Morgunblaðið - 09.07.2021, Síða 11
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Símamót Frá Símamóti Breiðabliks
í Kópavogi sem hófst í gær.
32 stúlkur í 5. og 6. flokki KR í fót-
bolta ásamt þjálfurum þeirra eru í
sóttkví eftir að stúlka í hópnum
greindist með Covid. Þær missa því
af Símamóti Breiðabliks sem fram
fer í Kópavogi um helgina. Símamót-
ið er stærsta knattspyrnumót lands-
ins. Keppendur eru um þrjú þúsund
stúlkur á aldrinum 8-12 ára.
Þjálfari stúlknanna segir málið
mjög leiðinlegt en að stúlkurnar séu
ótrúlega jákvæðar og samheldnar.
Þær ætla að gera eitthvað skemmti-
legt saman til að bæta upp fyrir að
komast ekki á mótið.
Missa af Símamóti
vegna sóttkvíar
- Covid-smit greindist í 5. flokki KR
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 2021
Garðatorg 6 | s. 551 5021 | www.aprilskor.is
Ten Points Pandora
Nú 18.893 kr. 26.990 kr.
30-60%
afsláttur af
útsöluvörum
Útsala
Þóra Birna Ingvarsdóttir
thorab@mbl.is
Vegagerðin gaf út fréttatilkynningu
hinn 1. júlí vegna umræðu í kring-
um framkvæmdirnar á Dynjandis-
heiði. Þar segir að hraði fram-
kvæmda ráðist af ferlinu við
undirbúning verkanna og hversu
mikið fjármagn stendur til boða. Al-
rangt sé að tafir hafi verið á fram-
kvæmdunum, en þær séu sam-
kvæmt áætlun og hafi gengið
vonum framar. Fyrirsögn frétta-
tilkynningarinnar var „Rífandi
gangur í vegagerð á sunnanverðum
Vestfjörðum“.
Það skýtur því skökku við að
Vestfjarðastofnun og sveitarfélögin
á svæðinu gáfu út ályktun fimm
dögum síðar þar sem þau hvetja Al-
þingi, samgönguráðherra og Vega-
gerðina til að flýta framkvæmdum
á Dynjandisheiði eins og kostur sé
enda þoli vegakerfi Vestfjarða ekki
frekari tafir.
Framkvæmdin „afturþung“
Nýr vegur um Dynjandisheiði er
tímabær framkvæmd. Hafist var
handa við fyrsta áfanga verkefn-
isins í október á síðasta ári. Veg-
urinn á að liggja um Þverdalsá ofan
við Pennu í Vatnsfirði. Ákveðið hef-
ur verið að leita eftir
framkvæmdarleyfi fyrir tveggja
kílómetra viðbót til þess að komast
hjá einbreiðri brú og bæta veg-
línuna.
„Í samgönguáætlun er þessi
framkvæmd svolítið afturþung. Á
árunum 2023 og 2024 eru áætlaðir
3,2 milljarðar af 5,9 milljarða fram-
kvæmd. Vegagerðin er nú þegar
búin að framkvæma fyrir árið 2022.
Það er í raun næsti áfangi sem við
erum að knýja á um að verði boðinn
út strax og haldið áfram með
þetta,“ segir Sigríður Ó. Kristjáns-
dóttir, framkvæmdastjóri Vest-
fjarðastofu.
Næsti áfangi er tólf kílómetra
langur og mun taka tvö til þrjú ár.
Við hann bætast þessir tveir kíló-
metrar sem bíða framkvæmdar-
leyfis. Samkvæmt áætlun á að
bjóða verkefnið út árið 2022. Fram-
kvæmdasvæðið nær frá nýbyggingu
við Þverdalsá og að Eyjarvatni.
Sigríður segir að það sé hárrétt
hjá Vegagerðinni að rífandi gangur
sé á framkvæmdunum. „Þeir eru að
halda áætlun, það er engin lygi, það
er bara ekki nógu hratt.“ Gagn-
rýnin snýr því að því að hætt hafi
verið við að flýta framkvæmdum,
ekki að um tafir sé að ræða.
„Vegagerðin var búin að tala um
að þeir myndu bjóða út næsta
áfanga á þessu ári sem þýðir að
verkið gæti hafist á næsta ári.
Þetta tekur allt svo langan tíma,“
segir Sigríður en hún vill að farið
verði í útboðið og verkinu hraðað
umfram áætlun eins og búið var að
gefa væntingar um.
Blússandi sigling fyrir vestan
Hún bendir á að á meðan stofn-
æðin sem tengir saman sunnan- og
norðanverða Vestfirði sé ónýt, sé
verið að malbika aðreinar að sveita-
bæjum á Suðurlandi. „Það er blúss-
andi sigling í atvinnulífinu á Vest-
fjörðum og umtalsverð verðmæta-
sköpun á sér stað á svæðinu en
samgöngurnar standa svæðinu fyrir
þrifum.“ Með auknu fiskeldi má sjá
fyrir að flutningar og samgangur
verður meiri. Í dag tekur aksturinn
2,5 klukkustundir að sumri en á
veturna er vegurinn oftast ófær og
þá er ferðalagið eitt þúsund kíló-
metrar fram og til baka.
