Morgunblaðið - 08.07.2021, Síða 10

Morgunblaðið - 08.07.2021, Síða 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 2021 Baðinnréttingar Fríform ehf. Askalind 3, 201 Kópavogur. 562–1500 Friform.is. Sumaropnun: Mán. – Föst. 10–17 Laugardaga LOKAÐ 2 0 0 0 — 2 0 2 0 Smiðjuvegi 2, Kópavogi - www.grillbudin.is - Sími 554 0400 Grillbúðin Nr. 12952 - Án gashellu - Svart Frá Þýskalandi 39.900 • 2 brennarar úr ryðfríu stáli • Gasgrill og gashelluborð • Grillgrindur úr ryðfríu stáli • Grillflötur: 48 x 32 cm • Stærð með fótum: B 59 x D 47 x H 76 cm • Stærð án fóta: B 48 x D 42 x H 25 cm • Langir og stuttir fætur fylgja Mjög aflmikið fjölnota ferðagasgrill Afl 4,4 KW Grill og gashelluborð tilbúinn að selja. Þar hafi ríkissjóður fylgt ráðgjöf sem leidd hafi verið af alþjóðlegum fjármálafyrirtækjum sem margsinnis hafi haldið utan um ferli af þessu tagi. Persónulega segist Birna hafa bú- ist við að frumútboðið myndi ganga vel. Hins vegar hafi mikil þátttaka almennings komið skemmtilega á óvart. Birna bendir einnig á að þótt hlutabréfaverðið hafi hækkað eftir að bankinn var skráður þurfi að taka tillit til þess að hlutabréfaverð hafi verið á uppleið síðan þá en einnig að það sé þekkt aðferðafræði við frum- útboð að veita ákveðinn afslátt af bréfum til þess að tryggja vel heppnaða skráningu. Fleira hafi einnig áhrif á verðið. Ríkið enn með meirihluta „[...] þegar ekki er verið að selja allt fyrirtækið. Eigandinn er áfram meirihlutaeigandi og það hefur líka áhrif [...] Þetta þarf að hafa í huga þegar mat er lagt á hvort verðið sé of hátt eða of lágt.“ Líkt og fram hefur komið er það hluti af eigendastefnu ríkisins að selja sig áfram niður í Íslands- banka. Hins vegar fylgdi sú kvöð með skráningunni á markað að rík- ið myndi ekki selja hluti í bank- anum á næstu 180 dögum. Þegar sá tími er liðinn verður búið að kjósa til nýs Alþingis og óljóst hvort meirihlutavilji verði fyrir því að halda áfram að selja hluti í bank- anum. Verðlagning byggði á alþjóð- lega viðurkenndum aðferðum - Bankastjóri Íslandsbanka segir frumútboð og skráningu hafa heppnast vel Íslandsbanki Er nú skráður á markað og Birna Einarsdóttir er eina konan sem stýrir skráðu félagi hér á landi. Allt um sjávarútveg DAGMÁL Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Birna Einarsdóttir, bankastjóri Ís- landsbanka, segir eðlilegt að gagn- rýni komi fram þegar ráðist er í jafn viðurhlutamikla aðgerð og þá að skrá heilan banka á markað og selja í honum hlut. Hún tekur hins vegar ekki undir gagnrýni þess efnis að bankinn hafi verið seldur á und- irverði en gagnrýnendur útboðsins benda á að hlutabréfaverð í bank- anum hafi hækkað um 36% frá frum- útboði í júnímánuði sem leiddi til þess að ríkissjóður losaði um 35% hlut í bankanum. Í viðtali í Dagmálum, streym- isþætti á mbl.is, sem opinn er öllum áskrifendum Morgunblaðsins, segir Birna að alþjóðlega viðurkennd að- ferðafræði hafi verið notuð við að ákvarða verð á hlutabréfum í bank- anum í tengslum við frumútboðið. Upphaflega var lagt upp með að selja hlutina á verði sem rokkað gæti milli 71 og 79 krónur á hvern hlut. Mikil umframeftirspurn varð til þess að engum tilboðum undir 79 krónum á hlut var tekið. Tvær meginaðferðir Spurð út í hverjar hinar alþjóðlega viðurkenndu aðferðir við verðlagn- inguna væru segir Birna þær eink- um byggja á tveimur þáttum. „Þetta er gert með þeim hætti að þú ert að tala við fjárfesta, það eru fjárfestafundir og svo er verið að þreifa á verðum. Þetta er aðferð sem búið er að nota í mörgum útboðum hérlendis og erlendis. Það er sú leið sem oftast er valin. Svo koma skýrslur greinenda og þar er verið að leggja til verðbil eftir þeim fram- tíðarplönum sem lögð hafa verið fram.“ Hún ítrekar þó að það sé alfarið eiganda hlutabréfanna að ákvarða endanlega á hvaða verði hann er Reykjavík stefnir á að rannsaka starfsemi vöggustofa sem voru starfræktar á árunum 1949-1973 í borginni. Ákvörðunin var tilkynnt fyrr í dag eftir að Dagur B. Eggerts- son, borgarstjóri Reykjavíkur, fundaði með fimm mönnum sem höfðu allir verið vistaðir á vöggu- stofu sem börn. Mennirnir sem um ræðir heita Árni H. Kristjánsson, Fjölnir Geir Bragason, Hrafn Jökulsson, Tómas V. Albertsson og Viðar Eggertsson. Höfðu þeir áður sent borgarstjóra greinargerð sem innihélt óhugnan- legar lýsingar á starfseminni og fóru þeir fram á að frekari rannsókn yrði gerð á málinu. Fimmmenningarnir lýsa starf- semi vöggustofanna sem andlegu og líkamlegu ofbeldi. Bæði umhverfið og starfsaðferðirnar voru ómann- eskjulegar og telja þeir nauðsynlegt að rannsaka til hlítar þær aðferðir sem var beitt við uppeldi. hmr@mbl.is Borgin mun rannsaka vöggustofur - Fimm segjast hafa verið beittir ofbeldi Ruslapoki sem fannst við Kambana um kvöldmatarleytið á mánudag var sendur til tæknideildar lögreglu í gær þar sem grunur lék á að mannabein leyndust í pokanum. Gat lögreglan á Suðurlandi upplýst að um „mjög gömul“ bein væri að ræða. Fólk á gangi fann pokann í hraungjótu ofan við Hveragerði. Ásamt beinunum voru þar föt, skór, glerbrot og annað rusl. Að lokinni greiningu reyndist ekki um mannabein að ræða. Þetta segir Oddur Árnason, yfirlög- regluþjónn hjá lögreglunni á Suður- landi. Hann segir óljóst úr hvaða dýri beinin séu, en tæknideild hafi geng- ið úr skugga um að þau væru ekki mannabein. Reyndust ekki mannabein

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.