Morgunblaðið - 28.05.2021, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 28.05.2021, Qupperneq 56
Bassi Kristinn Sigmundsson. Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Annað árið í röð hefur kórónu- veirufaraldurinn áhrif á tímasetn- ingu hátíðarinnar,“ segir Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari, sem í 24. sinn stendur fyrir tónlistar- hátíðinni Músík í Mývatnssveit nú um helgina. Frá því hátíðin hóf göngu sína 1998 hefur hún verið haldin um bænadagana, en í fyrra var hún haldin að sumri til og í ár er hún haldin í maí. Þannig verða fyrri tónleikar ársins haldnir í Reykjahlíðarkirkju í kvöld, föstu- dag, kl. 21 og seinni tónleikarnir í Skjólbrekku annað kvöld, laugar- dag, kl. 20. „Nýjustu fréttir um afléttingu samkomutakmarkana eru góðar fréttir sem gleðja okkur,“ segir Laufey og tekur fram að von sé á töluverðum fjölda fólks í Mývatns- sveit um helgina þar sem fram fer Mývatnsmaraþon. „Vonandi geta hlaupararnir líka komið og notið tónleikanna,“ segir Laufey. Hleypur glöð í skarðið Þegar blaðamaður náði í Lauf- eyju fyrr í vikunni var hún að leggja í hann norður. „Í morgun kom í ljós að Diddú, Sigrún Hjálm- týsdóttir, getur ekki verið með okkur vegna veikinda og þá voru góð ráð dýr,“ segir Laufey og tek- ur fram að hún hafi áður þurft að redda afleysingu á leið sinni norð- ur í land. „Ég hafði samband við Þóru Einarsdóttur sópran sem hleypur glöð í skarðið. Það er stór- kostlegt að eiga svona gott fólk að,“ segir Laufey sem sjálf kemur fram á hátíðinni. Auk þeirra koma fram bassasöngvarinn Kristinn Sigmundsson og píanóleikarinn Peter Máté. „Það er mikið ánægju- efni fyrir mig að fá svona glæsi- lega flytjendur til að koma fram með mér.“ Í venjulegu ári bæri föstudags- tónleikana upp á föstudaginn langa, en svo er ekki í ár. „Sem þýðir að við verðum ekki í eins hátíðlegum stellingum og vana- lega,“ segir Laufey þegar hún er spurð um efnisskrána. Í kvöld mun meðal annars hljóma fiðlusónata eftir Johann Sebastian Bach auk þess sem flutt verður tónlist eftir Henry Purcell, Joseph Haydn og Wolfgang Amadeus Mozart. Á efn- isskrá tónleikanna á morgun er fiðlusónata eftir Ludwig van Beethoven auk þess sem fluttar verða óperuaríur, dúettar og íslensk sönglög. Þakkar góðar viðtökur Spurð hvort reynslan í kófinu verði mögulega til þess að hátíðin verði í framhaldinu á öðrum tíma en um páskana svarar Laufey því neitandi. „Í venjulegu árferði er svo mikið af ferðafólki í sveitinni í kringum páskana. Ástæða þess að ég fór af stað með hátíðina á sínum tíma var að mér fannst vanta mót- vægi við þá útivistarafþreyingu sem í boði er um páskana. Mark- mið mitt hefur líka alltaf verið að bjóða upp á afþreyingu sem Mývetningar geta notið, en reynsl- an hefur sýnt að sumarið er svo mikill annatími að ég næ betur til heimamanna um páskana. Fólkið í sveitinni, sveitarstjórnin og ýmis ferðaþjónustufyrirtæki hafa í gegnum tíðina tekið á móti okkur af miklum rausnarskap sem ber að þakka,“ segir Laufey sem reiknar því með að hátíðin Músík í Mý- vatnssveit verði haldin um páskana 2022. „Á næsta ári verður hátíðin haldin í 25. sinn. Besta afmælis- gjöfin væri ef hægt yrði að tryggja fjárhagslegt öryggi verkefnisins til frambúðar,“ segir Laufey að lok- um. Þess má geta að miðar eru seldir við innganginn og aðgengi er fyrir hjólastóla á báðum tón- leikastöðum. „Stórkostlegt að eiga svona gott fólk að“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Eftirvænting Peter Máté og Laufey Sigurðardóttir skömmu fyrir brottför. Sópran Þóra Einarsdóttir. - Tónlistarhátíðin Músík í Mývatnssveit haldin í 24. sinn - Tónleikar í Reykjahlíðarkirkju og Skjólbrekku - Á efnisskránni er tónlist eftir Bach, Beethoven, Purcell, Haydn og Mozart MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 2021 Þ egar gróðurinn fer að taka við sér, grasið að vaxa og runnar og tré fara að skipta litum, þá má segja að fyrrverandi heimili Ásmundar Sveinssonar, Ásmundarsafn, sómi sér best. Með uppsprettu græna lit- arins ljómar þessi hvíta bygging enn frekar og stíleinkenni hennar skerpast í sólinni. Á meðan ég gekk að safninu í gegnum högg- myndagarðinn velti ég því fyrir mér hvort einhver verk sýning- arinnar Ef lýsa ætti myrkva væru sýnileg utan frá, sem reyndist vera. Í bogadregnum gluggum Skemm- unnar má sjá glitta í regnbogalitað verk listakonunnar Sirru Sigrúnar Sigurðardóttur, „Hvelfingu“ (2021), með skemmtilegum hætti. Á