Fiskifréttir


Fiskifréttir - 18.12.1987, Síða 10

Fiskifréttir - 18.12.1987, Síða 10
10 föstudagur 18. desember inu og lék allt á reiðiskjálfi. Þegar stýrimaður reis upp aftur, fór hann að talpípunni og kallaði niður til skipstjóra. Svaraði hann ekki. Hljóp þá stýrimaður niður og inn tii hans. Skipstjóri var þá farinn úr íbúð sinni. Fórhann þá á stjórnpall aftur og stóð þá skipstjóri fáklædd- ur þar, höfðu þeir farizt á mis. Skipstjóri stöðvaði þegar skipið og gaf skipun um að hafa bjargbáta tilbúna, ennfremur að menn yrðu tilbúnir við loftvarnatækin, ef flug- vélin kæmi aftur, einnig gaf hann út neyðarmerki, sem hann og framkvæmdi samstundis. /.../ Að lítilli stundu liðinni kom Júl- íus KR. Ólafsson 1. vélstjóri og til- kynnti skipstjóra, að botnventill skipsins hefði sprungið og sjórinn fossaði inn, enda var skipið þá þegar farið að hallast mikið til bak- borða. Gaf skipstjóri þá skipun um að yfirgefa skipið. Var þá fyrst far- ið að bátum á bátaþilfari og reynt að koma þeim út. Björgunarbátur nr. 1 stjórnborðsmeginn reyndist ómögulegt að koma út vegna halla skipsins, björgunarbátur nr. 2 bak- borðsmeginn var allur sundurskot- inn og því ekki sjófær. Var nú farið að afturbátnum og þeir látnir síga í öldustokka hæð. Voru særðir menn og aðrir skipverjar látnir fara í bátana og þeir látnir síga í sjóinn og haldið frá skipinu. Skammt utar en árásin var gerð, voru togarar að veiðum." (Virkið í norðri bls. 78-79.) Tveir létust, — margir særðust Sem fyrr segir tóku þessir ensku togarar mannskapinn um borð en að þessu sinni voru einungis tveir farþegar með Súðinni. Menn segja að hætta hefði verið á að verr hefði farið ef fleiri farþegar hefðu verið um borð. Tveir menn létust í árásinni á Súðina; Guðjón Kristinsson og Hermann Jónsson. Guðjón sem var við stýrið þegar árásin var gerð hafði marga áverka en þó var eitt verst; stórt gapandi sár eftir sprengikúlu á síðu svo sá inn í lungu. Bað hann félaga sína að tefja sig ekki við að sinna sér því að sér yrði ekki bjargað. Hermann sem var háseti var að skafa tré á utanverðri afturhlið stjórnpalls fékk vélbyssuskot í brjóstið. Hann mun hafa gengið fimm lengdir sín- ar að bjargbeltakistunni, setti sjálfur á sig beltið og féll þar. Fyrir utan Guðmund særðust eftirtaldir menn í árásinni: Ög- mundur Ólafsson 3. stýrimaður sem fékk skot í öxlina og annað í gegnum þjóhnappana, Björn Kjaran 13 ára sonur skipstjórans særðist er hann var að hreinsa kop- ar á kistunni bakborðsmegin, Siglingar á stríðsárunum Ólafur S. Ólafsson fékk kanónu- skot í gegnum lærið og Adolf Han- sen búrmaður. Sem fyrr segir yfirgáfu allir Súð- ina og var það ráð tekið að skip- stjórinn ásamt 2. og 3. stýrimanni svo og sá hluti skipshafnar sem eft- ir var færi um borð í togarann War Grey en enski skipstjóri togarans ætlaði að bjarga Súðinni og draga hana í land. Á meðan á flutningun- um stóð hafði Súðin sigið mikið niður að aftan og eldur gosið upp á bátaþilfari. Menn töldu ráðlegt að bíða átektar og sjá hvað myndi gerast. Eftir um það bil eina klukkustund var farið með dráttar- taugar yfir í Súðina og árangurs- laus tilraun gerð til að slökkva eld- inn. Mikill sjór var kominn í aftur- lestina, frystirúmið, vélarúmið og kolageymsluna. Skipið hallaðist mjög mikið. Þegar lagt var af stað til Húsavíkur var klukkan um 15.30, þ.e. tæpum tveimur klukku- stundum eftir árásina. Á leiðinni til lands hélt skipið áfram að síga að aftan og eldur logaði bæði á efra og neðra