Morgunblaðið - 01.06.2021, Side 28

Morgunblaðið - 01.06.2021, Side 28
TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Enginn einn tónlistarviðburður hér á landi hreyfir meira við mér en Mús- íktilraunir. Af hverju? Jú, þarna er hægt að upplifa framtíðarfólkið okk- ar stíga fyrstu skrefin í tónlistinni. Stressuð, hrædd og kvíðin. En um leið ástríðufull, áræðin, glöð og bara svo til í þetta. Tónlist verður bara ekki hreinni, óspilltari og sannari en á þessum viðburði og það er það sem kveikir í manni. Ár eftir ár. Eftir stórgóða innkomu frá síð- ustu sigurvegurum, Blóðmör, gekk fyrsta sveitin, Piparkorn, inn á svið. Djasspopp sveitarinnar er býsna gott og meðlimir firnaöruggir á sviði, and- inn þægilegur og umlykjandi. Söng- konan Emma er sjarmör. Það var engu að síður dálítið um kraðak í flutningi, aðeins of mikið í gangi á köflum, en heilt yfir er þetta allt á réttri leið eins og ég nefndi í fyrri skrifum. Grafnár mætti einbeitt til leiks og hristi flatneskjuna sem hafði hrjáð hana á undanúrslitakvöldinu af sér með glæsibrag. Góð keyrsla út í gegn og sveitin hitnaði með hverju lagi. Glæsilegt! Ég elska líka útlitið á meðlimum. Bassaleikarinn lítur út eins og stundakennari í rafmagns- verkfræði, söngkonan er harð- kjarnadrottning en gítarleikarinn er eins og meðlimur í „nu-metal“-sveit. Af hverju ekki? Ólafur Kram steig ekki feilspor. Það er sterk og hrífandi ára yfir sveitinni, eitthvert „x“ sem maður skynjaði hjá fyrri sigurvegurum eins og Kolrössu krókríðandi og Mínus. Tónlistin er dásamleg. Fyrsta lagið var dálítið í anda íslensks kammer- popps frá áttunda áratugnum (Melchior, Diabolus in Musica) en grunnurinn samt algert pönk. Glúrin „Lengi lifi íslensk tónlist“ Ljósmyndir/Brynjar Gunnarsson Sigurvegarar Ólafur Kram lék frumlega tónlist á samhentan og hrífandi hátt og var vel að sigrinum komin. lagauppbygging hvar Raincoats og Roxy Music hittast á blindu stefnu- móti. Textarnir frábærir, úthugsaðir og með skemmtilegum hendingum. Spilamennska örugg, samhent og all- ir meðlimir syngjandi. Mest er þó um vert að þetta er svo undarlega langt komið, líkt og Ólafur Kram viti upp á hár hvað hann er að gera. Mikið sem ég hlakka til að fylgjast með þessari sveit næstu misserin. Benedikt söng sitt skammlausa popp af öryggi líkt og í undanúrslit- unum. Helst að lag tvö væri skammt á veg komið. Persónulega fannst mér það verulega flott af honum að taka þátt í keppninni þar sem svona inn- slög hafa hingað til verið sjaldséð. Benedikt er söngvari og upp- tökustjórnandi og tónlistin kom öll úr símanum hans sem er einfaldur vitn- isburður um breytta tíma í tónlist- arsköpun og því hvernig hún er flutt. Benedikt stóð sig vel. Ég setti út á Æsu í fyrri skrifum, taldi mannskap- inn vera til staðar en lagasmíðum væri verulega ábótavant. Því miður færðist lítið í rétta átt þetta kvöldið. Poppsmíðar Æsu eru í senn flatar og broddlausar en það var til að æra óstöðugan að samspil var auk þess undarlega óþétt. Mér sýnist einstakir meðlimir hafa margt til brunns að bera en þessa hljómsveit þarf að end- urhugsa frá grunni. Skemmtilegasta sveit Músík- tilrauna, Eilíf sjálfsfróun, undirstrik- aði það sæmdarheiti með glans. Hall- dór Ívar söngvari er náttúruafl og hann átti salinn með húð og hári allan tímann. Í hlutverki grimmrar kennslukonu í fyrsta laginu og ólukk- ans sjóara í því síðara. Glensið og adrenalínið í botni allan tímann. Það hefði verið gaman að fá enn eitt „at- riðið“ í þriðja laginu, því sem bætt var við, en ég ræð þessu víst ekki. Lagið, „Magasár“, var fínt og tilraun Halldórs til að vera valinn besti gít- arleikari Tilraunanna var meinfyndin eins og allt það sem frá þessum gröll- urum kemur. Dóra og döðlurnar fóru verðskuldað í úrslitin en þessar fimmtán ára gömlu stelpur eru mun lengra komnar en aldurinn gefur til kynna. Sjarmerandi, þéttar og skemmtilegar. Leiðtoginn, Bára Katrín, var með ólíkindum sjálfs- örugg á sviðinu. Var meira eins og harðfullorðin kántrísöngkona frá Texas með áratuga feril á bakinu en íslensk táningsstúlka úr Grafarvog- inum. Stórmerkilegt. Tónlistin mel- ódískt kántrípopp, til þess að gera