Skólablaðið - 01.02.1978, Qupperneq 19
mat, lífsmáti. List þeirra endurómaði þennan hug- og mótsagnakenndur og hefði án efa snemma leystst
sunarhátt. upp, ef forystu Bretons hefði ekki notið við. Ein
Það er um surréalismann eins og dada, að skálc aðalástæða sundurþykkis þeirra var stjórnmál.
og bókmenntalegir áróðursmenn áttu hvað mestan
þátt í mótun hugmynda og meginstefnu. Þeir eru nú
lítið lesnir utan heimalands síns. Jaques Prévert
náði mestum vinsældum af surréalískum skáldum á
árunum milli stríða, m.a. fyrir söngtexta við dæg-
urlög. Það er umfram allt myndlistin, sem breiddi
surréalismann út og hugmyndir hans. Lengi framan
af var mikil óvissa um, hvernig ætti að sýna þenn-
an nýja veruleika í myndum eða hvort það væri yfii
Xeitt unnt. Fyrst í stað héldu þeir sér að dada,
en sá,sem fyrstur náði árangri að áliti Bretons,
var Max Ernst, en hann er tvímælalaust einn merki-
legasti málari surréalismans.
Myndlist má skipta í tvo flokka. Annar var að
miklu leyti dadaiskur að uppruna og hafnaði öllum
hefðbundnum hugmyndum um list og fagurfræðilegum
reglum. Þar er lífleikl og hreyfing drjúgur þáttui
Til hans telst Max Ernst fjölhæfasti og hugmynda-
ríkasti listamaður surréalismans. Hann batt í efni
sterka innsýn í hjáveröld sína og beitti til þess
öllum hugsanlegum ráðum, samklippur, strokþrykk
(frottage blað er lagt ofan á hrjúfan flöt og blý-
anti nuddað yfir það), decalcomania, höggmyndir
og jafnvel dularfullar bækur. Aðrir í þessum hópi
eru Joan Miró, hvers myndir eru margar eins og
litríkt safn myndleturstákna, André Masson, sem
gerði tilraunir með automatíu, Robert Matta frá
Chile og Jean Arp.
Hinn hópurinn málaði með hefðbundnum og ná-
kvæmum, fagurfræðilegum aðferðum. Myndirnar eru
fingerðar eftirlíkingar af draumsýnum, þar sem
hlutir eru annað hvort afskræmdir eða settir i
óeölilegt samhengi. Þeirra þekktastur eru René
Magritte frá Belgíu og Katalóníumaöurinn Salvador
Dali, sem þið þekkið líklega mest af öllum surréa-
listum og hefur átt mestan þátt í að móta hug-
myndir um surréalismann því miður. Sú frægð er að
þakka nsjokkerandi" áhrifum fíngerðra mynda hans,
sífelldri sjálfsauglýsingu og opinberum hneykslum.
Hann átti það m.a. til að halda almenningsfyrir-
lestra með hægri. fótinn í mjólkurbaöi, eða í- frosk-
mannabúningi með franskbrauð bundið við hjálminn
og tvo hvíta úlfhunda í bandi. öðrum verður ekki
skipaö í flokk. Meðal þeirra er Marcel Duchamp,
myndbyggingarmeistararnir Alberto Giacometti og
Alexander Calder, sem báðir hofðu áhrif á nútíma-
höggmyndalist, og kvikmyndagerðarmaðurinn Luis
Bubuel, sem gerði fyrstu surréalísku kvikmyndirnar
í samvinnu með Dali, Un Chien Andalo(1929, hún var
128 Salvador Dali Aphrodisiac Jadtct, 1936
Surréalisminn var alltaf byltingarkennd hreyfing
í listum og þjóðfélagsmálum, og drógst fljótlega
að marxisma. Arið 1924 hófst útgáfa nýs tímarits,
La Revolution Surréaliste, sem vísaði hinn marx^
íska veg til 1929, en þá gaf Breton út Le Second
Manifeste du Surréalisme. í þeirri stefnuskrá
lýsti hann formlega yfir fastheldni surréalista
við kommunista, sem hófst meó útgáfu tímaritsins
La Surréalisme au Service de la Revolution. Komm-
úrtistaflokkur Frakklands vildi hins vegar ekkert
af þeim vita.
Surréalisminn eins og dada breiddist mjög út,
og voru surrealískir hópar stofnaðir viða um heim,
í Bandaríkjunum, Belgíu, T ékkóslavakíu, Júgósla-
víu, Danmorku, Japan og Lúndunum. En seinni heims-
styrjöldin tvístraði hópnum og fór kjarni hans til
New York. Flótti listamanna frá Evrópu til Ameríku
orsakaði að mlðja listaheimsins hvarf frá París
til New York og var mjög örvandi fyrir ameríska
listamenn. Masson, Ernst, Matta og Míró eru þeir
sem mest áhrif höfðu af surréalistunum. Slettulist
minnir óneitanlega á aðferðir automatisma. Jackon
Pollock sem er frægur fyrir sln geysistóru málverk.
