Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2002, Page 30

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2002, Page 30
Múlaþing stóra kláfa sem tóku 5-6 hneppi eða íjórðunga af heyi. Svo vóru búnar til stórar hlóðir í eldhúsi sem náðu útyfir kláfmn. I þessar hlóðir var raðað taði og kveikt í og þegar það var nokkum veginn útbrunnið var kláfurinn tekinn og hengdur uppyfir glóð- ina, nokkuð frá því nú byrjaði breiskingin fyrir alvöru. Þegar nú breiskingin þótti orðin nóg vóru teknir nokkrir sauðarklippingar og breiddir á eldhúsgólfíð og grösin Iátin á þá; þvínæst lagðist maður á bæði knje og barði ofan á binginn eða hrúguna með hand- leggjunum og mölnuðu þau þá gjörsamlega. Svo var tekið sáld, sem kallað var, og var til á hverju heimili og um teningsalin á vídd, en 3-4 þuml. á vídd.7 Neðan á það var þan- inn bjór sem stungin vóru göt á og grösin sigtuð á því; sigtuðust þá mestöll óhreinindi frá þeim, og seinast vóru þau látin í trog og það hrist til. Settist þá enn fínt dust á botn- inn, sem var blásið í burtu, og svo gengið frá grösunum síðast í tunnu og í hana troðið eða stappað með trjehnalli. í tunnuna átti að fást úr klyfsekk. Svo var þetta látið útá grauta með mjöli. Stundum var það haft eintómt útá ysta áagrauta og stundum var safnað mikilli mjólk og hún hleypt með blöndu og grösin látin í áður; svo var þessi grautur geymdur til vetrarforða í tunnum og brúkaður sem ofanílát í mjólk. Jón heldur að þessi verkun á grösum sje frá landnámatíð. Þetta segir Jón um skógana í Fljótsdal og á Hjeraði Hann segist hafa heyrt ungur að skógar hafi eyðst eða fallið í Fljótsdal um 1625-30 af maðki. Hann segir eptir Sólveigu Pálls- dóttur, ömrnu sinni á Melum, að Margrjet móðir hennar hafi þekkt kerlingu í sínu ungdæmi sem sagði að þegar hún var ung hafi Stuliuflatarnes verið hvítt af sprekum. Eptir því sem Jón segir um aldur þeirra hefur þetta verið snemma á 17ndu öld. Páll faðir Jóns segir í sínu ungdæmi hafi verið svo mikill skógur á Melum að opt hafí orðið leit úr kúnum út og upp á Stekkabölum. Nú er þar ekki nokkur kvistangi til. Jón segist hafa heyrt að Eiríkur Bárðarson bóndi, sem bjó á Hrafnkellsstöðum fram að aldamót- um, hafi höggvið braut af Kirkjuhamrinum (hann er við Jökulsána fyrir utan Hrafn- kellsstaði) austur yfir háls að Gilsá og hlaðið garð úr skóginum til varnar því að lömbin slyppu inneptir. Þau hafði hann á Rananum fyrir utan. Fyrir aldamótin bjó á Arnaldsstöðum Einar Rollantsson; hann fjekk bóndann í Víðivallagerði til að höggva skóg með sjer einn dag fyrir utan og ofan bæinn. Þeir hjuggu 300 rapta um daginn og afkvistuðu og bunkuðu. Síðan fúnaði þetta allt niður og segist Jón hafa sjeð þess glögg merki og þau muni jafnvel sjást enn. Um 1810 var skógurinn svo þjettur á Arnaldsstöðum að Guðmundur Árnason, sem þar bjó þá, hjó braut í gegnum skóginn til að geta komið fje til beitar út í Múlann. Heitir þar síðan Götuhjalli. Jón segir að mestur skógur hafi verið hjer í sveitinni í öllum Suðurmúla utan frá Langhúsum alla leið innst í Þorgerðar- staðahlíðar. Stöppuskógur8 í Þorgerðarstað- hlíðum var stórvaxnastur eða stærstur en Valþjófsstaðaprestar ljetu höggva hann miskunnarlaust því árlega vóru fluttir þangað heirn 100 hestar. Mest ljetu þeir höggva hann síra Vigfús og síra Stefán og mun það enda hafa haldist talsvert við þar 7 Líklega misritun. Hlýtur að vera átt við að sáldið sé alin á hvern veg og 3 til 4 þumlungar á dýpt. 8 Þetta örnefni er nú týnt en þekkt er Stöppusel, Stöppuklif og Stöppufoss á Þorgerðarstaðadal. 28
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.