undanförnum mánuðum hafa farið fram viðgerðir á Ásmundar- safni og þegar ég steig inn í safnið mátti enn finna málningarlykt í loftinu; hinn hvíti einkennislitur safnsins ljómaði sem aldrei fyrr að utan sem innan. Ásmundur Sveins- son var alþýðulistamaður í þeim skilningi að viðfangsefni hans sem og framsetning verkanna voru hugsuð fyrir almenning til að lesa og njóta. Ásmundur gekk meira að segja svo langt að segja að til- gangur listarinnar væri lítill ef þjóðin gæti ekki notið hennar. Þau verk hans sem valin hafa verið af listakonunni Sirru og sýning- arstjóranum Ingibjörgu Sigurjóns- dóttur gefa ágæta mynd af ferli listamannsins, hugrenningum hans og tilvistarlegum áherslum. Í mjög svo einfölduðu máli endurspegla verk sýningarinnar annars vegar fyrri hluta ferils Ásmundar, til að mynda með fígúratívum högg- myndum með einkennandi ávölum línum og sterkri formgerð sem sýna litasnauðan en sterkan naív- ískan stíl. Litlu er ofaukið í verkum Ásmundar en augnablik viðfangs- efnisins kemst vel til skila. „Veður- spámaðurinn“ (1935) og „Himinn og jörð“ (1935) sýna einmitt þessi efniseinkenni listamannsins ágæt- lega. En það má einnig sjá nýrri verk Ásmundar á sýningunni, óhlutbundna málmskúlptúra sem eiga í ágætu samtali við skissur beggja, hans og Sirru, sem og önn- ur hennar verk þar og hugrenn- ingatengsl. Það sem sameinar verk Ásmundar og Sirru Sigrúnar eru athuganir listamannanna á grunn- einingum mannlegrar tilveru, alls þess sem á sér stað á milli himins og jarðar. Þannig eiga verk Sirru í einlægu samtali við skúlptúrverk Ásmundar og ekki síst safnbygg- inguna sjálfa. Samtalið gengur upp Ef safnið er skoðað utan frá þá ber það mörg einkenni stjörnuathug- unarstöðvar, má þá nefna Kúlu- húsið svokallaða, bogadregnu gluggaríku Skemmuna, og flötu hálfpíramídalaga þökin sem mynda í sjálfu sér ágæta útsýnispalla. Hugmynd Sirru að baki verkinu „Hvelfing“ sem myndar þunga- miðju sýningarinnar má rekja til sólúrs og rímar því ágætlega við þessar hugmyndir tengdar him- ingeiminum. Sólúr þetta er þó ein- stakt og gefur ekki hugmynd um nákvæma tímasetningu sólarhrings- ins heldur myndar litaskin verksins áminningu um að njóta augnabliks- ins eins og það kemur fyrir í þess- um töluðum orðum. Í víðu sam- hengi eru verk Sirru á sýningunni undir áhrifum hugmyndalistar en eru þó aðgengileg, gáskafull og tengja hvíta rýmið lit og mjúkum ljóma. Að mörgu leyti gengur sam- tal þessara tveggja listamanna vel upp, einmitt vegna þess að vísun Ásmundar til naívisma og ekki síst natúralisma passar vel við litanotk- un og viðfangsefni Sirru. En í verk- um sínum hefur Sirra ýmist skoðað ljós, skugga og samspil lita sem og hreyfingu mannsins og viðbrögð hans við eigin umhverfi, bæði manngerðu og náttúrulegu. Hvort sem litið er til hinna gegnsæju lit- ríku plexiglers-stöpla, sem verk Ás- mundar eru á, eða litaskinsins sem endurkastast í gegnum rúður safns- ins á nærliggjandi veggi má segja að litaskin verksins „Hvelfing“ verði hvatning til að skerpa á eft- irtektinni og njóta augnabliksins meðan birtan varir. Hugrenningar Sirru um form- notkun Ásmundar, og sameig- inlegur áhugi þeirra á forna Ólympíuleikvanginum í Aþenu, eru skemmtilega fram settar þó svo á stundum renni hugmyndaheimur þessara tveggja listamanna saman. Þessi samsuða kemur þó ekki að sök enda þekkja hugmyndaheimar í sjálfu sér hvorki tíma né rúm. Sýn- ingin er natúralísk og sýnir rann- sóknarvettvang tveggja ólíkra lista- manna sem starfa með um hundrað ára millibili. Hvoru í sínu lagi er þeim Ásmundi og Sirru tilvist mannsins hugleikin, smæð hans og tengsl við bæði menn og náttúru. Þau eru mörg augnablikin á milli himins og jarðar sem gefa má gaum; 20. maí var afmælisdagur Ásmundar, 26. maí var tunglmyrkvi og á tímabilinu 13. maí til 3. októ- ber stendur sýning þeirra Ásmund- ar og Sirru yfir. Augnablik sem er þess virði að doka við og taka eftir. Augnablik á milli himins og jarðar Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Regnbogalitir Í bogadregnum gluggum Skemmunnar má sjá glitta í regnbogalitað verk Sirru, „Hvelfingu“. Ásmundarsafn Ef lýsa ætti myrkva – Verk eftir Sirru Sigrúnu Sigurðardóttur og Ásmund Sveinsson bbbnn Ásmundarsafn við Sigtún. Sýningarstjóri: Ingibjörg Sigurjóns- dóttir. Opið er alla daga kl. 10 til 17. KARINA HANNEY MYNDLIST Samtal Verk Sirru eiga í einlægu samtali við skúlptúrverk Ásmundar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.