Morgunblaðið - 28.05.2021, Side 50

Morgunblaðið - 28.05.2021, Side 50
50 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 2021 60 ÁRA Tvíburabræðurnir Örvar og Ævar Aðalsteinssynir eru fæddir og uppaldir í Reykjavík en eiga ættir að rekja í Árnes- og Rangárvallasýslur. Örvar lærði trésmíði en hefur starfað sem slökkviliðs- og sjúkraflutnings- maður í um 30 ár. Nú starfar hann í eldvarnaeftirliti Slökkviliðs höfuð- borgarsvæðisins. Ævar nam múr- smíði og starfaði við það með hléum uns hann hóf háskólanám og lauk námi í tómstunda- og félagsmálafræði. Ævar starfar nú í Miðstöð útivistar og útináms hjá Reykjavíkurborg. Auk þessara starfa hafa bræðurnir starfað sem gönguleiðsögumenn, sem tengist áratuga útivistaráhuga þeirra. Báðir eiga skátastarf að baki, hjálpar- sveitarstörf og hafa kennt skyndi- hjálp, ferða- og fjallamennsku. Tónlist hefur átt ríkan þátt í lífi þeirra bræðra. Frá unglingsárum hef- ur gítar fylgt Ævari og Örvar spilar á bassa. Saman voru þeir ásamt tveimur öðrum bræðrum í þjóðlaga- og vísna- hljómsveitinni Bræðrabandinu. Örvar spilaði síðar með hljómsveitinni Hálft í hvoru sem var um tíma mjög vinsæl og fór víða. Ævar bjó ásamt fjölskyldu sinni í Svíþjóð um nokkurra ára skeið en þegar hann kom heim tóku þeir bræð- ur upp þráðinn í spilamennskunni og komu þá einnig aftur að skátastarfi í Mosfellsbæ þar sem þeir eru báðir bú- settir. Einnig hafa þeir starfað mikið saman í útivist og ferðamennsku, sér- staklega eftir að þeir luku gönguleið- sögumannanámi 2010. Þeir hafa farið með hópa um hálendi Íslands, gengið á fjöll og jökla og leitt hópa í bakpoka- ferðum um óbyggðir, gjarnan fyrir Ferðafélag Íslands. Örvar á þrjú börn, Birki, f. 1988, Drífu, f. 1990, og Kára, f. 1997. Örvar er giftur Þóru Björk Hjartardóttur, málfræðingi og kennara við Háskóla Íslands. Ævar á tvær dætur, Ingveldi, f. 1989, og Eyrúnu, f. 1992. Ævar er gift- ur Vigdísi Pétursdóttur, lækni á Land- spítala – háskólasjúkrahúsi. Foreldrar þeirra, sem bæði eru lát- in, eru Helga Lovísa Bjargmunds- dóttir húsmóðir og Aðalsteinn Sig- urðsson múrarameistari. Í múrverkinu hjá pabba sínum byrjuðu bræðurnir sitt góða samstarf sem enst hefur alla tíð og ekki sér fyrir endann á. Örvar og Ævar Aðalsteinssynir Bræðurnir Ævar og Örvar. Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Láttu það vera að elta uppi einhverja hluti sem færa þér enga innri gleði. Reyndu að horfast í augu við staðreyndir mála. 20. apríl - 20. maí + Naut Allt virðist leika í höndunum á þér og þú nýtur aðdáunar annarra. Vinnan göfgar manninn en það er fleira sem gefur lífinu gildi. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Valdatafl við yfirboðara er líklegra en ekki í dag. Breytingar sem þú leggur til mæta mikill andstöðu. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Nú þarft þú að beita öllum þínum persónutöfrum þegar þú fylgir úr hlaði til- lögum þínum um breytt og betra skipulag. Taktu mark á hugboðum sem þú færð. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Fólk er einstaklega móttækilegt fyrir þér núna. Það er lífsnauðsyn að eiga trún- aðarvin til þess að deila með gleði og sorg. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Það er allt í lagi að hlusta á ráð ann- arra og hafa að leiðarljósi ef þú hlustar fyrst og fremst á sjálfan þig. Vertu opinn og óhræddur við að takast á við nýja hluti. 23. sept. - 22. okt. k Vog Þú ert nú fullur orku til að takast á við alla hluti. Láttu ekki smáatriðin villa þér sýn varðandi heildarlausn mála. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Þú þarft að endurskipuleggja starf þitt svo það gangi ekki jafnnærri heilsu þinni og nú er. Taktu andbyr með brosi á vör, því þinn er sigurinn, þegar upp verður stað- ið. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Vinir og vandamenn sækjast eftir tíma þínum og þú átt að láta þeim hann í té eftir fremsta megni. Leggðu þitt af mörkum til að gera andrúmsloftið betra. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Það er hætt við að yfirmenn þínir, foreldrar eða nánir vinir mistúlki gerðir þínar í dag. Láttu ekki áhyggjur af framvindu mála á vinnustað sliga þig því þótt syrti í álinn birtir öll él upp um síðir. