Fiskifréttir - 18.12.1987, Side 45
föstudagur 18. desember
45
Síldin
Eskfirðingar drjúgir við síldarsöltun:
Útflutningsverðmætið 142 þús. kr. á íbúa
Núaðlokinnisíldarvertíð,lætur j upplýsingum Einars Benediktsson- | verðmætasköpunina en útflutn-
nærri að útflutningsverðmæti ar, annars framkvæmdastjóra ingsverðmæti saltsíldar frá Eski-
saltsíldarinnar sé á bilinu 900 til Síldarútvegsnefndar, voru það fírði nemur á þessari vertíð u.þ.b.
1000 milljónir króna. Samkvæmt I Eskfirðingar sem voru drýgstir við | 150 milljónum króna.
Tæplega þríðjungur í bræðslu
— ireiðar í reknet og lagnet að leggjast af
Síldveiðum lauk nú um miðja
vikuna og var það Vísir SF frá
Höfn í Hornafirði sem varð síðasta
skip til þess að klára kvóta sinn. Að
sögn Arnar Traustasonar, veiðieft-
irlitsmanns hjá Sjávarútvegsráðu-
neytinu, veiddust alls rúmlega 72
þúsund lestir af sfld á þessari vertíð
og er það um 15% aukning frá
fyrra ári.
Samkvæmt upplýsingum veiði-
eftirlitsins nam úthlutaður kvóti að
þessu sinni 72930 lestum. 91 skip
hafði leyfi til síldveiða en aðeins 56
skip nýttu sér það leyfi. 33 skip
framseldu kvóta, alls 26446 lestir
og tvö skip nýttu sér hvorki veiði-
leyfi né framsalsrétt.
Af heildaraflanum, fóru rúm-
Loka-
spretturinn
Síðustu síldarbátarnir í vertíð-
inni lönduðu afla sl. miðvikudag.
Mest af þeirri sfld fór í frystingu en
dálítið í söltun. Að sögn Kristjáns
Jóhannessonar hjá Síldarútvegs-
nefnd hafði ekkert heyrst frá Sov-
étmönnum varðandi kaup á við-
bótarmagni af saltsíld og hann taldi
því fullvíst að síldarvertíð lyki nú í
vikunni, enda væru flestir síldar-
bátarnir komnir á aðrar veiðar eða
væru að búa sig á þær.
Sl. þriðjudagsmorgun var alls
búið að salta í 256.170 tunnur og
voru Eskfirðingar að venju drýgst-
ir við söltunina. Par hafði verið
saltað í 39844 tunnur en á Höfn var
búið að salta í 34925 tunnur. Fiski-
mjölsverksmiðja Hornafjarðar var
þá hæsta söltunarstöðin með 21240
tunnur en Pólarsíld á Fáskrúðsfirði
var með 18561 tunnu. Þriðja í röð-
inni var svo Skinney á Höfn með
13107 tunnur og Norðursíld á Seyð-
isfirði var í fjórða sæti með 11416
tunnur.
Staða söltunar eftir höfnum, var
annars sem hér segir: Húsavík 46
tunnur. Vopnafjörður 11193,
Borgarfjörður eystri 2357, Seyðis-
fjörður 22421, Neskaupsstaður
5876, Eskifjörður 39844, Reyðar-
fjörður 25431, Fáskrúðsfjörður
23167, Stöðvarfjörður 6203,
Breiðdalsvík 6968, Djúpivogur
9318, Höfn 34925, Vestmannaeyja
12565, Þorlákshöfn 10347, Grinda-
vík 28932, Keflavík 3393. Hafnar-
fjörður 969, Reykjavík 1694,
Akranes 10521.
lega 51 þúsund tonn í söltun og
frystingu eða u.þ.b. 70% aflans.
Um 21 þúsund tonn fóru til
bræðslu eða u.þ.b. 30% aflans. Til
samanburðar má nefna að í fyrra
fóru um 18% heildaraflans í
bræðslu.
Að sögn Arnar Traustasonar
bar það til tíðinda á þessari vertíð
að allur aflinn veiddist í nót en
rekneta- og lagnetaveiðar sem
hafa verið mikið stundaðar hér við
land virðast nú alveg vera að leggj-
ast af.
Að sögn Einars Benediktsson-
ar, er útflutningsverðmæti saltsíld-
ar á Sovétmarkað á milli 700 og
800 milljónir króna að þessu sinni
og þegar samningarnir við Svía og
Finna eru teknir með í reikning-
inn, er heildarútflutr.ingsverðmæt-
ið hátt í einn milljarður króna.
Sem fyrr segir er útflutnings-
verðmæti saltsíldar frá Eskifirði að
þessu sinnu u.þ.b. 150 milljónir
króna en það þýðir með öðrum
orðum um 142 þúsund krónur á
hvern hinna 1056 íbúa bæjarins.
Næst á eftir Eskifirði kemur Höfn
með um 135 millj. króna útflutn-
ingsverðmæti og Grindavík í
þriðja sæti með u.þ.b. 115 millj.
króna. Þessar tölur sýna svo ekki
verður um villst þýðingu síldveiða
og síldarsöltunar fyrir viðkomandi
byggðarlög.
RAMMISLENSK
BARMBÓK
Ævintýri - sögur
bænir - kvæði - leikir
gátur - þrautir og föndur
2. útgáfa þessarar vinsælu og tallegu rammíslensku barnabókar. í bókinni
eru ævintýri, sögur, bænir, kvæði, leikir, gátur, þrautir og föndur. Haukur
Halldórsson myndskreytti bókina en Jóhanna Thorsteinsson fóstra valdi
efnið. Þetta er einstök barnabók sem börn grípa til aftur og aftur og þetta
er óskabók foreldra sem vilja velja börnum sínum gott og uppbyggilegt
lestrarefni.
Aðalskrifstofur: Ármúla 18 - Simi 82300 Frjálstframtak