Morgunblaðið - 10.06.2021, Page 52
Allir M E Ð M B L . I S O G H A G K A U Pgrilla
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2021
Tónlist
fyrir sálina
Matur
fyrir líkamann
Aðalstræti 2 | s. 558 0000
Kíktu til okkar
í góðan mat og
notalegt andrúmsloft
Borðapantanir á
www.matarkjallarinn.is
Nýttu ferðagjöfina
hjá okkur
- Það er góð regla að lambakjöt sé búið að ná stofuhita fyrir eldun til að stytta eldunartíma.
Áður en kjöt er eldað, hvort sem er í ofni eða á pönnu, er mikilvægt að krydda það með salti áður en
það er brúnað, við söltun verður það bragðmeira.
- Ef marinera á kjötbita er gott að gera það deginum áður eða fyrr, eftir stærð bitans. Passið upp á
saltmagn í kryddleginum sem hefur mikil áhrif á lit og bragð.
- Áður en kjötbiti er brúnaður er mikilvægt að skera í fituna, en með því er fitunni auðveldað að
bráðna sem gefur kjötinu gott bragð.
- Undantekningarlaust skal hvíla kjöt eftir eldun í 5 til 25 mín., allt eftir stærð bitans. Lambalundir
þurfa að hvíla í 5 mín. en lambalæri þarf allt að 25 mín. Hvíldin minnkar þrýsting í vöðvum þannig að
kjötsafi flæði ekki út og bitinn þorni.
- Þegar elda á lambahrygg sem er frosinn er gott að taka af honum himnu sem umlykur fituhlið
hryggjarins. Þetta er gert þannig að byrjað er í einu horni og himnunni hreinlega flett af.
- Mikilvægt er að vita hvaðan kjötbitinn er af skepnunni og hvort hann henti fyrir þá eldunaraðferð og
rétt sem stendur til að nýta hann í hverju sinni.
Heimild: Íslenskt lambakjöt
Lambaprime er í uppáhaldi hjá mörgum enda einstaklega ljúffengur biti. Hér
er smjörlegið lambaprime grillað eftir kúnstarinnar reglum og útkoman er
hreint frábær. Meðlætið er svo í einfaldari kantinum án þess þó að slegið sé af
gæðakröfunum. Kokteiltómatar og mozzarella ásamt smælki. Flókið þarf það
ekki að vera!
Sérvalið lambaprime með grillsmjöri
smælki með graslauk og steinselju
kokteiltómatar og mozzarella
Sérvalið-hvítlaukssósa
Guru Royal Umami BBQ-sósa
Grillið lampaprime-ið á hvorri hlið í nokkrar mínútur. Reglan með prime er
að það á alls ekki að vera blóðugt. Því er betra að grilla ögn lengur en skem-
ur.
Setjið grillbakkana með tómötum og mozzarella annars vegar og smælkinu
hins vegar á grillið. Mikilvægt er að hrista reglulega bakkann með smælkinu
til að kartöflurnar fái sem jafnasta eldun og séu vel hjúpaðar smjöri.
Penslið kjötið með bbq-sósu.
Þegar mozzarellaosturinn er orðinn bráðinn eru bakkarnir tilbúnir.
Þegar kjötið er tekið af grillinu er nauðsynlegt að leyfa því að hvíla í alla-
vega fimm mínútur. Skerið svo niður í bita og berið fram með hvítlaukssósu.
Ljúffengt lambaprime með
grillsmjöri og hvítlaukssósu
Nokkur góð grillráð