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Þú átt í innri baráttu og veist varla í hvorn fótinn þú átt að stíga. En veistu, líðan þín mun batna eftir fáeina daga, jafnvel þótt ekkert breytist. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Forðastu þær aðstæður sem valda þér álagi því þú ert ekki tilbúinn til að takast á við slíkt núna. Hikaðu ekki við að breyta áætlunum þínum vegna þessa. Sigurður tók ásamt öðrum þátt í að skrifa bókina Snemmtæk íhlut- un í málörvun 2-3 ára barna sem einstaklinga, bæði hvað varðar veikindi og annað. Oft er mesta þakklætið þar.“ S igurður Sigurður Sigur- jónsson er fæddur 28. maí 1971 á sjúkrahúsinu á Akranesi. „Ég ólst upp við sjóinn og klettana á Akranesi við klettabrölt, fótbolta og útileiki við Esjubraut- ina og síðar á unglingsárum tóku skátastörf og Hjálparsveit skáta, fjallaferðir og klifur við uppeld- inu.“ Sigurður er kominn aftur í heimahagana og hefur búið í Hval- fjarðarsveit síðastliðin 18 ár með stuttu stoppi á Akranesi. Sigurður gekk í Brekkubæjar- skóla á Akranesi og Fjölbrauta- skóla Vesturlands á Akranesi, stundaði þar nám í rafeindavirkjun og hélt því áfram í Iðnskólanum í Reykjavík. Hann skipti síðan al- gjörlega um kúrs og fór í Fóstur- skóla Íslands og útskrifaðist frá Háskóla Íslands sem leikskóla- kennari B.Ed. árið 1999. „Ég hætti í náminu í Iðnskólanum á loka- sprettinum, flutti í Búðardal og fór að kenna í tónlistarskólanum þar. Þá fæ ég köllunina um að starfa við kennslu og með börnum og sæki í framhaldinu um inngöngu í Fósturskólann.“ Eftir nám starfaði Sigurður sem leikskólakennari við leikskólann Dal og Kjarrið í Kópavogi og fór svo út í stjórnun. Árið 2003 tók hann við sem leikskólastjóri leik- skólans Skýjaborgar í Hvalfjarð- arsveit til 2011. Hann var síðan að- stoðarleikskólastjóri og sérkennslustjóri við leikskólann Akrasel á Akranesi. Árið 2016 tók hann við leikskólanum Andabæ á Hvanneyri áður en hann varð for- maður Félags stjórnenda leikskóla, sem er hans starf í dag. Áður hafði hann verið varaformaður félagsins og tekið þátt í störfum stéttar- félagsins nánast frá því að hann gekk í Félag stjórnenda leikskóla. „Nærtækast er að við gerðum kjarasamning í júlí fyrir ári. Það er stærsta verkefnið,“ segir Sig- urður þegar hann er spurður út í starfið. „En það er margt annað sem maður er stoltur af. Flest er þetta trúnaðarmál því maður er líka að berjast fyrir hagsmunum Akraneskaupstaður veitti þeim viðurkenningu fyrir. Hann hefur einnig fengið Menningarverðlaun Akraness 2016 með vinum sínum í Club 71 en árgangur 1971 á Akra- nesi hefur haldið hópinn og eflist með hverju árinu. „Árgangurinn kom af stað þorrablóti Akraness, stendur fyrir brekkusöng á Írsk- um dögum ásamt fleiri viðburðum til að efla bæinn okkar og til að safna peningum til góðgerðar- mála.“ Sigurður hefur tekið þátt í upp- setningum á leikritum hjá áhuga- mannaleikfélögum í Fjölbrauta- skóla Vesturlands Akranesi, Búðardal og í Hvalfjarðarsveit, bæði sem tæknimaður og leikari. Hann lék m.a. aðalhlutverkið í Ef væri ég gullfiskur eftir Árna Ib- sen með Leikfélagi Hvalfjarðar- sveitar. „Ég hef ekki haft tíma til að taka þátt í þessu starfi lengi, en áhuginn hefur alltaf verið til staðar eða frá því að ég var í Sigurður Sigurjónsson, formaður Félags stjórnenda leikskóla – 50 ára Í Skógræktinni á Akranesi Sigurður í fremstu röð, lengst til vinstri, ásamt nokkrum félögum úr Club71. Myndin var tekin um síðustu helgi og með félögunum er seiðkonan Sigríður Sólarljós. Úr rafeindavirkjun í Fósturskóla Formaðurinn Sigurður hefur lengi tekið þátt í starfi Félags stjórnenda leikskóla og var kosinn formaður árið 2018. Til hamingju með daginn www.danco.is Heildsöludreifing Fyrirtæki og verslanir Vinsælu leikföngin fást hjá okkur Kynntu þér úrval á vefverslun www.danco.is Hlaupahjól My First Frozen Hlaupahjól My First Paw Patrol Squeeze boltar ColorChang 90 mm Plop up fidget JUMBO - Rainbow (12/72) Dimple Pimble-fidget leikur 14x13 cm Fidget-Hand Snapper Displ 36 Puffer-Caterpillar 26 cm 4 teg. Disp 12 Woof Strech-Hundur 4 lit Disp 12 Pufferz-Superglitter Bolti 12 cm Displ 12 Dimple Pimble Unicorn 17x15 cm Stressbolti XXL 10 cm 6 teg. Disp-6 Bolti MEGA BALL 6 litir 45 cm (10/60)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.