Morgunblaðið - 28.05.2021, Síða 33

Morgunblaðið - 28.05.2021, Síða 33
33 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 2021 Loftfimleikar Margir hafa lagt leið sína í Skrímslið við Perluna og sumir taka stökkið. Kristinn Magnússon Í dag, laugardaginn 29. maí, verður haldið prófkjör Sjálf- stæðisflokksins í Norðaust- urkjördæmi vegna alþingis- kosninga 25. september nk. Ég gef kost á mér í 1. sæti á lista flokksins og bið um stuðning í leiðtogasætið. Ég hóf störf á Alþingi fyrir kjördæmið árið 2016 og hef staðið fyrir gildi og frelsissýn sjálfstæðisstefnunnar. Þar hef ég talað fyrir athafnafrelsi og einkarekstri, gegn oftrú ríkis- rekstrar og sífellt öflugra mið- stjórnarvaldi, eftirliti og aukn- um sköttum. Trú mín er að athafnafrelsi og velferð haldist í hönd og hver megi uppskera í samræmi við eigið framlag. Hef látið til mín taka á vett- vangi atvinnu- og samgöngu- bóta, en ekki síst í málum er varða byggðamál, byggðafestu, hug- myndaauðgi og framkvæmdahug. Lengst- um hef ég setið í fjárlaganefnd og atvinnu- veganefnd þingsins og er nú varaformaður utanríkismálanefndar og formaður Íslands- deildar NATO-þingsins. Verið í virku sam- bandi við kjósendur Norðausturkjördæmis og víðar. Störf mín og áherslur eru að- gengileg á samfélagsmiðlum. Fólk kýs en fyrirtækin ekki Í prófkjörinu eigum við kost á vali milli öflugra frambjóðenda víða úr kjördæminu. Ég er stoltur að tilheyra þeim góða hópi. Hann vil ég leiða. Vegna umfjöllunar fjölmiðla síðustu daga er ástæða til að minna á að sjálfstæðisfólk kýs í prófkjörinu en fyrirtæki ekki eða hagsmunasamtök. Þar leita ég beint og milliliðalaust til sjálfstæðis- fólks eftir umboði til að leiða listann. Að baki framboði mínu standa hvorki sérhagsmunir né fyrirtæki. Það ætti að vera öllum ljóst þar sem ég er ekki af valdafjölskyldu eða með sterka hagsmuni að baki. Ég er engum háður og reiðubúinn til að starfa af heilindum og krafti fyrir fólkið í kjördæm- inu. Sonur einstæðrar móður sem ól upp fjögur börn sín af elju og dugnaði. Okkur var kennt að fara vel með þær bjargir sem í boði voru, sýna sanngirni, virðingu gagnvart sjálfum okkur og öðrum, og að hafa metnað og kjark til að sækja fram. Það var hollt veganesti út í lífið. 17 vikur Á fundum og ferðum um kjördæmið síðustu mánuði hef ég fundið að störf mín og hug- myndir eiga sterkan hljómgrunn í Norðausturkjördæmi. Þar hef ég minnt á prófkjörið sem upptakt farsællar kosninga- baráttu, enda einungis 17 vikur til alþing- iskosninga. Með öflugu prófkjöri stillum við upp lista sem laðar að sér ólíkt fólk með fjölbreyttan bakgrunn til samstarfs úr öllu kjördæminu. Slíkur framboðslisti og öflugt umboð úr prófkjöri gefa skýr fyrirheit um forystu í kjördæminu. Fjölmenn og víðtæk þátttaka yrði sterk- ur meðbyr fyrir framboðslista Sjálfstæðis- flokksins í kjördæminu í haust. Þann lista vil ég leiða og hvet alla til þátttöku. Eftir Njál Trausta Friðbertsson » Prófkjörið er upptaktur farsællar kosn- ingabaráttu. Hana vil ég leiða. Njáll Trausti Friðbertsson Höfundur er alþingismaður Norðaustur- kjördæmis. ntf@althingi.is Tökum þátt í prófkjörinu í Norðausturkjördæmi Það var annar brag- ur yfir Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, daginn fyrir utanríkis- ráðherrafund norður- skautsráðsins 20. maí 2021 í Reykjavík en forvera hans Mike Pompeo fyrir ráðs- fundinn í Rovaniemi í Finnlandi í maí 2019. Pompeo flutti eldheita bar- átturæðu gegn hernaðarumsvifum Rússa á norðurslóðum og sagði Kín- verja ekki eiga neitt erindi þangað. Var þetta magnaðasta ræða af hálfu bandarísks ráðamanns í tengslum við fundi ráðsins