Morgunblaðið - 08.07.2021, Side 38
38 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 2021
Verkfræðingafélag
Íslands tekur þátt í
samstarfi evrópskra
félaga verkfræðinga
og tæknifræðinga. Þar
eins og annars staðar
hafa menn miklar
áhyggjur af viðvarandi
skorti á tæknimennt-
uðu fólki sem er sífellt
vaxandi. Margar og ít-
arlegar skýrslur eru
skrifaðar og alls staðar
er niðurstaðan sú sama. Til að tak-
ast á við þær áskoranir sem mann-
kynið stendur frammi fyrir, t.d. inn-
an heilbrigðisgeirans og á sviði
loftslags- og umhverfismála, er
nauðsynlegt að fjölga þeim sem
leggja fyrir sig nám og störf á sviði
verkfræði og annarra tæknigreina.
Þetta er niðurstaða rannsókna m.a.
danska verkfræðingafélagsins,
IDA, og FEANI, sem eru Evrópu-
samtök félaga verkfræðinga og
tæknifræðinga. Í Bretlandi hafa
Lloyd́s Register Foundation og the
Royal Academy of Engineering
gert rannsókn og gefið út skýrslu
um þá verkfræðikunnáttu sem mest
þörf er fyrir á komandi árum. Ekki
hefur verið gerð sambærileg grein-
ing á þessu hér á landi en þetta við-
fangsefni er þó mjög mikilvægt fyr-
ir Íslendinga, eins og lesa má út úr
Grænbók Stjórnarráðsins um fjár-
veitingar til háskóla frá 2019. Hlut-
fall þeirra sem lokið hafa námi í
raunvísindum, tæknigreinum, verk-
fræði eða stærðfræði er mjög lágt
hér á landi í samanburði við ná-
grannalöndin.
Skortur á tækni-
menntuðu fólki
Til að rétta af þenn-
an halla innan skóla-
kerfisins þarf að líta til
margra þátta. Til
dæmis þarf að auka
vægi raungreina-
kennslu í grunn- og
framhaldsskólum – og
ekki síst glæða áhuga
barna og unglinga á
vísindum og tækni.
Áskoranir eru margar
og nauðsynlegt að
ræða þær opinskátt, t.d. uppbygg-
ingu kennaranáms og af hverju svo
fáir kennarar leggja fyrir sig
kennslu í stærðfræði og raun-
greinum. Mikilvægt er að bjóða end-
urmenntun og leiðsögn fyrir kenn-
ara sem skortir sjálfstraust til að
kenna stærðfræði og raungreinar.
Nýleg rannsókn í Danmörku
leiddi í ljós að skortur á menntuðu
fólki í upplýsingatæknigeiranum er
vaxandi vandamál þar í landi. Búist
er við að vandamálið þrefaldist að
umfangi til ársins 2030 þegar 22
þúsund manns mun vanta inn í
þennan geira. Danska verkfræð-
ingafélagið, IDA, hefur kallað eftir
athygli stjórnmálamanna gagnvart
þessu vandamáli enda sé samkeppn-
ishæfni Danmerkur í húfi. Bent er á
að nauðsynlegt er að horfa til skóla-
kerfisins í heild til að tryggja að
nægilega margir velji þennan vett-
vang. IDA hefur bent á að stafræn
umbreyting (e. digital transform-
ation) er drifkraftur fyrir vöxt og
samkeppnishæfni fyrirtækja og
samfélagsins í heild. Hún hefur
gjörbreytt almennum og opinberum
vinumarkaði þar sem verða til nýjar
vörur, þjónusta og ný stafræn við-
skiptalíkön. Þá er stafræn umbreyt-
ing ein grunnforsenda framþróunar
á sviði heilbrigðistækni, grænna
umskipta og sjálfbærni. Til að sam-
félag geti nýtt sér kosti nýrrar
tækni og lausna verða fyrirtækin að
hafa aðgang að vel menntuðum ein-
staklingum á sviði verkfræði og
upplýsingatækni.
Skólakerfið í Danmörku hefur
þegar tekið við sér. Verið er að þróa
nýja námsgrein á efri stigum grunn-
skólans þar sem markmiðið er að
auka áhuga og þekkingu nemenda á
tækni í breiðu samfélagslegu sam-
hengi. Við Íslendingar megum ekki
sofna á verðinum og er afar brýnt að
yfirvöld menntamála taki þessi mál
til skoðunar. Á þeirri vegferð að
fjölga tæknimenntuðum eru ýmsar
hættur sem ber að varast. Til dæmis
sú að dregið verði úr kröfum í námi í
tæknigreinum eins og verkfræði og
tæknifræði. Þvert á móti er nauð-
synlegt að viðhalda gæðum námsins,
t.d. er góður grunnur í eðlisfræði af-
ar mikilvægur.
