grennd Ljósmynd/kirkjan.is Akraneskirkja Þar í bænum búa flestir íbúar í prestakallinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.