Morgunblaðið - 09.07.2021, Síða 32
Deutsche Grammophon mun
þann 3. september næst-
komandi gefa út næstu
plötu Víkings Heiðars Ólafs-
sonar píanóleikara og mun
hann á henni flytja verk eftir
Mozart og nokkur merk
samtímatónskáld hans: Ha-
ydn, C.P.E. Bach, Galuppi og
Cimarosa. Mun platan heita
Mozart & Contemporaries,
eða Mozart & samtímamenn. Verkin eftir Mozart voru
samin á níunda áratug 18. aldar og er haft eftir Víkingi
á vefsíðu útgáfunnar að honum þyki þessi áratugur í
lífi og list Mozarts heillandi. Skuggarnir séu dekkri og
mikil dýpt í blæbrigðum og margræðni tónlistarinnar.
Víkingur er nú á tónleikaferðalagi og fá tónleikar hans
í Tívolí í Kaupmannahöfn 2. júlí fimm hjörtu af sex
mögulegum og er hann kallaður „píanóhákarl“ af
gagnrýnanda.
Næsta plata Víkings með verkum
Mozarts og samtímamanna hans
Steinar Ingi Kolbeins
steinar@mbl.is
Garðar Örn Hinriksson, fyrrverandi
knattspyrnudómari, hefur að undan-
förnu staðið að söfnun á Karolina
Fund til að fjármagna bók sem hann
hefur unnið að undanfarin ár. Garðar
hætti að dæma árið 2016 og hófst
strax handa við gerð bókarinnar.
„Eftir síðasta flautið fékk ég þessa
hugmynd og svo tók ég ákvörðun um
að láta slag standa,“ segir Garðar.
Hann byrjaði því strax að safna
saman upplýsingum eftir að hann
hætti dómarastörfum. Sú vinna hefur
staðið yfir í fimm ár, en eftir þrjátíu
ára feril í dómgæslu er af nógu að
taka. „Ég hef enga tölu á því hve
marga leiki ég hef dæmt, en þeir eru
örugglega fleiri en þúsund.“
Byggð upp eins
og fótboltaleikur
Garðar skiptir bókinni niður í fimm
hluta og byggir hana upp að vissu
leyti eins og fótboltaleik. „Ég byrja á
upphitun, þar fer ég yfir upphafið allt
saman. Svo er fyrri hálfleikur, þar
reifa ég hvert ár fyrir sig. Því næst er
seinni hálfleikur. Þar fer ég yfir ýmis-
legt, t.d. blaðamenn, knattspyrnu-
sambandið, verstu mistökin og þess
háttar. Svo er það „eftir leik“ en þar
tek ég fyrir hluti sem gerðust utan
vallar. Að lokum er það leikskýrslan,
en þar er tekið fyrir fólk sem hefur
tjáð sig um mig eða um leiki sem ég
dæmdi.“
Garðar var oft kallaður „rauði bar-
óninn“ sökum þess hve iðinn hann var
við að gefa spjöld. Því fylgir að Garð-
ar var stór karakter og umdeildur oft
og tíðum. Hann segist þó ekki búast
við neinu fjaðrafoki vegna bókar-
innar. „Ég er ekkert að rakka niður
fólk í bókinni, og ég vona að það komi
ekki þannig út. Það er ekki tilgangur-
inn með bókinni. Tilgangurinn er að
veita innsýn í líf knattspyrnudómar-
ans innan og utan vallar,“ segir Garð-
ar.
Garðar segir ýmsa leiki standa upp
úr í minningunni, og nefnir þar meðal
annars leik Gróttu og Dalvíkur árið
1996. „Þar þurfti ég að flauta leikinn
af vegna þess að leikmenn annars
liðsins voru orðnir of fáir. Ég rak þá
fjóra útileikmenn af velli og tvo af
bekknum.“
Reglunni var breytt ári síðar og
segir Garðar það eflaust hafa verið
gert svo hann þyrfti ekki að flauta
fleiri leiki af. Spurður hvort menn
hefðu verið ánægðir með hann eftir
leik, svaraði Garðar: „Ég hef nú séð
menn hressari.“
Garðar nefnir tvo leiki í viðbót,
annars vegar ÍA gegn Breiðabliki og
hins vegar ÍA gegn KR. Báðir leik-
irnir fóru fram sumarið 2008, og segir
Garðar seinni leikinn vera erfiðasta
leik ferilsins. Forsagan var þá sú að
Garðar fór í útvarpsviðtal fyrir tíma-
bilið, þar sem hann átti að útskýra
helstu áherslumál dómara fyrir leik-
tíðina. „Síðan kemur Egill Einarsson,
Gillzenegger, inn í viðtalið. Þá vorum
við búnir að vera að skjóta eitthvað
hvor á annan áður. En við gröfum
þarna stríðsöxina og föllumst í faðma
eftir viðtalið og það er tekin mynd af
því. Síðan á leikdag fyrir ÍA – Breiða-
blik opna ég Fréttablaðið, og þar er
mynd af mér og stuðningsmanni
Breiðabliks númer eitt.“ Garðar segir
leikinn hafa verið ónýtan áður en
hann byrjaði. „Ég froðufelldi þegar
að ég sá myndina, og svo til að bæta
gráu ofan á svart þá þurfti ég að reka
Skagamann af velli. Ég reyndi allt
sem ég gat til þess að reka hann ekki
út af, en það þurfti að gera það.“
Garðar segist aldrei hafa verið vin-
sæll á Akranesi, en hann hefur lengi
verið sakaður um að hata Akranes.
„Ég er búinn að vera sakaður um það
í mörg ár að hata bæjarfélagið Akra-
nes. Hvernig í ósköpunum menn fá
það út get ég bara ekki skilið,“ segir
Garðar, sem segist finna fyrir þessu
enn í dag.
Garðar stefnir á að gefa bókina út í
haust. „Þeir sem hafa styrkt mig á
Karolina Fund eru í raun að kaupa
hana í forsölu, en ég stefni á að koma
henni í búðir líka. En hversu margar í
hve stóru upplagi get ég ekki svarað
núna.“
Morgunblaðið/Eva Björk
Baróninn Garðar Örn lyfti spjöldunum oftar en einu sinni á ferlinum.
Rauði baróninn gerir
upp litríkan feril
- Dæmdi fleiri en þúsund knattspyrnuleiki á þrjátíu árum
FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 190. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Íslensku liðin þrjú sem léku í Sambandsdeild karla í fót-
bolta í gærkvöld náðu öll ágætum úrslitum og eiga fína
möguleika á að komast í aðra umferð keppninnar.
Breiðablik sigraði Racing Union á útivelli í Lúxemborg,
3:2, eftir að hafa lent tveimur mörkum undir, FH vann
Sligo Rovers frá Írlandi, 1:0, í Kaplakrika og Stjarnan
gerði jafntefli við Bohemians frá Írlandi í Garðabæ, 1:1.
Seinni leikir liðanna fara fram næsta fimmtudag. »26
Góð úrslit í Evrópuleikjunum
ÍÞRÓTTIR MENNING