Morgunblaðið - 08.07.2021, Side 40

Morgunblaðið - 08.07.2021, Side 40
40 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 2021 Oft hefur verið haft orð á því að umburð- arlyndi og mannrétt- indi séu í hávegum höfð í Kanada; þar ein- kennist sambúð kyn- þátta, frumbyggja og aðkomufólks, af gagn- kvæmri virðingu, and- stætt því sem tíðkast sunnan bandarísku landamæranna þar sem kynþáttaóeirðir og -ofbeldi eru nánast daglegt brauð. Nú hefur orðspor Kanada beðið mikinn hnekki. Undanfarið hafa fréttir borist af ómerktum gröfum á lóðum kanadískra heima- vistarskóla þar sem börn frum- byggja voru vistuð á síðustu öld. Með aðstoð jarðsjár hefur tekist að greina jarðneskar leifar hundraða barna sem ekkert hafði spurst til. Þessar fréttir vekja óhug en ekki síður hitt að sáralítið hefur verið fjallað um aðstæður þeirra barna sem um er að ræða og lítið hefur verið hirt um að læra af reynslunni og bæta frumbyggjum skaðann. Kynþáttaátök færast í vöxt í Kan- ada og fátt er gert til að sporna við þeim. Undanfarin ár hefur fjöldi kvenna af ættum frumbyggja fallið fyrir hendi ofbeldisseggja eða horf- ið sporlaust. Saga kanadísku þjóð- armorðanna stendur Íslendingum nær en ætla mætti. Margir Vestur- Íslendingar eignuðust börn með kanadískum frumbyggjum af ætt- um Indjána og Inúíta. Helförin gegn frumbyggjum Um eitt hundrað og fjörutíu heimavistarskólar voru reistir fyrir börn frumbyggja víðs vegar um Kanada allt frá árinu 1880. Rekstur skólanna var kostaður af ríkinu, en starfsemin í höndum katólskra og lúterskra safnaða. Markmiðið var að „tortíma frumbyggjanum“ í hverju barni eins og það var stund- um orðað. Börnin voru vannærð og beitt líkamlegu, andlegu og kyn- ferðislegu ofbeldi og mörg þeirra biðu þess aldrei bætur. Oft voru þau barin fyrir að grípa til móð- urmáls síns. Skólaganga var skyld- ug frá fjögurra ára aldri og engar undantekningar gerðar. Mörg börn reyndu að flýja og drukknuðu eða frusu í hel á leiðinni heim. Sum styttu sér aldur eftir barsmíðar og misnotkun. Prestar, nunnur, dóm- stólar og laganna verðir kepptust við að útrýma heilu kynslóðum barna og fela ummerkin. For- eldrum var stundum ekki greint frá adfrifum barna sinna. Börnin sem lifðu af báru merki ofbeldisins á sál og líkama alla ævi. Einn sérkennilegur en lýsandi þáttur „menningarlegs þjóðar- morðs“ á Inúítum fólst í breyttum mannanöfnum. Nafna- hefð Inúíta var óvenju- leg. Þeir kenndu sig ekki endilega við for- eldra sína og ætt- arnöfn voru óþekkt – og þetta vafðist tölu- vert fyrir yfirvöldum, embættismönnum og trúboðum sem þurftu að skrásetja heims- byggðina. Á fimmta áratug síðustu aldar reyndu opinberir emb- ættismenn að leysa vandann með því að úthluta Inúítum núm- eraplötum, líkt og hundar gengu með, sem kæmu í stað hefðbund- inna inúítanafna. Gert var ráð fyrir að menn gengju með plötuna sína um hálsinn svo ekkert færi á milli mála. Erfiðlega gekk að festa nýja fyrirkomulagið í sessi, en það var talandi dæmi um hroka og skiln- ingsleysi yfirvalda. Árið 1971 var það lagt af og ættarnöfnum að hætti Engilsaxa þröngvað upp á Inúíta. Báðar nafnahefðirnar fólu í sér niðurlægingu og menningarlegt ofbeldi, ögruðu hugmyndum Inúíta um persónu, uppruna og skyldleika. Afkomendur Vilhjálms Stefánssonar Landkönnuðurinn og mannfræð- ingurinn Vilhjálmur Stefánsson eignaðist son, Alex, með Inúítakon- unni Pannigablúk. Alex óx úr grasi á norðvestursvæðum Kanada og eignaðist sex börn með konu sinni, Mabel. Öll reyndu menningarokið og ofbeldið á kanadískum heima- vistarskólum á eigin skinni. Sumarið 2000 ferðaðist ég um slóðir afkomenda Vilhjálms á norð- urslóðum Kanada í fylgd Hákonar Más Oddssonar kvikmyndagerðar- manns. Við sigldum m.a. eftir víð- feðmri Mackenzie-ánni, undir leið- sögn Franks, sonarsonar Vilhjálms, til Aklavik þar sem systkinin höfðu gengið