Ófjármögnuð samgönguáætlun
Sigríður segir ástæðuna fyrir því
að Vegagerðin hafi hætt við áform
sín um að flýta framkvæmdinni
vera að Alþingi hafi enn á ný sam-
þykkt ófjármagnaða samgöngu-
áætlun. „Alþingi samþykkir á sama
deginum annars vegar fjár-
málaáætlun og hins vegar sam-
gönguáætlun. Milli þessara áætlana
fyrir næstu 3 ár er 4,5 milljarða
gat.“
Telur hún að Vegagerðin þori
ekki að halda þessu til streitu því
einhvers staðar verði skorið niður.
Sigríður segist skilja Vegagerðina
enda geti stofnunin ekki farið fram
úr þeim ramma sem henni er settur
í fjárlögum.
„Ég vil að ráðuneytið gefi út þau
fyrirmæli að ekki verði skorið niður
í þessari framkvæmd og tryggi að
fjármagnið sem búið er að setja í
þetta standi. Ef það er gert þá ætti
að vera boðið út núna og þetta klár-
ast á næstu 3 árum. Annars ótt-
umst við að þetta fari allavega inn í
árið 2025,“ segir Sigríður og bætir
við að hver mánuður skipti máli.
Samkvæmt áætlun er ekki nógu hratt
- 4,5 milljarða gat milli samgönguáætlunar og fjármálaáætlunar - Fyrirheit um flýtingu fram-
kvæmda á Dynjandisheiði rofin - Lakar samgöngur standi atvinnulífinu á Vestfjörðum fyrir þrifum
Ljósmynd/Vegagerðin
Vegagerð Framkvæmdir á Dynjandisheiði eru samkvæmt áætlun en Vegagerðin var með áform um að flýta þeim.
Steinar Ingi Kolbeins
steinar@mbl.is
Sköpunarmiðstöðin á Stöðvarfirði
fagnar tíu ára afmæli sínu nú um
helgina. Blásið verður til afmæl-
ishátíðar á laugardag, og verður
meðal annars boðið upp á pop-up
kaffihús, harmónikuspil, tónlistar-
flutning frá Margréti Arnardóttur
og Jóhönnu Seljan, leiðsögn um mið-
stöðina og svo að lokum verða tón-
leikar um kvöldið þar sem hljóm-
sveitin Hatari spilar fyrir dansi.
Jákvæð byggðaþróun
Una Sigurðardóttir listakona seg-
ir í samtali við Morgunblaðið að
markmið verkefnisins sé að stuðla
að jákvæðri byggðaþróun á Stöðvar-
firði með því að reka starfsemi á
sviði menningar, fræðslu og atvinnu-
starfsemi skapandi greina.“
Frystihúsinu á Stöðvarfirði var
lokað árið 2005 og stóð autt í nokkur
ár. „Svo stóð til að rífa húsið niður,
en þá kom Sköpunarmiðstöðin í
heiminn,“ segir Una og bætir við að
rúmlega 300 manns hafi komið og
dvalið á Stöðvarfirði og skapað sína
list í miðstöðinni frá árinu 2015. „Við
höfum tekið á móti listamönnum úr
öllum byggðum heimsálfum. Fólk
hefur svo dvalið hjá okkur, allt frá
einum mánuði og upp í níu mánuði.“
Vettvangur fyrir sköpun
Miðstöðin er vettvangur fyrir alls
konar mismunandi listsköpun. „Við
erum með tónlistarsal, trésmíði og
keramikverkstæði til dæmis. Það er
hægt að gera allan andskotann
hérna,“ segir Una, en í Sköpunar-
miðstöðinni má m.a. finna upptöku-
hljóðver, en það var sett upp árið
2019.
Una segir það vera, að margra
mati, eitt besta upptökuver landsins,
en það ber heitið Stúdíó Síló. Þá seg-
ir hún miðstöðina gefa heimafólki
góðan vettvang til sköpunar. „Stór
hluti þeirra sem hafa tekið upp í
stúdíóinu hjá okkur er austfirskt
tónlistarfólk, sem er alveg magnað.“
Fjölbreytt dagskrá á laugardag
Afmælishátíðin hefst klukkan tvö
á laugardag með pop-up kaffihúsi og
tónlistarflutningi Margrétar Arnar-
dóttur, því næst verður svo leiðsögn
um miðstöðina. Hátíðin verður sett
formlega kl. 15 á laugardaginn og
verður þar boðið upp á léttar veit-
ingar og flutt verða nokkur erindi.
Einnig verður Jóhanna Seljan
með tónlistaratriði. Kl. 17 verður svo
afhjúpað útilistaverk eftir Arngrím
Sigurðsson. Kl. 21 mun Hatari stíga
á svið og flytja nokkur lög en ekki
verður rukkað inn á tónleikana. Una
segir alla þá sem koma að hátíðinni
vera hluta af fjölskyldunni, með því
á hún við að allir hafi annaðhvort
dvalið og starfað í miðstöðinni eða
rétt fram hjálparhönd við stofnun og
rekstur hennar.
Fagna tíu ára afmæl-
inu á Stöðvarfirði
- Sköpunarmiðstöðin leysti frystihúsið af hólmi árið 2011
Morgunblaðið/Golli
Sköpun á Austurlandi Margir listamenn hafa dvalið á Stöðvarfirði síðan
Sköpunarmiðstöðin var opnuð í frystihúsinu gamla fyrir tíu árum.