Morgunblaðið - 09.07.2021, Síða 25

Morgunblaðið - 09.07.2021, Síða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 2021 „LÆKNIRINN SEGIR AÐ HANN EIGI AÐ HVÍLA SIG SEM ALLRA MEST.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ... að sakna mannsins sem þú elskar. OG ÉG SEM HÉLT AÐ JÓLAGJAFA- ÓSKALISTINN MINN VÆRI LANGUR HVERS VEGNA HEF ÉG EKKI FENGIÐ LAUNAHÆKKUN? ÉG SKAL SEGJA ÞÉR ÞAÐ! AF ÞVÍ BARA! ÞESS VEGNA! ALLTAF KEMUR HANN MEÐ GÓÐAR ÁSTÆÐUR! „AÐ SJÁLFSÖGÐU ER ÞETTA ÁRÍÐANDI. HVERS VEGNA HELDURÐU AÐ ÉG NOTI HÁTALARANA?“ mikla útivist saman og fer í fjall- göngur, hlaup og á skíði. „Núna er- um við svo að smíða okkur drauma- sumarhús í Hvítársíðu í Borgarfirði. Bústaðurinn heitir SigurÁs og er teiknaður af Hildi Ýri Ottósdóttur arkitekt. Okkar allra bestu bændur úr sveitinni hafa hjálpað okkur við bygginguna, en við hjónin erum líka nokkuð öflug í smíðavinnunni og nú kann maður a.m.k. að ulla og plasta og næsta vers er að koma niður pall- inum. Þarna ætla ég að verja afmæl- isdeginum og taka létt dansspor á nýbyggðum pallinum með útsýni til fjalla þar sem á aðra hönd blasir við Eiríksjökull, Hafrafellið, Strútur og Tunga og á hina himnesk íslensk sveit sem Hvítáin liðast í gegnum. Ég mun líklega enda sem bóndakona þó ég kunni hvorki að prjóna né baka pönnukökur.“ Fjölskylda Eiginmaður Ásu er Sigurður Garðar Kristinsson, málarameistari og jarðfræðingur, f. 6.8. 1969. For- eldrar hans eru hjónin Kristinn G. Garðarsson húsasmiður, f. 4.5. 1946 og María Kristín Sigurðardóttir, banka- og skrifstofukona, f. 8.2. 1947. Þau búa í Hafnarfirði. Börn Ásu og Sigurðar eru 1) Stein- ey, sellóleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands, f. 19.1. 1996. Maki hennar er Finn Schofield klarínettuleikari. Þau búa í Reykjavík. 2) Garðar, meist- aranemi í eðlisfræði í Kaup- mannahafnarháskóla, f. 19.6. 1997. Maki: Margrét Snorradóttir, nemi í verkfræði DTU. Þau búa í Dan- mörku. 3) María Kristín, nemi við Menntaskólann í Reykjavík, f. 10.12. 2003, kærasti: Valur Ingi Sigurð- arson, nemi við MR. 4) Hrafnhildur Halla, nemi við Laugalækjarskóla, f. 17.9. 2006. Systkini Ásu eru Hildur, skólastjóri Dalskóla, f. 10.3. 1961; Þorleikur, verkfræðingur hjá Verkís, f. 22.4. 1962 og Halla Margrét, leik- kona og rithöfundur, f. 24.3. 1965. Foreldrar Ásu eru hjónin Hrafn- hildur Halldórsdóttir húsmæðra- kennari, f. 8.2. 1931, d. 14.3. 2020 og Jóhannes Pétursson loftskeytamað- ur, f. 1.11. 1926, d. 11.4. 1989. Ólafía Ása Jóhannesdóttir Jónfríður Halldórsdóttir húsfreyja í Hafnarfirði Sigurjón Gunnarsson fiskmatsmaður, verkstjóri og síðar bifreiðarstjóri í Hafnarfirði Fríða Margrét Sigurjónsdóttir húsfreyja í Hafnarfirði Halldór Magnús Sigurgeirsson kaupfélagsstjóri í Hafnarfirði Hrafnhildur Halldórsdóttir kennari og húsfreyja í Garðabæ Marín Jónsdóttir húsfreyja í Hafnarfirði Sigurgeir Gíslason sparisjóðsgjaldkeri í Hafnarfirði Karítas Gróa Jóhannsdóttir húsfreyja í Keflavík Ólafur Jónsson sjómaður og póstur í Keflavík Ólafía Ólafsdóttir húsfreyja í Reykjavík Pétur Jóhannesson bifreiðarstjóri í Reykjavík Sólveig Bjarnadóttir húsfreyja í Reykjavík Jóhannes Þórðarson verkamaður í Reykjavík Úr frændgarði Ólafíu Ásu Jóhannesdóttur Jóhannes Pétursson loftskeytamaður í Garðabæ Á Boðnarmiði á þriðjudag kl. 13.06 orti Guðmundur Arn- finnsson um „Sviplegt dauðsfall“: Kokkurinn Sveinn er nú sálaður og sagt er, að hann yrði brjálaður í fyrragær og yrði ær, af því að hann var kokkálaður. Hér er Guðmundur „Úti á víða- vangi“: Gyllir dalinn geislarún, grundir bala og rinda, flýgur valur fjalls af brún frár um salinn vinda. Gunnar J. Straumland spyr í „Kaupstaðarferð“: Höfuðborgin háska ber ég hef því á mér vara, umferð bíla ógnar mér af því spyr ég bara, hvert þeir eru, allir hér, eiginlega að fara. Ætli nokkrum auðnist því að svara? Skúli Pálsson skrifar: „Rímurnar mínar mínar koma 2. október. Eftirfarandi vísur hef ég strikað út úr þeim svo þær fá að birtast hér. Rímnaskáldin í gamla daga léku sér að því að binda nöfnin sín í vísur í lok rímna – stundum með flóknu dulmáli, stundum með einföldum stafaleik eins og hér“: Skapanornin karli kann kjörin mörg að búa, út á leynileiðir hann lætur einatt snúa. Iðka pár og pæla í pilt á æskureki ákaflega langar því löng er heimsins speki. Sextugur nú seggur telst sáttur við sinn tíma, oft í næði nostrar helst núna við að ríma. Tryggvi Jónsson skrifar: „Það er víst stundum hollt að líta í spegil sálarinnar og þetta sá ég og eftir smá vangaveltur tókst mér að troða nafninu mínu í vísurnar“: Tregur er hann ræfilsróni raunar bara fjandans dóni Yfir aðra glaður gengur gráhærður og lítill fengur. Gætið að og varast verður viti snauður illa gerður. Illmælgi víst gasprað getur glottandi í allan vetur. Kristinn Stefánsson (1856-1916) yrkir: En Héðins hæðni á þingi, svo hvöss sem eggjar stáls, varð eldsins upphafs-neistinn en endir brenna Njáls. halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Kokkurinn Sveinn og kaupstaðarferð

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.