þilfari. Miklar skemmdir á skipinu Seinna kom í ljós að skemmd- irnar eftir árásina voru mjög mikl- ar af völdum skothríðar og má meðal annars nefna að á stjórn- palli var allt sundurskotið, einnig í íbúð skipstjórans, í loftskeyta- klefa, á kistu bakborðsmegin yfir fyrsta farrými, á þilfarshúsi aftur á, á aftursiglu, eldhúsljóra, á skjól- klæðningu að framan miðskipa, á 2. bómu, skot fór í gegnum fyrsta farrými, skemmdir voru á 2. spili, á loftventli bakborðsmegin að framan, á reykháfi og eimpípu til flautunnar, ljóra og ljóraumbún- aði á 2. farrými og flísað upp úr þilfari miðskipa. Súðin skemmdist líka mikið vegna bruna, þ.e. bátar og báta- þilfar brann, svo og matarkassi og björgunarfleki, neðra þilfar undir bátaþilfari og þar fyrir framan og aftan brann, bjargbeltakistan og það sem í henni var var meira og minna brunnið, 3. lúga og búlka- lúgur brunnu, vélarúmsloftljóri skemmdist og dyraumbúnaður á flestum hurðum miðskipa skemmdist. Flugvélin sem gerði árásina var þýsk, Focke - Wolf Gondor, fjög- urra hreyfla en sú tegund var með- al stærstu árásarflugvéla Þjóðverja í seinni heimsstyrjöldinni. Hún var vopnuð mörgum vélbyssum og harðskeyttum fallbyssum. Eftir árásina sáust glöggt merki eftir ferns konar skot; Skot úr vélbyss- um, íkveikjukúlur, sprengikúlur og fallbyssukúlur úr hertu stáli. Skotgöt eftir árás þýsku flugvélarinnar voru um allt á Súðinni. (Ljósm. Skafti Guðjónsson; Ljósmyndasafnið). Náði sér að fullu Guðmundur Valur Guðmundsson var sem fyrr segir aðeins sautján ára gamall þegar ár- ásin var gerð á Súðina, en fæddist 19. maí 1926. „Þetta var fjórða ferðin mín með Súðinni en ég var sextán ára gamall þegar ég byrjaði þar sem þjónn. Áður hafði ég verið messadrengur á varðskipinu Þór í nokkra mánuði. Á þessum árum hafði ég áhuga á sjó- mennsku, mér fannst þetta vera ævintýri og fannst einfaldlega gaman að vera úti á sjó. En ég fór aldrei á sjóinn aftur eftir árásina.“ Varstu ekkert hræddur að vera úti á sjó á þessum ófriðartímum áður en þessir atburðir urðu? „Nei, aldrei. Ég leit á þetta eins og hvert annað starf eins og flest allir aðrir.“ Þó að Guðmundur hafi hlotið öll þessi sár hefur það aldrei háð honum. Til gamans má geta þess að aðeins tveimur árum eftir árás- ina, þ.e. árið 1945 komst hann í meistaraflokk Fram í knattspyrnu og í meistaraflokki lék hann í fimmtán ár. Svo og keppti hann lengi á skíðum. Hvernig er þetta hægt? „Mín íþróttaiðkun varð þess valdandi að ég gat náð mínum styrk aftur því auðvitað varð ég að vinna upp kraft. Hendin var t.d. ekki sterk. En þrátt fyrir öll þessi skotsár þá hafa þau aldrei háð mér. Ég hef auðvitað ör eftir sprengjubrot og göt eftir kúlur um allan líkamann. Það virðist sem kúlurnar og sprengjubrotin hafi smogið á milli tauga því ég hef aldrei fundið fyrir einu né neinu. Ég var ótrúlega heppinn. Það eina sem hægt væri að benda á er að tundurkúlan sem fór í gegnum hendina á mér eyðilagði eitthvað svo ég get ekki rétt úr tveimur fingrum. Ég er og hef verið mjög hraustur alla mína ævi og hef ekki yfir neinu að kvarta“ sagði Guð- mundur að lokum og því er ekki að neita að hann var ótrúlega heppinn þegar ein kúlan fór í gegnum hand- arkrikann því hún fór á ská en ekki beint. Ef hún hefði farið örlítið beinna þá væri Guðmundur ekki til frásagnar í dag. Á reykháfi Súðarinnar voru mörg göt eftir kúlnahríðina (Ljósm. Skafti Guðjónsson; Ljósmyndasafnið).

x

Fiskifréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.