Starfsheiti er gæðastimpill
Um leið og rætt er um að slaka á
kröfum í námi innan tæknigreina
ber á skilningsleysi á mikilvægi lög-
verndaðra starfsheita. Segja má að
lögvernduð starfsheiti séu neyt-
endavernd gagnvart atvinnulífinu,
þeim sem þiggja ráðgjöf eða aðra
þjónustu en ekki síður gagnvart
þeim sem leggja stund á nám í þeim
greinum sem um ræðir. Þannig er
Verkfræðingafélag Íslands umsagn-
araðili um úthlutun starfsheitisleyfa
til verkfræðinga og tæknifræðinga.
Í því felst að standa vörð um gæði
menntunarinnar og faggreinanna
hér á landi og eiga gott samstarf við
háskólana. Sérstaklega er þetta
mikilvægt gagnvart umsóknum ein-
staklinga sem koma erlendis frá þar
sem gæta verður þess að nám um-
sækjenda uppfylli þær grundvall-
arkröfur sem gerðar eru. Það er
sanngirnismál að þeir sem hafa lagt
á sig langt og strangt háskólanám
séu ekki metnir til jafns við þá sem
útskrifast úr háskólum þar sem
kröfur eru oft og tíðum mun minni.
Verkfræðingafélag Íslands vinnur
samkvæmt þeirri skoðun að verk-
fræðings- og tæknifræðingstitill sé
og eigi að vera gæðastimpill.
Tækniþekking er lykill að
betri framtíð
Verkfræðingar hafa í gegnum tíð-
ina gegnt lykilhlutverki í að knýja
fram efnahagslega og félagslega
framþróun með því að hanna örugg
kerfi sem efla almenna velferð og
treysta mikilvæga innviði. Svið
verkfræðinnar er víðtækt og hún
gegnir lykilhlutverki í framþróun,
nýsköpun og hagvexti. Verkfræð-
ingar gegna mikilvægu hlutverki við
hönnun og þróun innviða, kerfa og
ferla sem gera heiminn öruggari og
styðja við umfangsmiklar breyt-
ingar eins og þær sem felast í
heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóð-
anna um sjálfbæra þróun. Nú, þegar
við stöndum frammi fyrir fjórðu iðn-
byltingunni, mun verkfræði knýja
áfram nýsköpun og stuðla að því að
efla stafrænt hagkerfi.
Stefnur íslenskra stjórnvalda
á sviði vísinda, tækni
og nýsköpunar
Íslensk stjórnvöld hafa vissulega
tekið vísindi, tækni og nýsköpun til
umfjöllunar. Nefna má að vísinda-
og tæknistefna 2020-2022 gerir ráð
fyrir stórefldri nýsköpun og hagnýt-
ingu tækni en ekki hefur verið metið
hver þörfin er fyrir verkfræði- eða
tæknimenntað fólk til að stefnan nái
fram að ganga. Á meðan það er ekki
gert ber stefnan keim af óskhyggju
fremur en raunverulegu markmiði
sem unnið er markvisst að.
Nýsköpunarstefna fyrir Ísland
var sett fram í október 2019. Þar
eru einnig fagrar fyrirætlanir en
ekki tekið á grunnatriðum eins og
því hvernig eigi að mennta fólk til að
knýja fram þessi góðu markmið.
Að þessu sögðu hlýtur það að vera
forgangsatriði að leggja mat á þörf
íslensks samfélags fyrir verkfræði-
og tæknimenntað fólk fram til árs-
ins 2030 hið minnsta. Samhliða því
þarf að gera áætlun um að efla
kennaramenntun og kennslu í
tæknigreinum. Verkfræðingafélag
Íslands eru reiðubúið að leggja sitt
lóð á vogarskálarnar svo þessi mik-
ilvægu markmið er varða sam-
keppnishæfni Íslands nái fram að
ganga.
Eftir Svönu Helen
Björnsdóttur »Nú, þegar við stönd-
um frammi fyrir
fjórðu iðnbyltingunni,
mun verkfræði knýja
áfram nýsköpun og
stuðla að því að efla
stafrænt hagkerfi.
Svana Helen
Björnsdóttir
Höfundur er formaður
Verkfræðingafélags Íslands.
Skortur á verkfræði- og tæknimenntuðum