Morgunblaðið - 28.05.2021, Page 60

Morgunblaðið - 28.05.2021, Page 60
„Ný íslensk tónlist“ er yfirskrift árlegra tónleika sem Stórsveit Reykjavíkur heldur í Flóa Hörpu í kvöld kl. 20. Þar verða níu verk frumflutt undir stjórn Samúels J. Samúelssonar. Höfundarnir eru Ari Bragi Kárason, Elvar Bragi Kristjónsson, Guðmundur Pétursson, Hafdís Bjarnadóttir, Kjartan Valdemarsson, Samúel J. Samúelsson, Stefán S. Stefánsson, Úlfar Ingi Haralds- son og Úlfur Eldjárn. „Þetta er spennandi, fjölbreytt og kraftmikil efnisskrá þar sem gefur að heyra það fersk- asta í íslenskri stórsveitatónlist,“ segir í tilkynningu. Stórsveit Reykjavíkur í Flóa Hörpu FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 148. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Breiðablik vann ótrúlegan sigur á Val, 7:3, þegar þessi tvö sterkustu kvennalið landsins í fótbolta undanfarin ár mættust á Hlíðarenda í Pepsi Max-deild kvenna í gærkvöld. Íslandsmeistararnir úr Kópavogi komust í 7:1 um miðjan síðari hálfleik og Valskonur máttu þola sinn fyrsta ósigur á tímabilinu. »53 Stórsigur Breiðabliks á Hlíðarenda ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Um 20 nemendur hittust í vikunni þar sem áður var Gagnfræðaskólinn við Lindargötu en nú Tónmennta- skóli Reykjavíkur. Tilefnið var að þeir útskrifuðust úr skólanum fyrir um 60 árum og héldu á vit annarra ævintýra. „Við komum saman á 30 ára afmælinu og því var tími til kom- inn að endurtaka leikinn,“ segir Trausti Valsson, skipulagsfræðingur og helsti hvatamaður hittingsins. „Eftir útskrift í Austurbæjarskóla var hópnum skipt á milli Gaggó Aust og Gaggó Lind og við sem komum úr Skuggahverfinu og úr verkamanna- bústöðunum í Holtunum lentum í Gaggó Lind en krakkarnir úr Hlíð- unum í Gaggó Aust,“ rifjar Trausti upp. „Það getur verið skýring á því að aðeins sex úr 100 manna árgangi héldu áfram í menntaskóla, en þá var reyndar minni þörf á bóknáms- menntuðu fólki en nú er. Sennilega hefði verið betra að blanda nem- endum meira saman úr hverfunum.“ Eins og algengt er í skólakerfinu og víðar höfðu sumir sig meira í frammi en aðrir. „Við í A- og B- bekkjunum vorum mest áberandi,“ segir Trausti og bætir við að al- mennt hafi verið góður andi í skól- anum. „Jón Á. Gissurarson skóla- stjóri var með öðlingsfólk með sér, þar á meðal tvo presta og tvo kristniboða.“ Hann segir félagslífið hafa verið sérlega gott og nemendur hafi skarað fram úr á ýmsum svið- um, meðal annars í íþróttum. Ágúst Ögmundsson hafi til dæmis gert garðinn frægan með „mulningsvél“ Vals í handboltanum og í landslið- inu. Fótboltamaðurinn Erlendur Magnússon hafi verið meistari í Fram og Guðmundur Harðarson í Ægi hafi synt hraðar en aðrir, verið Íslandsmeistari og landsliðsþjálfari, svo dæmi séu tekin. Kristinn Vil- helmsson hafi alltaf verið dúx og Þorsteinn Jónsson hafi vakið athygli sem kvikmyndagerðarmaður. „Það hafa allir sögu að segja og við rifj- uðum upp gamlar stundir.“ Líf og fjör Trausti segir að mikið líf og fjör hafi verið í skólanum og kennararnir hafi stundum mátt hafa sig alla við að hemja hópinn. Stundum hafi þurft að kalla á skólastjórann og hann hafi slegið á galsann á sinn hátt, þegar vísa hafi þurft ein- hverjum út. „Jón tók hressilega í nefið, snýtti sér og spurði: Verður þetta ekki allt í lagi? Þannig leysti hann málin. Hann var snillingur.“ Slegið var upp balli fyrir 30 árum en rólegra var yfir öllu að þessu sinni. „Við áttum góða stund í fé- lagsheimili Fóstbræðra 1991 og ball- ið þá var mjög vel lukkað,“ segir Trausti. Hópurinn hafi haldið úti facebooksíðu, deilt þar sögum og myndum, og eftirleikurinn því verið auðveldari. Hann hafi haft samband við Önnu Rún Atladóttur, skóla- stjóra Tónmenntaskólans, hún hafi tekið mjög vel á móti þeim og leitt þau um húsnæðið, sem mjög fáir í hópnum höfðu farið um í 60 ár. „Þetta er að mestu eins og við mundum það, mjög lítið breytt,“ segir Trausti. Síðan hafi þau sest niður í sal í Samfélagshúsinu Vita- torgi og lokið samverunni á veit- ingastað í nágrenninu. „Þetta var mjög vel heppnað.“ Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Sólarmegin Nokkrir nemendur úr útskriftarhópnum 1961 hittust við skólann í tilefni tímamótanna. Þetta verður allt í lagi - Héldu upp á 60 ára útskriftarafmæli í Gaggó Lind Fjör Trausti Valsson rifjar upp góð- ar stundir með Þorsteini Jónssyni. Hjálmar W. Hannesson í baksýn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.