Morgunblaðið - 08.07.2021, Síða 18

Morgunblaðið - 08.07.2021, Síða 18
Þegar hraði „planandi“ báta er auk- inn lyfta þeir sér í vatninu og skauta svo yfir vatnsflötinn fremur en að sigla í gegnum vatnið. Lítil mótstaða og viðnám við sjóinn stuðlar að spar- neytni. Þessi stóri bátur fór mjög áreynslulaust „upp á plan“. Sjöfn virtist lyftast öll nokkuð jafnt þegar hraðinn jókst, en ekki svo að stefnið risi fyrst og dytti svo niður „á plan“ eins og algengt er. Vel útbúið björgunarskip Björgunarsveitin Ársæll í Reykja- vík fékk Sjöfn afhenta á liðnu hausti. Bátasmiðjan Rafnar ehf., sem smíð- aði skipið, fékk að sýna það Morg- unblaðsmönnum. Sjöfn er af gerð- inni Rafnar 1100. Báturinn er 11 metra langur og ristir aðeins 55 sentimetra. Hann er knúinn tveimur 300 hestafla, átta strokka Mercury- utanborðsvélum. Í bátnum er 600 lítra eldsneytistankur. Sjöfn getur siglt á allt að 40 hnúta hraða (74 km/ klst.) og á 25 hnúta hraða (46 km/ klst.) á annarri vélinni. Á Sjöfn er rúmgott, upphitað stýr- ishús með fjórum demparastólum. Þar er gott pláss fyrir galla, björg- unarvesti og ýmsan annan búnað. Báturinn er mjög vel tækjum búinn til leitar og björgunar. Þar má nefna ratsjá, fullkomna siglingatölvu, öfl- uga hitamyndavél, fjarskiptabúnað og búnað til að fjarstýra leitardróna. Stjórntæki drónans eru tengd stjórntækjum bátsins og uppfæra stöðugt staðsetningu móðurskipsins svo dróninn rati aftur um borð. Öflugir rafalar á utanborðsvél- unum hlaða inn á rafgeymana og knýja flókinn rafbúnaðinn. Auk þess er báturinn með öflug leitarljós og vinnuljós. Stýrishúsið er svo vel hljóðeinangrað að það var ekkert mál að tala saman í eðlilegri radd- hæð þótt siglt væri á fullri ferð. Sjöfn er án efa eitt fullkomnasta björgunarskipið af sinni stærð sem til er. Rafnar fluttur til Reykjavíkur Bátasmiðjan Rafnar ehf. er nú flutt í nýtt húsnæði að Geirsgötu 11 við Reykjavíkurhöfn. Þar eru skrif- stofur og bátasmiðja. Þegar við komum í heimsókn var í smíðum rauðgulur Rafnar 1100-sjóbjörg- unarbátur fyrir kaupanda í Kar- íbahafi. Hann verður með svoköll- uðum T-toppi, eða opnu stýrishúsi sem hentar vel í hitanum. Stoðir sem halda þakinu uppi eru jafnframt flot- holt sem valda því að hvolfi bátnum þá veltur hann aftur á réttan kjöl. Nú eru Rafnar-bátar smíðaðir á Íslandi, Grikklandi og Stóra- Bretlandi. Smíði Rafnar-báta er að hefjast í Hollandi, Tyrklandi og Bandaríkjunum. Össur hannaði skrokklagið Hönnun Rafnar-bátanna er varin af einkaleyfi og skrokklagið, ÖK Hull, er kennt við höfund þess Össur Kristinsson, stoðtækjasmið og stofn- anda Rafnars. Gríðarleg þróunar- vinna liggur að baki skrokknum og töldu starfsmenn að prófaðar hafi verið allt að 400 mismunandi út- færslur í prufutönkum. Þeir hjá Rafnari eru opnir fyrir ábendingum um það sem betur má fara og eru sí- fellt að endurbæta bátana. Hróður hönnunar og sjóhæfni Rafnar-bátanna hefur borist víða. Þorsteinn skipstjóri kvaðst vera bú- inn að fara með um 1.600 manns í prufuferðir. Þrautreyndir sjómenn, t.d. úr bandarísku strandgæslunni og sjóhernum, báðu fyrir sér þegar Þorsteinn bauð upp á snarbeygjur og aðrar kúnstir, en önduðu léttar þegar ekkert fór úrskeiðis. Sumar af æfingunum hefðu verið háskalegar á hefðbundnum bátum. Landhelgisgæslan hefur langa og góða reynslu af Rafnar-bátum og eins margar björgunarsveitir. Gríska strandgæslan gerir út 15 Rafnar-báta svo nokkuð sé nefnt. Morgunblaðið/Árni Sæberg Bátasmiðjan Þengill Björnsson (t.v.) verkefnastjóri við Rafnar 1100-bát sem mun fara til kaupanda í Karíbahafi. T-toppur Stýrishúsið á Karíbahafsbátnum verður lokað að framan en opið til hliðanna sem hentar í heitu loftslagi. 18 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 2021

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.