þar sem hann hellir og slettir málningunni á strig*
ann, hreifst t.d. mjög af teikningum og lífandi
linum Massons. Abstrakt expressionismi á rætur að
rekja m.a. til surréalisma, þó sérstaklega til
verka ofangreindra listamanna. En vinsældir og
áhrif surréallsmans fara mjög dvínandi eftir stríð-
ið. Það eru einna helst þeir, sem höfðu verið með
í hópnum á árunum milli stríða sem halda áfram,
annað hvort eftir nýjum skilningi eða þeim gamla.
Nú er surréalisminn í móðu fortiðarinnar. Við
heyrum öðru hverju þegar einhver af gömlu meistur-
unum deyr, eða sem lýsingarorð, notað yfir eitt-
hvað óhugnanlegt, afbrigðilegt og ógeðslegt. Ahrif
surréalisma á okkar tíma myndlist er kannski ekki
blýþungt á metunum, en hún er enn eitt dæmi um
landnám nútímalistar.
sýnd í kvikmyndaklúbbnum fyrir nokkrum árum) og
L'Age d'Or (1930)
Saga surréalismans er saga einstaklinga, sem
héldu allir sérstökum persónueinkennum í llst
sinni. Þeir héldu hópinn, en hann var sundurþykkur
Tilvitnun úr Secrets of the Art of Surrealist
Magic,- André Breton: Surréalískur still eða fyrs-
ta og síðasta uppkast. Ötvegaðu þér skriffæri,
eftir að þú hefur komið þér fyrir á stað, sem er
eins heppilegur og unnt er fyrir einbeitingu hug-
ans á sjálfum sér. Komdu þér í eins hlutlaust eða
móttækilegast hugarástand og unnt er. Gleymdu snxi
snilli þinni, hæfileikum þínum og allra annarra.
Segðu sjálfum þér með ákveðni, að bókmenntir séu
einn ógæfulegasti leiðarvísir að nokkrum hlut.
Skrifaðu hratt, án fyrir fram ákveðins viðfangs-
efnis, svo hratt að þú heldur engu eftir og freist-
ast ekki til að lesa yfir. Fyrsta setningin kemur
af sjálfu sér, þvi að sú er raunin, að á hverri
sekúndu er til setning, sem er meðvituðum hugmynd-
um okkar ókunnug og býður þess að vera dregin fram
i dagsljósið. Það er erfitt að gefa ákveðnar upp-
lýsingar um næstu setningu, eflaust eiga meðvituð
og ómeðvituð störf þáttí henni samtímis, ef það
er viðurkennt, að í fyrstu setningunni er fólgin
lágmarksskynjun. En það ætti að skipta þig litlu
máli. Það, sem er áhugaverðast við hinn surréa-
líska leik er hér. Það er ekki hægt að mótmæla því
að greinamerkjasetning stendur alltaf á móti þeim
algjörlega samfellda straumi, sem við störfum að,
þótt það virðist jafnmikilvægt og hnútar á reipi,
sem sveiflast. Haltu áfram eins lengi og þú vilt.
Treystu á hið endalausa hvísl sálarinnar. Ef þögn
gerir hið minnsta vart við sig, hafa þér orðið á
mistök-mistök skulum við segja, í eftirtektarleysi
Hættu við hina of auðskyldu línu strax. Eftir orð-
ið hvers uppruni er tortryggilegur, láttu einhvern
staf í staðinn t.d. alltaf stafinn 1, og bjargaðu
þannig framhaldinu með því að gera þennan staf að
upphafsstaf næsta orðs.
Kveðskapur.
Paul Eluard:
Astfangin kona.
Hún stendur á augnlokum mínum,
og hár hennar blandast minu.
Hún hefur lögun handa minna,
hún ber lit augna minna.
Hún hverfur í skugga minn
eins og steinn i himinhvolfið.
Hún heldur augunum alltaf opnum
og leyfir mér aldrei að sofna.
Draumur hennar um hábjartan dag
myrkva allar sólir,
fá mig til að hlæja, gráta, hlæja að nýju
og tala, þótt ég hafi ekkert að segja.
(Þýð. Jóhann Hjálmarsson)
Kurt Schwitters:
Scherzo fyrir hnerra.
TESCH
TSCHIA
HAICH
TSCHIA
HAISCH
HAPPA ISH
HAPPA PEPPA ISH
HAPPA PEPPA ISCH
HAPPA PEPPA ISCH
HAPPA PEPPE TSCHAA.
Jaques Prévert:
Garðurinn.
Þúsundir ára
nægðu ekki
til að lýsa
því sekúndubroti úr eilífð
er þú kysstir mig
er ég kyssti þig
bjartan vetrarmorgun
í Montsouris-garðinum i París
í París
á jörðinni
jörðinni sem er stjarna.
(Þýð. Jóhann Hjálmarsson).
CUNHAR
ÁRNASSON