Fiskifréttir


Fiskifréttir - 18.12.1987, Síða 26

Fiskifréttir - 18.12.1987, Síða 26
26 föstudagur 18. desember djöfullega. Það var lítið, um svefn dögum saman því að þá voru vöku- lögin ekki gengin í gildi. Við feng- um kannski að blunda 1-2 tíma á sólarhring. Ef ekkert var í troilinu, eða hafðist undan áður en híft var. fékk maður þó stundum smá hvt'ld. Ég tók upp á því til að auðvelda mér að vakna að fjarlægja matress- urnar úr kojunni. Ég lagðist á ber- ar kojufjalirnar í stígvélunum og stakknum og með sjóhattinn á hausnum til þess að vera nógu fljótur að hafa mig upp þegar kall- að væri. Ég var ekki einn um þetta en aðrir lögðu sig bara undir hval- bak eða einhvers staðar á dekkinu ef færi gafst til smáhvíldar." Svanhildur Bogadóttir skrifaði fyrir tveimur árum ritgerð við Há- skóla íslands um aðbúnað á síðu- togurunum og byggði mest á sam- tölum við gamla sjómenn. Við skulum sjá hvað einn þeirra, Sigur- jónStefánsson, hefurum aðstæður í lúkarnum að segja: „Svo var nú mikið um það, að þegar verið var að toga í vondum veðrum að menn fengju á sig sjó og fóru margir á bólakaf. Og þá urðu menn náttúrulega að fara frammí og hafa fataskipti og hengja fötin sín í kringum ofninn. Erfitt var að þurrka svona mikið af fötum í einu. Lúkarinn var eiginlega ekk- ert annað en tómar snúrur. Rakt loft og daunillt. Engin Ioftræsting, nema uppgangurinn var hafður opinn." Sóðaskapur var mikill Magnús Runólfsson segir svo um aðstæður í lúkarnum: „Kolin í ofninn voru geymd í mjóum bekkjum fyrir framan koj- urnar aftast og þar lá stiginn niður. Þegar ég kom um borð var engin koja laus nema sú neðsta undir stiganum og varð ég að sofa í henni þó að hún væri sú langversta í lúk- arnum. Sóðaskapur var mikill. Karlarn- ir óðu niður í slorugum stökkunum og þegar þeir voru að þvælast nið- ur stigann lak gumsið af þeim fyrir framan kojuna mína eða kannski inn í hana. Þeir voru þá að skreppa niður til að láta á baukinn sinn og þótti ekki taka því að fara úr. Sum- ir voru náttúrulega þrifnari og fóru alltaf úr stakknum uppi. Sá sem „átti lúkarinn" þurfti að skúra tvisvar í viku og sjá um að hafa bekkina alltaf fulia af kolum. Þegar verið var að sturta í kola- bekkina vildi salli eða moli og moli slæðast inn í kojuna mína og þegar askan var borin upp þyrlaðist stundum úr fötunni. Kojan mín var því engin þrifastaður og ekki bætti slagvatnsfýlan úr skák. Lúkarinn var einn geimur, sem yfir 2o manns sváfu í, svo að hann var yfirleitt fullur af drasli og dóti sem fylgdi þeim. En þetta þótti miklu betra en var á skútunum í gamla daga því að þar sváfu tveir menn í hverri koju. Oft var ég kominn að því að gef- ast upp fyrsta árið en þá minntist ég alítaf krakkanna í Vesturbæn- um og sá fyrir mér glottið á þeim. þegar ég kæmi heim og hefði gefist upp, svo ég harkaði alltaf af mér og fór aftur. Ég hafði miklast af tog- arasjómennsku minni og jafnaldr- ar rnínir öfunduðu mig. Mér var það óbærileg tilhugsun að játa uppgjöf mína fyrir Vesturbæjar- strákunum. Ég, sem hafði veríð hetja, yrði hafður að háði og spotti. Mikið yrði mitt fail. Það mátti aldrei verða." Að hægja sér upp í vindinn Á þessum gömlu togurum var hvergi hægt að geyma stakka, stíg- vél og sjóhatta inni við heldur varð að raða þeim upp undir hvalbak- inn, þegar menn fóru niður til að sofa. Þar beinfrusu sjóklæðin, ef frost var. og má nærri geta að ekki hefur verið þægilegt að klæðast þeim á nýjan leik. Salernisaðstaða á gömlu togur- unum var bágborin og stundum fyrir neðan allar hellur. Á sumum togurum var kamar í járnklefa upp í eða undir hvalbaknum sem hrím- aði allur að innan þegar frost var. Þar inni var fata en undir hælinn lagt hvort henni fylgdi tréseta eður ei - oft var alls konar óviðkomandi drasl inni í þessum klefa. Á sumum skipunum var engin salernisað- staða, nema kannski fyrir yfir- menn uppi hjá skipstjóra, og urðu hásetar þá að gera þarfir sínar út fyrir borðstokkinn, þó að vonsku- veður væri, eða þá að koma sér í mjúkinn hjá kyndurunum og fá að athafna sig í fírplássinu. í fyrr- nefndri ritgerð Svanhildar er þetta haft eftir Bjarna Þorsteinssyni sjó- manni: Það er alveg furðulegt að það skyldu ekki verða fleiri slys eða menn hverfa, við þær aðstæður sem maður var stundum við. Hangandi aftan á rekkverki, eng- inn vissi af manni, það hefur verið algjör hryllingur... í hvernig veðri sem var. Auðvitað var ekki spurt að veðri, þegar menn þurftu að fara út og hægja sér..." Svefn og vinna Aftur í togurunum voru vistar- verur yfirmanna. I káetunni voru kojur á tveimur hæðum og þar sváfu 2. stýrimaður. 