frá því að það var stofnað árið 1996. Ákafinn var svo mikill í Rovaniemi að ekki náðist samkomulag um lokayfirlýsingu ráð- herrafundarins. Nú notaði Antony Blinken daginn fyrir fundinn til að eiga í fyrsta sinn sem utanríkisráðherra tvíhliða fund með Sergeij Lavrov, utanríkis- ráðherra Rússa. Var fundurinn frið- samur og nýttist til að ákveða fyrsta fund forsetanna Joes Bidens og Vla- dimirs Pútins. Hann verður í Genf um miðjan júní í tengslum við ferð Bidens á ríkisoddvitafund NATO- ríkjanna í Brussel. Utanríkisráðherrar ríkjanna átta í norðurskautsráðinu rituðu í Hörpu undir Reykjavíkuryfirlýsinguna. Á ellefu blaðsíðum árétta þeir skuld- bindingu ráðsins um „að viðhalda friði, stöðugleika og uppbyggilegri samvinnu á norðurslóðum“ eins og segir í tilkynningu utanríkisráðu- neytisins. Lögð er áhersla „á ein- staka stöðu norðurskautsríkjanna til að stuðla að ábyrgum stjórnunar- háttum á svæðinu“ og „mikilvægi þess að takast þegar í stað á við loftslagsbreytingar á norðurslóðum“. And- staða stjórnar Donalds Trumps Bandaríkja- forseta við Parísar- samkomulagið gegn loftslagsbreytingum réð miklu um enga yfir- lýsingu frá Rovaniemi 2019. Í tilefni af 25 ára af- mæli norðurskauts- ráðsins samþykktu ráð- herrarnir einnig fyrstu stefnuyfirlýsingu þess. Verður hún höfð að leiðarljósi á kom- andi áratug. Rússar tóku við formennsku í ráðinu af Íslendingum. Forysta Guð- laugs Þórs Þórðarsonar utanrík- isráðherra og íslensku utanríkis- þjónustunnar hlaut almennt lof, opinberlega og í einkasamtölum. Á hitafundinum í Rovaniemi og eftir hann reyndi verulega á innviði norðurskautsráðsins. Undir ís- lenskri forystu var skútunni siglt á kyrrari sjó og lögð áhersla á að halda starfinu innan marka samþykkta ráðsins. Þar skiptir verulegu máli að norrænu ríkin, fimm af átta aðild- arríkjum, fylgja markvisst stefnu um að fjölþjóðlegt samstarf sé í krafti laga og reglu. Hernaðarmál falla utan starfs- ramma ráðsins. Rússar liggja hins vegar ekki á óánægju sinni yfir að norrænu ríkin hafa undanfarin tvö ár enn eflt samstöðu sína í öryggis- og varnarmálum með NATO og Banda- ríkjunum. Beina rússnesk stjórnvöld spjótum sínum einkum að Norð- mönnum sem stofna nú til endurbóta á fjórum flugvöllum, Rygge, Sola, Evenes og Ramsund, í samvinnu við Bandaríkjastjórn til að auðvelda bandarískum hervélum að athafna sig frá Noregi. Að túlka þessa þróun á þann veg að hún sé reist á þrýst- ingi frá Bandaríkjamönnum er rangt. Að baki henni býr sameigin- legt hættumat eftir árás Rússa á Úkraínu árið 2014. Hún varð til dæmis til að gjörbreyta stefnu Svía í öryggis- og varnarmálum. Vikurnar fyrir Reykjavíkurfund- inn hömpuðu Rússar eigin hervæð- ingu á norðurslóðum. Þeir efndu til dæmis í fyrsta sinn til kynnisferðar fyrir erlenda blaðamenn til Alexand- er-eyju í Franz Josef Land- klasanum lengst í norðri til að sýna þeim nýja herstöð sína þar og hreykja sér af því að hafa nú aðgang að 19 herflugvöllum á og við norður- strönd Rússlands. Á þeim slóðum ætla þeir að vinna olíu og gas fyrir utan að stórauka siglingar um norð- urleiðina milli Atlantshafs og Kyrra- hafs. Sergei Lavrov sagði við blaða- menn skömmu fyrir Reykjavíkur- fundinn: „Öllum varð það fullkom- lega ljóst fyrir löngu að þetta er okkar svæði, okkar land. Við berum ábyrgð á því að tryggja öryggi norð- urstrandar okkar. Leyfið mér að árétta enn einu sinni – þetta er okkar land og okkar haf.