Fiskifréttir - 18.12.1987, Page 32
32
föstudagur 18. desember
Fréttir
I1íisI.»s liF
Krókhálsi 6,
sími671900
Loðnuverð í Færeyjum:
Viðmiðunarverð 3000
krónur fyrír loðnutonnið
Loðnuskipiö Magnús NK seldi
rúm 523 tonn af loðnu í F uglafirði í
Færeyjum á föstudag í fyrri viku.
Viðmiðunarverð loðnuverksmiðj-
unnar Havsbrúnar er 52 danskir
aurar fyrir kflóið eða sem svarar
um 3000 íslenskum krónum fyrir
tonnið.
Hjörvar Valdimarsson, skip-
stjóri á Magnúsi sagðist í samtali
við Fiskifréttir, ekki hafa fengið
endanlegt uppgjör vegna sölunn-
ar. Verð Havsbrúnar, 52 danskir
(færeyskir) aurar fyrir kílóið. mið-
aðist við 14 prósent þurrefnisinni-
hald loðnunnar og 15 prósent fitu-
innihald. Fyrir hvert prósent sem
þurrefnið hækkaði, væru greiddir
2.80 danskir aurar aukalega fyrir
kflóið eða sem svarar 160 ísl. krón-
um fyrir tonnið en verðskerðingin
væri hin sama ef þurrefnisinnihald
lækkaði. Fyrir fituprósentuna
væru hins vegar greiddir 0.90
danskir aurar eða sem svarar 50 ísl.
krónum á tonnið.
Magnús NK er nú kominn með á
milli 8200 og 8300 tonn af loðnu á
vertíðinni og sagði Hjörvar að
stefnan væri sú að selja aflann þar
sem hæst verð fengist hverju sinni.
Frá Fuglafirði í Færeyjum.
Mun minni k vó ta tilfærslur
Mjög lítið hefur verið um kvóta-
tilfærslur milli skipa á þessu ári,
samkvæmt upplýsingum veiðieftir-
litsmanna í Sjávarútvegsráðuneyt-
STEPHEN
aMN<7
Oft hefur bandaríski rithöfundurinn
Stephen King verið nefndur „kon-
ungur spennusagnanna“ og sú
nafngift er engin tilviljun. Allar
bækur hans hafa hlotið fádæma
góðar viðtökur og þegar hann
sendir frá sér bók eru þær
undantekningalaust í efsta
sæti lista yfir metsölubækur
viku eftir viku. Stephen
King kann þá list að ná
tökum á lesendum sínum
og halda þeim frá fyrstu
blaðsíðu til síðustu.
Spennusögur hans eru
sérstæðar, dularfullar og
magnaðar.
inu. Gildir þá einu hvort verið er
að ræða um tilfærslur milli skipa í
eigu sömu útgerðar, milli skipa
innan sömu verstöðvar eða milli
byggðarlaga.
Upplýsingar um kvótatilfærslur
lágu ekki fyrir hjá ráðuneytinu er
Fiskifréttir báðu um þessar upp-
lýsingar 15. desember sl. Að sögn
Arnar Traustasonar, veiðieftirlits-
manns hefur dregið verulega úr til-
færslum og hafa menn einkum
nefnt fyrir því þrjár ástæður. I
fyrsta lagi var mjög stór hluti flot-
ans gerður út samkvæmt sóknar-
marki í ár og því án framsalsréttar.
í öðru lagi má ekki geyma kvóta til
næsta árs að þessu sinni og loks má
nefna í þriðja lagi, óvenju léleg
aflabrögð það sem af er vetri.
Menn hafa því átt fullt í fangi með
að veiða eigin kvóta og eftirspurn
eftir aukakvótum hefur verið með
minnsta móti.
Stephen King er
samur við sig!
Eymd er saga um Poul Sheldon
rithöfund. Hann er kannski ekki
snillingur, en vinsæll. Bækur hans
um Eymd Hreinlífs hafa skapað
honum sess í hjörtum kvenna og
aðdáendahópur hans er orðinn
stór. En Eymd Hreinlífs er þreyt-
andi persóna að skrifa um svo höf-
undurinn ákveður að enda líf
hennar á harmrænan hátt og snúa
sér að öðru söguefni. Þungu fargi
er af honum létt við að losna við
Eymd og nýjasta bók hans fjallar
um bflþjóf. Bókin gerir hann bjart-
sýnan og hamingjusaman. Hon-
um finnst að hann hafi aldrei skrif-
að jafngóða bók. Hann fær sér
kampavín og drekkur heldur mik-
Ný 100%
vatnsheld
borðvog
frá Toledo
ið. Síðan yfirgefur hann sveitahó-
telið þar sem hann vann að bók
sinni og heldur út í nóttina. En
brátt skipast veður í lofti. Ofsaveð-
ur skellur á og Poul missir stjóm á
bifreið sinni á afskekktum sveita-
vegi. En aðdáendahópur Pouls
Sheldon er stór og þama í fá-
menninu býr Annie, einn dyggasti
aðdáandi hans, lærð hjúkrunar-
kona með vafasama fortíð. Hvað
gerir stórslasaður og varnarlaus
maður sem lendir í klóm Annie
Wilkes? Hvar stendur hann gagn-
vart geðveikri konu sem vill að
hann endurlífgi Eymd Hreinlífis?
Aðalskrifstofur: Ármúla 18 - Sími 82300
Frjálstframtak