2. vélstjóri, bátsmaður og kokkur eða kokkar. í tveimur herbergjum til hliðar sváfu svo 1. stýrinraður og 1. vél- stjóri en svo lítil voru þau að ekki komst þar annað fyrir en koja og mjór bekkur fyrir framan. Skip- stjóri og loftskeytamaður sváfu í sérherbergjum uppi. Einnighöfðu kyndarar klefa fyrir sig. Yfirmennirnir borðuðu í káetu og hásetar í borðsal sem var uppi fyrir aftan eldhúsið. Svo lítið gólfpláss var í káetunni og borð- salnurn að allir urðu að standa upp ef einhver þurfti að komast inn fyrir. Kojurnar í káetu voru eins og lokrekkjur, sem hægt var að renna hurð fyrir, og þar inni voru sérstök ljós. Annars var ekki mjög þægi- legt að eiga vist í káetu því að þar var sífelldur erill af snæðandi mönnum og hávaði frá vélum skipsins. Eins og áður sagði tryggðu vökulögin 6 tíma hvíld á sólarhring en eftir sem áður gat verið mikill þrældómur um borð þannig að menn höfðu Iítinn tíma til skemmt- unar svo sem spilamennsku eða Yfirmenn á Helgafelli matast í káetunni arið 1946. Lengst til vinstri er skipstjórinn í þessum túr, Þorsteinn Einarsson, og honum við hlið 1. stýrimaður, Jón Þorvaldsson. Ekki hefur tekist að nafngreina manninn lengst til hægri. Hér virðist vera bæði sulta og pickles á borðum sem ekki sést í borðsal háseta. í baksýn sést inn í tvær kojur en í káetunni sváfu 2. stýrimaður, 2. vélstjóri, kokkur og bátsmaður. bóklesturs. Aðstæður til slíks voru líka harla lélegar eins og fram hef- ur komið, ekkert borð í lúkarnum og engin kojuljós. Svo notuðu menn hvert tækifæri til svefns þegar tími gafst. Veislumatur á hverjum degi Eitt ber mönnum saman um og það er að matur var nægur og góð- ur um borð í togurunum og voru það mikil viðbrigði frá skútunum. Þetta var eitt af því sem gerði tog- arapláss eftirsótt, einkum fyrir menn sem ekki höfðu vanist að fá kjöt nema kannski um hátíðir. Endurminningar Einars Ólafsson- ar í Lækjarhvammi komu út í fyrra en hann var á togurum á yngri ár- um. Hann segir svo urn matartíma Og mataræði um borð í bv, Maí: „Matmálstímarnir um borð voru svipaðir og þjóðin hefur í dag, en þá voru þeir enn mörgum framandi. Klukkan níu fengum við kaffi eða kókó, og skonrok eða kringiur með. Skonrok var hvítt þurrkað brauð eins og kringlurnar. Matsalur háseta á Helgafelli (áður Surprise) árið 1946. Á borð- inu sjást ýniis matarílát svo sem diskar, tvö föt, annað sennilega með saltkjöti í en hitt með kartöfl- um, tvær grautartarínur, víðar í botninn en mjókka upp, og drykkj- arkrúsir. Á veggnum er útvarps- tæki og tvær luktir. Til vinstri á myndinni sitja Gísli Guðmundsson frá Hellu í Hafnarfirði, Jón Jó- hannesson frá Hamri í Hafnarfirði og Leifur Jónsson frá Isafirði, síð- ar skipstjóri. Til hægri á myndinni (talið inneftir) eru Guðmundur Jó- hannsson frá Gerðinu í Hafnar- firði, Þórarinn Torfason frá Vest- mannaeyjum og Jakob Þorsteins- son frá Hafnarfirði. en það var ferningur. á stærð við brauðsneið. Klukkan tólf var há- degisverður og þá fengum við súpu, kjöt og kartöflur. Það voru viðbrigði að fá kjöt upp á hvern einasta dag. Við fengum ýmist saltkjöt með súrsuðu grænmeti (pickles) eða nýtt nautakjöt með sultutaui. Klukkan þrjú var boðið upp á kaffi með skonroki eða kringlum. Klukkan sex að kveidi fengum við síðan tiskmáltíð. og alltaf var jafnframt boðið upp á brauð með dýrindis áleggi. Klukk- an átta útbjó stjúi (matsveinninn)

x

Fiskifréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.