Fiskifréttir - 18.12.1987, Qupperneq 27
föstudagur 18. desember
27
kvöidkaffi og gekk síöan til koju,
en sérstakur maður háföi til nætur-
te um miðnættið fyrir þá sem voru
á vakt, og með því fengum við kalt
kjöt og brauð. Það var mikil sæla
að geta troðið í sig daglega eins
mikið af veislumat og mann lysti.
Eg tók út mikinn líkamlegan
þroska fyrstu árin sem ég var á tog-
ara. og þetta góða fæði átti eflaust
sinn þátt í því."
Bylting með
nýsköpuninni
Ný vökulög komu árið 1942 sem
tryggðu 12 tíma hvfld á sólarhring
og eftir stríð komu nýsköpunar-
togararnir. Hvort tveggja hafði í
sér fólgna byltingu fyrir íslcnska
togarasjómenn. Nýsköpunartog-
ararnir voru helmingi stærri en
þeir gömlu og því hægt að hafa
mun betri aðstæður fyrir mann-
skapinn auk þess sem tíðarandinn
var orðinn annar.. í þessum nýju
togurum var lúkarinn hólfaður í 4
herbergi og í hverju þeirra voru
kojur á tveimur hæðum fyrir 4-8
háseta. í herbergjunum var fata-
skápur fyrir hvern mann og koju-
Ijós við hvert rúm og auk þess voru
borð í herbergjum háseta og bekk-
ur við það. Þar voru einnig ofnar
frá miðstöðvarkyndingu og í koj-
unum lofttúður þannig að hægt var
að tempra hita og hafa góða loft-
ræstingu. í sumum togurunum var
jafnvel vaskur með rennandi vatni
inn í sjálfum herbergjunum. Þá vár
sú nýjung að setustofa var í ný-
sköpunartogurunum og í borð-
salnum voru tvö borð til að snæða
við í stað eins áður. Þar var líka
útvarp fyrir háseta eða hátalari frá
útvarpi og oftast var tekinn bóka-
kassi meö í túrana.
Þá var upphituð stakkageymsla
með hillum og snögum bæði
frammí og afturí, og var það gífur-
leg framför. Með nýsköpunartog-
urunum varð líka bylting í hrein-
lætismálum. Salerni voru bæði
frammí og afturí og einnig sturtur
og margir vaskar með sjálfrenn-
andi heitu og köldu vatni.
En þó að framfarir hafa orðið
miklar eftir stríð í aðbúnaði sjó-
manna éru þær þó ekki svipur hjá
sjón miðað við það sem nú gerist
best - en það er önnur saga.
Ónafngreindur hjálparkokkur,
sennilega á Garðari, á fullri ferð
með kaffikönnutyi.
Hér er Guðbjartur Ásgeirsson kokkur við pottana, sennilega á Garðari,
en hann tók myndirnar sem birtast með greininni. Safn hans er stórmerki-
legt og er nú geymt að miklum hluta í Þjóðminjasafninu og eru upp-
lýsingar um myndirnar fengnar þaðan.
Gámar
Útvegum flestar gerðir gáma (containers) frysti- og kæligámar 20 og 40 feta.
Einangraðir gámar fyrir ferskan fisk 20 feta.
Þurrgámar 10, 20 og 40 feta.
Flestar gerðir sérhæfðra gáma, nýir og notaðir.
Leigjum einnig út 20 feta kæli- og frystigáma.
Bakkavör hf.
Mýrargötu2, 101 Reykjavík
Sími (91)25775
SAMÁBYRGÐIN
FYRIR ÚTGERÐARMENN:
Skipatryggingar, Ábyrgðartryggingar út-
gerðarmanna, Slysatryggingar sjómanna,
Farangurstryggingar skipshafna, Afla- og
veiðarfæratryggingar, Endurtryggingar
fiskiskipa undir 100 rúmlestum, Rekstur
Aldurslagasjóðs fiskiskipa.
FYRIR SKIPASMÍÐASTÖÐVAR:
Ábyrgðartryggingar vegna skipaviðgeröa,
Nýbyggingatryggingar.
Skrifstofa Samábyrgðarinnar og eftirtaldir
umboðsmenn vorir veita allar nauðsynlegar
upplýsingar varðandi tryggingar þessar og
taka á móti tryggingarbeiðnum:
Vélbátaábyrgðarfélagið Grótta, Reykjavik
Bátatrygging Breiöafjaröar, Stykkishólmi
Vélbátaábyrgðarfélag ísfirðinga, ísafirði
Vélbátatrygging Eyjafjaröar, Akureyri
Skipatrygging Austfjarða, Neskaupstað
Vélbátatrygging Reykjaness, Keflavík