Morgunblaðið - 28.05.2021, Page 51
DÆGRADVÖL 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 2021
Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com, kajaorganic@gmail.com
Sölustaðir:
Hagkaup, Nettó, Melabúð, Fjarðarkaup, Heilsuhúsið, Frú Lauga, Matarbúðin,
Brauðhúsið, Fiskkompaní, Mamma veit best og Matarbúr Kaju Akranes
„ERTU BÚIN AÐ HEYRA UM ÞESSA
LJÓSHÆRÐU SEM VANN EINU SINNI Í
BANKANUM …“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... prívat!
OG NÚ „VARÚLFURINN
TREÐUR Í SIG“
HANNÆTTI AÐ
NOTA TANNÞRÁÐ
HEYRÐU! ÞÚ ERT MEÐ
EITTHVAÐ FAST Í
TÖNNUNUM
ER
ÞAÐ?
ÞETTA ER LÍKLEGA BITI AF
GRANDALAUSUM ÞORPSBÚA
ÉG VONA AÐ
NAUTAKJÖTIÐ
YKKAR SÉ EKKI OF
SEIGT!
MÉR ÞYKIR
ÓLÍKLEGT AÐ
SVO SÉ, HERRA
MINN!
KOKKURINN ER FYRRVERANDI
GLÍMUMEISTARI!
„ÞÚ ERT AÐ SÓA TÍMA ÞÍNUM. HANN MUN
EKKI STÖKKVA – OG HANN MUN ALDREI
FARA FRÁ KONUNNI SINNI.“
UPPLÝSINGAR
EKK
I
TRU
FLA
skátunum. Skátastarfið er eitt
besta uppeldistæki sem til er. Þar
fær maður nasaþefinn af öllu,
bæði að taka þátt í hópum og
stýra hópum.“
Áhugamál Sigurðar eru margs-
konar. „Vinnan tekur mikið pláss í
mínu lífi og væri ekki hægt að
sinna henni nema hafa til þess
vilja og áhuga. Helstu áhugamálin
utan vinnu eru svona klassísk
miðaldra áhugamál, golf, fjalla-
hjólreiðar, skíði og nýlega göngu-
skíði og svo er ég hljóðfæra-
eigandi og glamra á gítar, ukulele
og banjó fyrir sjálfan mig í frítíma
og var í hljómsveitum hér áður
fyrr í gamla daga.“
Fjölskylda
Maki Sigurðar er Jónína
Hauksdóttir, f. 22.4. 1969, leik-
skólastjóri. Foreldrar hennar eru
hjónin Haukur Þorsteinsson, f.
14.2. 1943, vélvirki, og Aðalheiður
Gísladóttir, f. 22.8. 1945, hús-
móðir. Þau eru búsett á Akureyri.
Fyrri kona Sigurðar er Ása
Hólmarsdóttir, f. 6.9. 1969, heil-
brigðisfulltrúi.
Börn Sigurðar og Ásu eru 1)
Halldór Logi, f. 18.3. 1995, býr í
Reykjavík; 2) Arnór Hugi, f. 18.8.
1998, matreiðslumaður, býr í
Kópavogi; 3) Sigurjón Hrafn, f.
7.6. 2000, býr í Hvalfjarðarsveit;
4) Hrefna Rún, f. 26.3. 2007, býr í
Hvalfjarðarsveit.
Systkini Sigurðar eru Maríus
Sigurjónsson, f. 1.7. 1970, flug-
virki í Þýskalandi, og Jónella Sig-
urjónsdóttir, f. 13.2. 1974, kenn-
ari, býr í Hvalfjarðarsveit.
Foreldrar Sigurðar eru hjónin
Sigurjón Sigurðsson, f. 13.3. 1947,
vélvirki, og Guðrún Adda Maríus-
dóttir, f. 28.2. 1948, sjúkraliði og
fyrrverandi launafulltrúi. Þau eru
búsett í Litla-Lambhagalandi í
Hvalfjarðarsveit.
Sigurður
Sigurjónsson
Elísabet Gísladóttir
húsfreyja á Iðunnarstöðum
Magnús Gunnlaugsson
bóndi á Iðunnarstöðum í
Lundarreykjadal
Jónína Elísabet Magnúsdóttir
húsfreyja á Akranesi
Sigurður Gíslason
verkstjóri á Akranesi
Sigurjón Sigurðsson
vélvirki í Litla-Lambhagalandi
Þóra Sigurðardóttir
húsfreyja í Lambhaga
Gísli Gíslason
bóndi og kennari í Lambhaga
Steinunn Magnúsdóttir
húsfreyja í Borgarnesi og Reykjavík
Otúel Sólmundur Sigurðsson
verslunarmaður í Borgarnesi
og Reykjavík
Þórdís Sólmundardóttir
fisksali á Akranesi og í Kópavogi
Maríus Theodór Arthúrsson
sjómaður, vörubílstjóri og fisksali
á Akranesi og í Kópavogi
Guðrún Jónsdóttir
húsfreyja á Geirastöðum
Arthúr Eyjólfsson
sjómaður á Geirastöðum á Akranesi
Úr frændgarði Sigurðar Sigurjónssonar
Guðrún Adda Maríusdóttir
sjúkraliði og fv. launafulltrúi í Litla-
Lambhagalandi í Hvalfjarðarsveit
Guðmundur Sveinsson á Sauð-árkróki yrkir á fallegu sum-
arkvöldi í Skagafirði:
Hlédræg verður hlíðin fríð
hljóð þótt Feykir vaki.
Í dvala fellur dvergasmíð
dvelur sól að baki.
Ingólfur Ómar gaukaði að mér
þessari vísu að gamni sínu:
Lífs um sviðið léttur fer
læt ei deigan síga.
Hvað sem kann að mæta mér
mun ég yfirstíga.
Á Boðnarmiði liggur vel á mönn-
um lausir við grímuna! Gunnar
Hólm Hjálmarsson yrkir:
Ásjóna hans býsna ber
brást við illa kallinn.
Berskjaldaður alveg er
enda gríman fallin.
Gunnar J. Straumland bætir við:
Er grímuskyldan var búin í bráð
birtist minn forljóti kjaftur
þá fékk ég í sannleika sárum það ráð
að setja upp grímuna aftur
„Sumarið vonandi komið,“ segir
Broddi B. Bjarnason:
Sólbaðsveður og sunnanátt klár.
sælunnar tíð boða langtímaspár.
Tíðindi dagsins teljast nú helst
tólf stiga hiti á Héraði dvelst.
Jón Atli Játvarðsson tekur undir
og segir: „Jú víst, ég held að sum-
arið sé loksins komið“:
Hitinn sleikir þrútinn þegn
og þjakaðan af fórnum.
Sólin gróf upp geislaregn
sem gott er enn með bjórnum.
Dagbjartur Dagbjartsson segir
að þessar vísur eftir Jósep Þorvald
Jósepsson sem bjó í Sveinatungu og
Hafþórsstöðum og víðar mættu al-
veg vera þekktari:
Gamla Rauð ég muna má,
mér hann skemmti að vonum.
Skyldi ég aldrei aftur fá
annan líkan honum?
Er hann rennur gróna grund
geislar streyma hlýju
þá ég löngu liðna stund
lifi upp að nýju.
Og Ingólfur Ómar Ármannsson
er í sólskinsskapi:
Lífið iðar, grasið grær
glóbjart sviðið ljómar.
Lindin niðar lygn og tær
lóukliður ómar.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Gríman burtu og
sumarið loksins komið