í heimavistarskóla. Við tók- um ítarleg viðtöl við fjögur þeirra; vídeóupptökurnar (sem nú eru í vörslu Stofnunar Vilhjálms Stef- ánssonar á Akureyri) eru einstæð heimild um sögu fjölskyldunnar. Viðmælendur okkar voru fremur þöglir um skólavistina, en kald- hæðnin og biturðin leyndi sér ekki. Barnabörn Vilhjálms Stefáns- sonar lifðu af helförina, en öll voru þau löskuð af því samfélagi sem ól þau, enda bjuggu þau við þau mannskemmandi skilyrði sem nú eru rifjuð upp í kjölfar frétta af ómerktum gröfum. Öll urðu þau að hlýða valdboði hinna hvítu á heimavistarskólum, og eflaust hafa þau beint eða óbeint orðið fyrir barðinu á opinberum ofbeld- isseggjum á vistinni. Stefánsson- nafnið veitti litla vörn; þau voru Inúítar. Börnin einangruðust, fjöl- skyldur þeirra sundruðust, áfengi tók sinn toll og ekki síður berklar, mislingar og aðrar farsóttir sem fylgdu vanlíðan og vannæringu. Þótt ekki væri langt fyrir þau að fara heim til sín fengu þau sjaldan heimfararleyfi og sáu lítið af for- eldrum sínum á viðkvæmum mót- unarárum. Allt kapp var lagt á að koma í veg fyrir viðhald menningar Inúíta og tungumáls þeirra (inúvia- kluktum). Líklega var það aðeins Rosie, elsta barn Alex og Mabel, sem hélt inúítamálinu við. Síðustu æviár sín lagði hún kapp á að kenna ungum Inúítum mál sitt. Nú eru systkinin öll látin, flest fyrir aldur fram. Georgína, sem var yngst þeirra, kvaddi síðust (2017). Hún er eini af- komandi Vilhjálms Stefánssonar sem hefur komið til Íslands og hitt ættingja sína hér. Það var um jólin 2003 fyrir milligöngu Atla Ás- mundssonar, sem síðar varð ræð- ismaður í Winnipeg, og utanrík- isráðuneytisins. Georgína heimsótti m.a. slóðir forfeðra sinna á Norður- landi. Bæjarstjórn Akureyrar efndi til veglegs boðs henni til heiðurs. Síðustu ár Georgínu sýndi vest- uríslenska samfélagið í Norður- Ameríku fjölskyldu hennar virðingu (á vefslóðinni https://vi- meo.com/416696267 er að finna heimildamynd sem m.a. er birt á vef Icelandic Roots). Það var við hæfi að kanadíska sendiráðið við Túngötu flaggaði í hálfa stöng á þjóðhátíðardegi Kan- ada 1. júlí sl., í skugga kröftugra viðbragða við fregnum af ómerkt- um gröfum. Það væri líka við hæfi að íslensk stjórnvöld sem fara með málefni barna boðuðu sendimenn Kanada á sinn fund og óskuðu eftir viðræðum um hvernig í ósköpunum þessi barnamorð gátu gerst, af hverju kanadísk yfirvöld þögðu jafnlengi um meðferðina á frum- byggjum og raun ber vitni og hvernig nú verður brugðist við. Margt hefur verið ritað um sam- skipti Vestur-Íslendinga og frum- byggja Kanada. Sú saga hefur í senn verið lituð björtum og dökkum tónum en sennilega eru ekki öll kurl komin til grafar. Þjóðamorðin umræddu og sagan, sem ómerktu grafirnar segja, varða okkur sér- staklega vegna íslensku inúítafjöl- skyldunnar og sögulegra tengsla Íslands og Kanada. Oft hefur verið kallað á erlenda erindreka af minna tilefni. Þjóðarmorðin í Kanada Eftir Gísla Pálsson » Börnin voru van- nærð og beitt lík- amlegu, andlegu og kynferðislegu ofbeldi og mörg þeirra biðu þess aldrei bætur. Oft voru þau barin fyrir að grípa til móðurmáls síns. Gísli Pálsson Höfundur er mannfræðingur. Inúítinn David Arnatsiaq heldur á nafni sínu, 6008. Nunavút, Kanada, 1945. Ljósmyndir/Bókasafn Dartmouth-háskóla. Alex Stefánsson, Mabel kona hans og tvö barna þeirra. Inúítastúlkur á heimavistarskóla í Aklavik, 1930. Ljósmynd/Gísli Pálsson Georgína Stefánsson (önnur frá vinstri) í boði sem bæjarstjórn Akureyrar hélt henni til heiðurs skömmu fyrir jól 2003. LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646 N Ý F O R M H Ú S G A G N A V E R S L U N Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is AYJA - K129 3ja sæta, 2ja sæta og stóll. Margir litir af áklæði eða leðri. Komið og skoðið úrvalið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.