Fiskifréttir


Fiskifréttir - 18.12.1987, Side 28

Fiskifréttir - 18.12.1987, Side 28
28 Fiskmarkaðir föstudagur 18. desember VEST-JET Dælur á mjög hagstæðu verði GERÐ: VR-G 103 Einar Farestveit&Co.hf. Til afgreiðslu strax Verð kr. 37.900 án sölusk. Rústfríar miðflóttaaflsdælur Afköst 30 m3/klst við 10 m/s BORGARTÚN 28, SÍMAR: (91) 16995 OG 622900 - NÆG BÍLASTÆÐI Sendum sjómönnum, fiskvinnslufólki og fölskyldum þeirra um land allt bestu jóla- og nýársóskir Maskinfabriken JAM A/S Alsvej 2 - DK-5800 Nyborg Denmark Telf. 09 - 31 16 17 -Telex 50 471 Telefax: 09 - 31 23 25 Boðið í físk með aðstoð tölvu! Fiskifréttir heimsækja Fiskmarkað Norðurlands hf. Eftir mjög rólega byrjun, hefur Fiskmarkaður Norðurlands hf. á Akureyri, nú tekið góðan kipp og nýlega voru þar seld 25 tonn af þorski á einum og sama deginum og í vikunni þar á undan voru seld tæp 73 tonn af þorski. Það eru línubátarnir fyrir norðan sem beint hafa viðskiptum sínum til markaðarins og framkvæmda- stjórinn, Sigurður P. Sigmundsson, gerir sér góðar vonir um að þetta aukna magn sé aðeins vísbending um það sem koma skal. „Risarnir“ fyrir norðan kaupa nú físk á markaðnum og forráða- menn Fiskmarkaðar Norðurlands hf. vonast til þess að þessi stóru fyrirtæki bjóði fljótlega físk til sölu. Vitað er að mörg fyrirtæki, s.s. Útgerðarfélag Akureyringa hf., hafa hug á að fara út í aukna sérhæfíngu en það myndi skapa svigrúm til þess að bjóða ýmsar aukategundir til sölu á markaðnum. Undirbúningur að stofnun Fiskmarkaðar Norðurlands hf. á Akureyri, hófst fyrir u.þ.b. einu ári síðan, að frumkvæði hafnar- stjórnarinnar. Ákveðið var að skipa undirbúningsnefnd og skil- aði hún áliti 2. febrúar sl. Hug- myndum undirbúningsnefndar- innar var svo vel tekið að ákveðið var að halda áfram og var Fisk- markaður Norðurlands hf. stofn- aður 3. maí sl. Að sögn Sigurðar P. Sigmunds- sonar, framkvæmdastjóra, standa flest helstu útgerðar- og fiskiv- innslufyrirtæki á Norðurlandi að markaðnum, auk Akureyrarbæjar og nokkurra einstaklinga. — Menn voru sammála um það að þessi markaður ætti að verða einhvers konar fjarskiptamarkað- ur og var það ekki síst stærð svæð- isins sem ýtti undir þær hugmynd- ir, segir Sigurður en hans fyrsta verk sem framkvæmdastjóri, var einmitt að gera tillögur að því hvernig uppboðsformið ætti að vera. I samráði við Verkfræðiskrif- stofuna Streng, hannaði Sigurður svo uppboðskerfið og var samið við Streng um gerð slíks kerfis í lok júlímánaðar. Það tók þessa aðila hálfan annan mánuð að fullmóta uppboðskerfið og það var loks í lok september að allt var tilbúið. Spennandi uppboð Samkvæmt upplýsingum Sig- urðar, voru tíu aðilar tengdir upp- boðskerfinu í upphafi. Uppboð fer fram á milli kl. 12 og 15.30 og allur fiskur sem tilkynntur hefur verið inn á markaðinn fyrir hádegi, er til sölu þann daginn. Fyrirkomulagið er í stuttu máli þannig að útgerðar- menn skipa tilkynna það inn á markaðinn, hvað þeir hafi til sölu og koma þessar upplýsingar fram á tölvuskjám í húsnæði fiskmarkað- arins og hjá þeim aðilum sem tengdir eru markaðnum í gegnum tölvunetið. Menn geta því setið á skrifstofu sinni á Pórshöfn eða Sauðárkróki (jafnvel Grundarfirði sem er 11. staðurinn sem tengdur er markaðnum) og boðið í fiskinn. Upplýsingar um verð og bjóðanda koma samstundis fram á skjánum og geta menn því fylgst með boð- um keppinautanna. Að sögn Sigurðar hafa uppboð- in þótt spennandi og hann segir að margir hafi fylgst með boðunum á skrifstofum sínum til að byrja með. án þess þó að bjóða sjálfir. í>að sé einmitt þetta fyrirkomulag sem mönnum hafi líkað best og reyndar sé Fiskmarkaður Norður- lands hf. eini raunverulegi fjar- skiptamarkaðurinn hér á landi. Rétt sé einnig að benda á að selj- andi ákveði alltaf hvar fisknum er landað en samningar hafi þó oft tekist um að löndun fari fram ann- ars staðar en í heimahöfn. T.a.m. hafi Grenivíkurbátar landað fiski sem fara átti til Sauðárkróks, á Siglufirði en það hafi sparað kaup- endum mikinn akstur. Ótæmandi möguleikar En það er hægt að nota upp- boðskerfi Fiskmarkaðar Norður- lands hf. til fleiri hluta en bara uppboðs á fiski. Að sögn Sigurðar eru upplýsingarmöguleikar kerfis- ins ótæmandi og þannig sé t.a.m. jafnan til staðar allar upplýsingar um verð á fiskmörkuðunum í Hafnarfirði, Reykjavík og á Suð- urnesjunum. Þessar upplýsingar eru komnar inn í kerfið u.þ.b. klukkustundu eftir að uppboðum lýkur á viðkomandi stöðum og geta Norðlendingar sem tengdir eru tölvunetinu því séð skömmu síðar á hvaða verði hinar eða þess- ar fisktegundir hafa selst. t>á er rétt gengisskráning sett inn daglega og forráðamenn markaðarins velta því nú fyrir sér hvort bæta eigi við upplýsingum. — Við gætum hæglega sett inn sölur erlendis, þjóðskrána eða tengt viðskiptavini okkar við bankana þannig að þeir geti séð stöðu viðskiptareikninga sinna. Allir notendur hafa ákveðið leyni- númer sem tryggir að þeir fá aðeins aðgang að ákveðnum upp- lýsingum og þannig geta engir boð- ið í þeirra nafni eða fengið upp- lýsingar. Þá geta menn skrifast á milli staða með hjálp tölvukerfis- ins í stað þess að nota símann, svo dæmi séu nefnd, sagði Sigurður P. Sigmundsson. „Bjartsýnn á framhaldið“ Eins og fram kom hér að framan er það fyrst nú sem Fiskmarkaður Noðurlands hf, er að komast í gang. Til marks um það má nefna að í fyrstu vikunni í desember var seldur fiskur fyrir u.þ.b. 2.8 millj. króna en það var um 40% af heild- arveltunni fram til þess tíma. Við spyrjum Sigurð hvort hann hafi ekki verið farinn að örvænta? — Eg var orðinn órólegur en það var búið að segja mér að menn væru varkárir og það tæki tíma að fá þá til þess að skipta við markað- Óskum vibskiptavinum gleðilegra jóla ogfarsæls komandi árs. Saltsalan hf. Kársnesbraut 106 b— Sími 64 12 77

x

Fiskifréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.