“ Þegar Antony Blinken hitti Lavr- ov í fyrsta sinn hefði hann getað lagt höfuðáherslu á að mótmæla þessum ummælum og sagt þau ögrandi. Blinken tók hins vegar annan pól í hæðina og sagði Lavrov að ráðuneyti sitt hefði sama dag og þeir hittust til- kynnt Bandaríkjaþingi að endur- skoðun á refsiaðgerðum gegn lagn- ingu á Nord Stream 2, gasleiðslu Rússa til Þýskalands, væri lokið. Felldar yrðu niður aðgerðir gegn fyrirtækinu Nord Stream 2 AG og forstjóra þess Matthias Warnig, fyrrverandi austurþýskum njósna- foringja, vini Pútins. Lavrov tók þessu fagnandi og einnig Heiko Maas, utanríkis- ráðherra Þýskalands, sem sagði ákvörðunina til marks um að Þjóð- verjar væru mikilvægir samstarfs- aðilar Bandaríkjamanna og þeim mætti treysta í framtíðinni. Nord Stream 2 gasleiðslan er á botni Eystrasalts og tengir Vyborg í Rússlandi og Greifswald í Þýska- landi. Lagningu hennar er næstum lokið (95%) en harðar refsiaðgerðir Trump-stjórnarinnar, sem tóku gildi 19. janúar 2021, daginn fyrir forseta- skiptin, settu lokaframkvæmdum við leiðsluna skorður. Enn eru í gildi refsiaðgerðir gegn fjórum rúss- neskum skipum. Leiðslan er deilumál til margra ára. Utan Rússlands og stjórn- arflokkanna í Þýskalandi á gasleiðsl- an fáa málsvara. Joe Biden, Antony Blinken, báðir flokkar á Bandaríkja- þingi, ESB-þingið og framkvæmda- stjórn ESB hafa lýst andstöðu og efasemdum um réttmæti þess að leiðslan sé lögð. Nú fyrr í maí sagði Blinken við BBC: „Við teljum gasleiðsluna slæma hugmynd. Hún þjónar hagsmunum Rússa og grefur undan hagsmunum Evrópumanna og okkar eigin. Hún gengur í raun þvert á grundvallar- sjónarmiðin sem ESB hefur kynnt að því er varðar orkuöryggi og að forðast beri að verða of háður ein- hverri annarri þjóð, í þessu tilviki á þetta við um Rússa.“ Bandaríski diplómatinn og blaða- maðurinn Daniel Benjamin, forstjóri American Academy í Berlín, sagði nýlega á vefsíðunni Politico: „Það kann að vera fyllilega réttmætt að refsa Rússum en það skiptir ekki máli hve miklu tjóni ný bylgja refs- inga kann að valda Rússum, það tjón verður ávallt hlutfallslega minna en skaðinn á tvíhliða samskiptum Bandaríkjamanna og Þjóðverja á raunverulega viðkvæmu augna- bliki.“ Donald Trump deildi hart á An- gelu Merkel og stjórn hennar, ekki aðeins vegna samningsins um Nord Stream 2 heldur einnig vegna fram- lags Þjóðverja til NATO, þeir ættu að leggja meira fé af mörkum til varnarmála. Joe Biden velur annan kost sem hann telur að bæti and- rúmsloft innan NATO, sporni gegn viðleitni Rússa til að hlutast til um innri málefni bandalagsins og styrki samstöðu gegn þrýstingi Kínverja á Evrópuríki. Daniel Benjamin lýkur grein sinni á þessum orðum: „Hver er tilgangurinn með því að styðja átak Bandaríkjamanna til að hafa hemil á slæmri hegðun Kínverja ef ekki er unnt að treysta Banda- ríkjamönnum til að líta á Atlants- hafsbandalagið sem tvístefnu- vettvang?“ Norðurslóðir setja sífellt meiri svip á þessa stóru mynd vegna þess að Pútin og stjórn hans líta á hags- muni sína í norðri sem lykilinn að áhrifum á alþjóðavettvangi. Rúss- neskt gas selt um leiðslu til Þýska- lands kemur að norðan og án mark- aðar fyrir það þrengdi fjárhagslega að Kremlverjum. Blinken rétti Lavrov gullmola í Hörpu. Biden og Blinken hafa meiri trú á friðmælum en stóryrðum í anda Trumps og Pompeos. Viðskipti Þjóð- verja og Rússa eru reist á tvístefnu. Þjóðverjar geta hert að Rússum með því að skrúfa fyrir gasið í leiðslunni. Mikil hætta felst í að kasta trúnni á frjáls viðskipti og áhrif þeirra í þágu friðar. Eftir Björn Bjarnason »Undir íslenskri for- ystu var skútunni siglt á kyrrari sjó og lögð áhersla á að halda starfinu innan marka samþykkta ráðsins. Björn Bjarnason Höfundur er fv. ráðherra. Gullmoli Blinkens til Lavrovs

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.