Storð : heimur í öðru ljósi - 01.04.1983, Page 31
undirtón og rokkívafi“ og ekki
laust við að Ragga minnti á Edit
Pjaff andartak þegar hún brá fyrir
sig frönskunni. Ekki var hún samt
ánægð með árangurinn, síður en
svo: Við skulum reyna að vera
svolítið fóní svo að ég noti mál
Stuðmanna, sagði hún. Við þurf-
um að vera rytmískar. Og í þeim
töluðu orðum skipti trommuleik-
arinn yfir á allegró fortissímó, ef
ég man rétt.músíkmálið hans Ing-
Bílskúrsæfingin í
algleymingi.
Trommarinn í
leðurhönskunum,
Linda Björk, skipti yfir
í „allegró fortissímó“,
enda „er hægt að
spýta út hvaða hraða
sem er“.
Alþingismaðurinn
tróð hins vegar
bómullarhnoðrum í
eyrun. Á litlu
myndinni til vinstri er
gítarleikarinn Inga
Rún með torræðan
svip.
ólfs Guðbrandssonar frá því í
Laugarnesskólanum í gamla daga.
Auðvitað hressti spretturinn upp á
sálarlífið og færði tónsmíðarnar
upp á léttara plan: Það er hægt að
spýta út hvaða hraða sem er, sagði
tromman og lét vel yfir sér.
— Það er betri fílingur að flytja
sitt eigið efni. Betri samviska,
sagði Ragga þá. Ef við ætlum að
sýna framfarir og þróun er nauð-
synlcgt að breyta sándinu til að
músíkin verði fjölbreytt. Ég hef
orðið mér út um synthesizer. (Ha?
spurði ég. Hljóðgervil, svaraði hún
og ég var jafnnær). Þegar ég verð
búin að fá hann, verður sándið
fjölbreytilegra.
— En hvað sækir fólkið í þessa
músík? sagði ég til þess að segja
eitthvað.
— Það er alltaf til einhver tísku-
músík og einhver ímynd sem mað-
ur vill halda í. Það er ekki hægt að
lifa án þess að hafa eitthvað til
þess að dá og dýrka. Sumir eru
trúhneigðir, aðrir artistar. Það er
lögmál hjá fólki. Ef maður dýrkar
einhvern er það vegna þess að undir-
meðvitundina langar til að vera
svoleiðis.
— Áttu við Elvis Presley?
— Hann var afsprengi bljúsins.
Það er til margs konar rokk. He-
avy-Metal rokk, New Wave rokk
og Pop rokk. Aðalmunurinn á Elv-
is Presley og stóru stirnunum í
dag er sá, að hans græjur voru
aðeins 50—100 vött en nú eru
stórstirnin með a.m.k. 30 þús.
vött. Þessi hávaði hefur áhrif á
fólkið. Það er eins og að sprauta
beint inn í æð. Það verður sljótt af
hávaðanum, er undir áhrifum.
— Þegar stórstirni kemur fram
erlendis er einhver góð grúppa eða
band fengið til að spila á undan og
hita upp áheyrendur. En fyrir því
er aldrei klappað. Þetta er það
leiðinlega við bransann. En um
leið og stórstirnið sýnir sig tryllist
salurinn. Það er búið að búa til
eftirvæntingar fyrir fólkið. Það
getur verið spurning um peninga
til að vekja upp áhrif. Það getur
líka verið tilviljun eða heppni.
29 STORÐ