fínt. Ýmislegt vantar upp á eðlilega en það skrifast einvörðungu á ungan aldur. Hljómsveitin var það óvænt- tasta sem ég barði augum þetta árið. Krownest flutti sitt bylmings- þungarokk af eftirtektarverðu öryggi, alveg eins og í undanúrslit- unum. Það má slípa sjálfar lagasmíð- arnar betur til en spilamennskan er glæsileg, þétt og sannfærandi. Lím- bandið vann með blöndu af tónlist og uppistandi líkt og í undanúrslitunum og ekki skemmti ég mér svo það sé bara sagt hreint út. Lög og skemmti- atriði ófókuseruð og ófyndin og mér leið eins og ég væri utangátta í partíi á meðan vinahópurinn skiptist á einkahúmor. Jengah var sér á parti og ég verð að nefna það hér, ég man bara ekki eftir jafn fjölbreyttum Til- raunum og í ár. Alls kyns stílar og nálganir og mikið sem það var hress- andi. Jengah lék sér með görótta blöndu af síð- og súrkálsrokki, vel krydduð með kvikmyndalegu „ambient“-hugleiðsluflæði (hei, það þarf að skilgreina tónlist!). Naum- hyggjan allsráðandi og meðlimir gerðu þetta vel. Metnaður, hvar t.d. náttúruhljóð sem þeir sönkuðu að sér sjálfir spiluðu rullu. Fógeti er Eli Frost Ara ásamt Arnari Má Víðis- syni. Eli var í fjórum hljómsveitum þetta árið en ljóst að þetta er „alvar- lega“ verkefnið hans. Ástríðuofgnótt- in í undanúrslitunum gaf til kynna að eitthvað væri nú spunnið í pilt en hann var á sama tíma aðeins of óhaminn svo hægt væri að greina það fyllilega. Í úrslitunum var hann mun betri, eins og það væri búið að flysja óðagotið í burtu. Tónlistin er eins lags tíunda áratugar angistarrokk, síað í gegnum samtímarapp (ásamt ýmsu fleiru). Ég heyrði í Weezer og Beck t.a.m. Annað lagið var mjög gott, alvörutilfinningar og flutningur sannfærandi, og síðasta lagið var baráttusöngur tileinkaður kynsegin fólki. Eins og ég segi: þetta er efni- legt og margt þarna þó að það þurfi aðeins að raða hlutunum upp betur. Keikó er poppsveit með geislandi söngkonu í framlínunni, Kolbrúnu Óskarsdóttur. Hún gerir mikið fyrir bandið sem er enn fremur ómótað. Spilamennska enn losaraleg og laga- smíðar bæði mein- og sérkenna- lausar. Frekari æfingar gætu breytt einu og öðru, það glittir alveg í grunn þarna sem hægt væri að byggja á. Eftir að dómnefnd hafði ráðið ráðum sínum var ljóst að Ólafur Kram var sigurvegari, Eilíf sjálfsfró- un hreppti annað sætið og það þriðja féll Grafnári í skaut. Hljómsveit fólksins, sem valin var af áhorfendum með sérstakri símakosningu, var svo Piparkorn. Allar þessar sveitir, og einstakir hljóðfæraleikarar (sjá ramma), fengu svo gnótt verðlauna sem aðstoða við frekari landvinninga á tónlistarsviðinu. Ítarupplýsingar má nálgast á musiktilraunir.is „Lengi lifi íslensk tónlist“ voru lokaorð kynnisins, Ólafs Páls Gunn- arssonar. Til að eitthvað lifi þarf að hlúa að því. Enn og aftur er það morgunljóst að þáttur Músíktilrauna í því ferli er með öllu ómetanlegur. Úrslit Músíktilrauna 2021 fóru fram í Hörpu laugardaginn 29. maí, þar sem tólf hljóm- sveitir öttu kappi. Ákveðin Grafnár keyrði í gegnum lögin sín þrjú af miklu öryggi og það skilaði henni þriðja sætinu. Gleði Eilíf sjálfsfróun landaði öðru sætinu. Haukur Valdimarsson úr Blóðmör afhenti verðlaunin. 28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 2021 MIKIÐ ÚRVAL AF SÆNSKUM MORA HNÍFUM Karl-Johan sveppahnífur Verð kr. 6.980 Tálguhnífar Verð frá kr. 4.360 Skeiðarkrókar Verð frá kr. 6.980 Smiðshnífur/sporjárn Verð kr. 2.160 Hnífsböð Verð frá kr. 1.520 Spónhnífur Verð kr. 6.980 Skátahnífur Verð kr. 6.650 Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is Vinnuhnífar Verð frá kr. 1.195 Flökunarhnífur Verð kr. 5.980 Vefverslun brynja.is Opi ð vi rka dag a fr á 9- 18 lau frá 10-1 6 Söngvari: Halldór Ívar Stefánsson – Eilíf sjálfsfróun Gítarleikari: Ívar Andri Bjarnason – Sleem Bassaleikari: Guðmundur Hermann Lárusson – Krownest Hljómborðsleikari: Magnús Þór Sveinsson – Piparkorn Trommuleikari: Alexandra Rós Norðkvist – Salamandra, The Parasols og Æsa Rafheili: Júlíus Óli Jacobsen – Dopamine Machine Viðurkenning fyirir textagerð á íslensku: Ólafur Kram Aðrir verðlaunahafar MÚSÍKTILRAUNIR 2021

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.