Storð : heimur í öðru ljósi - 01.04.1983, Blaðsíða 115
HSkákrin
Dæmigerö mynd fyrir einvígiö: Spassky situr sem límdur viö skákborðið, en af skugganum á veggnum má ráða að
Friðrik hefur staðið upp og virðir stöðuna fyrir sér úr nokkurri fjarlægð. Ljósmyndirnar tók Páll Stefánsson.
HVÍTT: BORIS SPASSKY
SVART: FRIÐRIK ÓLAFSSON
Caro-Kann
1. e2 —e4 c7 — c6
2. d2 — d4 d7 — d5
3. e4 — e5 ....
S: Þetta er það kerfi, sem nú er í
tísku. Inntakið í því er að skapa
erfiðleika fyrir hvítreita biskup
svarts.
F: Spassky hefur upp á síðkastið haft
meira dálæti á þessu afbrigði en
hinu venjubundna framhaldi 3.
Rc3 o.s.frv.
3..... Bc8 — f5
4. h2 — h4
S: Þetta afbrigði er vel þekkt frá
seinna heimsmeistaraeinvígi þeirra
Botvinniks og Tals 1961. Með
þessum leik kemur hvítur í veg
fyrir 4. — , e6 vegna þess að þá
kæmi 5. g4 og svarti biskupinn
lendir í vandræðum.
F: Annað mjög hvasst framhald er 4.
Rc3 , e6 5. g4 , Bg6 6. Rge2
o.s.frv.
4....... h7 — h5
F: Að sjálfsögðu ekki 4. — , e6 vegna
5. g4 og svarti biskupinn fellur.
5. c2 — c4 d5 x c4(!?)
S: Bandaríski stórmeistarinn Seiravan
lék hér 5. — , Bxbl 6. Hxbl , e6
7. a3 , Rd7 8. Rf3 , g6 9. Bg5 ,
Be7 10. cxd5 , cxd5 11. Bd3 og
hvítur stendur betur. (Spassky —
Seiravan, London 1982.)
F: Það er álitamál, hvert er besta
framhald svarts í stöðunni. í skák
milli Spasskys og bandaríska stór-
meistarans Seiravan í London
1982 varð framhaldið 5. —, Bxbl
6. Hxbl , e6 7. a3 , Rd7 og hvítur
náði betra tafli eftir 8. cxd5 , cxd5
9. Bd3. Með því að drepa á c4
reyni ég að tryggja gott tak á d5-
reitnum og skapa árásarmark á d4.
6. Bfl x c4 e7 — e6
7. Rbl — c3 Rg8 — e7
8. Bcl — g5 Dd8 — b6
S: Þessi áætlun byggist á því að hróka
langt. í skákinni Spassky-Lobron,
Hamborg 1982, varð framhaldið 8.
— , Rd7 9. Rge2 , Rb6 10. Bb3 ,
Dd7 11. 0-0 , Red5 12. Rg3 , Bg6
13. Rce4 og hvítur stendur betur.
F: Til að losa riddarann úr leppuninni
og undirbúa eftir atvikum langa
hrókun.
9. Rgl — e2 Rb8 — d7
S: Eftir 9. — , Dxb2 10. 0-0 fengi
hvítur betri stöðu fyrir peðsfórnina
og góða sóknarmöguleika á drottn-
ingarvængnum.
F: Spassky afræður að fórna peði til
að virkja lið sitt se_m skjótast, en
ég afþakka boðið. í sjálfu sér er
peðið ekki „eitrað“, en dýrmætur
tími færi í það að koma svörtu
drottningunni aftur í örugga höfn.
Auðvitað er álitamál, hvort hvítur
fengi nægileg færi fyrir peðið. Lík-
legt framhald gæti orðið (eftir 9.
— , Dxb2) 10. 0-0 , Rd7 11. Bd3
og opnar b- og c-línur hvíts gætu
reynst svarti þungar í skauti.
10. 0-0 0-0-0
F: Hótar nú 11. — , Rxe5.
113 STORÐ