Morgunblaðið - 28.05.2021, Page 41

Morgunblaðið - 28.05.2021, Page 41
Eva Ruza sér um að flytja hlustendum og lesendum K100 nýjustu fréttirnar frá fræga fólkinu undir liðn- um Stjörnufréttir Evu Ruzu. Þar deilir hún öllu því nýjasta úr heimi stjarnanna í Hollywood sem við þekkjum öll. „Ég elska að halda mörgum boltum á lofti og þeg- ar ég er ekki uppi á sviði að skemmta eða með andlitið á kafi í blómum, en ég vinn í blómabúðinni Ísblómum, þá er ég með nefið inni á heim- ilum hinna ríku og frægu. Ég hef aldrei vitað nákvæmlega hvað það er sem veldur því að ég sogast svona svakalega inn í þennan heim en þessi frægafólkssýki hefur í raun fylgt mér síðan ég var unglingur. Ég þráði ekk- ert meira en að verða fræg þegar ég var yngri og elskaði að fylgjast með frægum. Veit ekki alveg hvað það segir um mig,“ segir Eva og hlær. Eva segir að móðir hennar hafi alltaf vonað að hún yrði sálfræðingur þegar hún yrði stór. „En ég mölvaði þann draum ansi harkalega verð ég að segja. Fór eins langt frá því og mögulegt er. Það mætti svo líka segja að fylgjendur mínir á Instagram (@evaruza) séu í raun á hliðarvakt með mér. Ef eitthvað stórt gerist og það er ekki komið strax inn hjá mér, þá byrja þau að pikka í mig og senda mér hlekki. Algjörlega geggjað. Þegar Siggi Gunnars, útvarpsstjóri K100, heyrði svo í mér síðastliðið haust og vildi keyra af stað með Stjörnufréttir alla virka daga hugsaði ég: „Loksins er ég orðin virðuleg fréttakona á flott- ustu útvarpsstöðinni,“ og það er mitt hlutverk á K100. Dæla út fréttum úr mínum heimi. Minn heimur er ævintýralegur, með öllu slúðrinu, ást- arsögunum, stundum bölvuðu rugli en alltaf dassi af glimmeri,“ segir hún. Fylgstu með Stjörnufréttum Evu Ruzu alla virka daga á útvarpsstöðinni K100 og á K100.is. Eva Ruza og fræga fólkið í Hollywood Eva Ruza og stjörnurnar Ég þráði ekkert meira en að verða fræg þegar ég var yngri Kim Kardashian Eva elskar að fylgjast með uppáhalds- fjölskyldu sinni The Kardashi- ans. Ryan Gosling Eva hefur reglu- lega fjallað um leikarann og hjartaknús- arann Ryan. Britney Spears Söngkonan fræga sem allir og Eva fylgjast spenntir með. Justin Bieber Söngvarinn vinsæli sem Eva fylgist grannt með. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 2021

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.