Fiskifréttir


Fiskifréttir - 18.12.1987, Side 20

Fiskifréttir - 18.12.1987, Side 20
20 föstudagur 18. desember Tækninýjungar Roðflettivél og flokkunarkerfi Hollenska fyrirtækið MEYN hefur nýverið hafið framleiðslu á roðflettivélum sem sagðar eru sér- lega hentugar við roðflettingu á flatfiski, en hann er sem kunnugt er vandmeðfarinn í vinnslu. Pessar roðflettivélar eru sagðar fjarlægja roðið án þess að spilla útliti flakanna. Vélarnar eru með útbúnaði, sem hreinsar rafabeltin af með sérstökum burstum þannig að stærð flaka skiptir ekki máli. Þess má geta að Glettingur hf. í Porlákshöfn hefur nú þegar fest kaup á svona vél, að sögn sögn talsmanna Plastprents hf.,sem er umboðsaðili fyrir vélar frá MEYN hér á landi. Roðflettivélin frá MEYN. Þá má nefna, að MEYN fyrir- tækið framleiðir tölvustýrð vogar- og flokkunarkerfi, sem byggja á færiböndum, sem komið er fyrir í lofti eða með veggjum þannig að gólfpláss nýtist til fullnustu. Þessi frá MEYN kerfi flytja vöruna (t.d. fiskflök eða kjúklinga) í klemmum eða bökkum sem hanga niður af færi- bandinu. Sérstök vog sér svo um að vigta vöruna á færibandinu og tölva skráir allar upplýsingar og sér um að varan sé losuð á réttri vinnustöð. Eftirlosun gengurfæri- bandið inn í þvottastöð þar sem bakkarnir eða klemmurnar eru þvegnar. Loks má nefna, að MEYN hefur nú þegar þróað og hafið fram- leiðslu á sérstöku beinaleitartæki fyrir kjúklinga og auk þess segjast þeir vera að ljúka þróun svipað beinaleitartækis fyrir fiskflök. Þá er einnig í smíðum hjá hollenska fyrirtækinu flökunarvél fyrir flat- fisk. Draugar, svipir ^ dularfull0 fyrirbrigoi Eins og nafn bókarinnar ber með sér fjallar hún um ýmsa yfirnáttúrlega atburði. Atburði sem ómögulegt er að skýra, eru oft ótrúlegir en samt sem áður sannir. Hér segir frá mögnuðum draugagangi bæði til sjós og lands, undrum og ógnum. Höfundar bókarinnar leituðu víða fanga við efnisöflun í bókina og það var eftir þeim haft að það hefði komið þeim á óvart hversu margt fólk hefði orðið fyrir dulrænni reynslu á einn eða annan hátt, hve lífseigar sögur af draugum, sviþum og dularfullum fyrirbrigðum væri og hversu víða slík fyrirbrigði hefðu komið við sögu. Kaflafyrirsagnir bókarinnar segja nokkuð til um efni hennar en þær eru: • Hefndarhugur • Draugabæli • Undur og ógnir • Sjódraugar • Fardraugar • Vofur af valdaættum • Vinir og elskhugar í vofulíki. Kerfið flytur fiskinn á klemmum. Fiskmarkaður Norðurlands 75 tonn á einni viku í síðustu viku (7.-11. des.) voru seld 75 tonn af fiski á Fiskmarkaði Norðurlands. Þar af voru 73,7 tonn óslægður þorskur að verð- mæti 2.467 þús. kr. eða 33,46 kr/ kg meðalverð. 1 tonn keila óslægð fyrir 15 þús. kr. eða 14,52 kr/kg og 0,4 tonn ósl. ýsa á 14 þús. kr. eða 35,80 kr/kg meðalverð. Að sögn Sigurðar P. Sigmunds- sonar framkvæmdastjóra Fisk- markaðs Norðurlands eru þeir ein- göngu að selja af línubátum og helstu viðskiptabátarnir eru Frosti og Sjöfn frá Grenivík og auk þess Glaður HU, Særún EA og Svanur EA. • Rafmagnsmótorar • Gírmótorar • Hraðabreytar • Snekkjudrif • Vökvamótorar • Tengi • Tannhjól • Keðjur • Plastreimar • Ryðfríar reimar • PVC.reimar SEUUM EINNIG hluti til framleiðslu á færiböndum [ EIGUM Á LAGER | rafmagnsmótorar 0,12 KW-55 KW. Box 4413 Knarrarvogi 4 l 124Reykjavík \ \> —V

x

Fiskifréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.