Fréttablaðið - 25.11.2021, Síða 2
svavamarin@frettabladid.is
LÖGREGLUMÁL Jón Þór Ólafs-
son, fyrrverandi þingmaður og
u mboðsmaðu r f ra mboðslist a
Pírata í síðustu kosningum, hefur
kært Inga Tryggvason, oddvita
yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjör-
dæmi, til lögreglu fyrir kosninga-
svindl.
Ingi segist ekki hafa fengið kær-
una í sínar hendur, né vita um hvað
hún snýst. „Ég hef ekkert um þetta
að segja, ég hef bara séð eitthvað
af þessu í fjölmiðlum,“ sagði Ingi í
samtali við Fréttablaðið í gærkvöld
og vildi að öðru leyti ekki tjá sig um
málið.
Ingi vildi ekki tjá sig um það
hvort hann ætlaði að greiða sektina
sem yfirkjörstjórn Norðvesturkjör-
dæmis hlaut vegna óinnsiglaðra
atkvæða eftir að talningu lauk í
alþingiskosningunum 25. septem-
ber síðastliðinn.
„Ég hef ekki greitt sektina,“ segir
Ingi og segist ekki hafa fengið ítrek-
un frá lögreglu vegna málsins. n
Kaupmaður á Akureyri hefur
staðið á búðargólfinu í 56 ár og
stefnir að 14 árum til viðbótar
í fatasölu. Klýfur fjöll þess á
milli.
bth@frettabladid.is
VIÐSKIPTI „Ég fór út í þennan bransa
vegna þess að ung stúlka, Guðný, við
vorum bara 14-15 ára, er dóttir Jóns
M. Jónssonar sem stofnaði þessa
búð,“ segir Ragnar Sverrisson, kaup-
maður í JMJ á Akureyri, sem fagnaði
56 ára starfsafmæli í vikunni.
„Við Guðný urðum kærustupar
og trúlofuðum okkur 1965, fyrir 56
árum. Tengdapabba vantaði strák
í búðina og hann réði mig á stund-
inni. Ég hef ekki sloppið síðan,“ segir
Ragnar.
Hann er 72 ára gamall og hefur
reyndar ekki gert mikið til að sleppa
úr búðinni heldur þvert á móti. Fyrir
þremur árum tóku börn hans við
fyrirtækinu. Þá slagaði Ragnar í sjö-
tugt og börnunum fannst að komið
væri nóg hjá honum. Eitt barnanna
nefndi að hann ætti inni að minnsta
kosti fimm ára sumarfrí.
„Ég gekk um götur bæjarins í
nokkra mánuði, fór þvisvar á dag í
líkamsrækt en mér bara hundleidd-
ist,“ segir Ragnar.
„Þetta endaði með því að börnin
sáu aumur á mér og sögðu: Heyrðu
gamli, komdu þá og vertu hjá okkur
hálfan daginn. Ég greip það tækifæri
fegins hendi en auðvitað hefur þessi
hálfi dagur þróast í það að nú kem ég
fyrstur og fer síðastur eins og ég hef
alltaf gert.“
Ragnar er þjóðkunnur fyrir úti-
vistaráhuga sinn og þá ekki síst
fjallaklifur. Hann segist leita upp í
tindana nánast allar helgar nema
í desember, þá sé of mikið að gera.
Þá hjólar hann og lyftir í ræktinni.
Hann segist mjög heppinn með
heilsuna.
„Það er alltaf gaman í vinnunni
vegna þess að ég hef endalaust
gaman af því að umgangast fólk og
er frekar geðgóður í búðinni, þótt
Ingi Tryggvason,
oddviti yfirkjör-
stjórnar í Norð-
vesturkjördæmi
Ég gekk um götur
bæjarins í nokkra
mánuði, fór þvisvar á
dag í líkamsrækt en
mér bara hundleiddist.
Ragnar Sverrisson
Kjörbréfamálið á dagskrá
Getur ekki hætt að selja föt
Ragnar nýtur glaðbeittur enn hverrar mínútu í búðinni en það var ástin sem
opnaði leiðina fyrir hann inn í fataheiminn á sínum tíma. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
elinhirst@frettabladid.is
STJÓRNMÁL Kristján Þór Júlíusson
situr enn sem starfsráðherra í sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðuneyti
þar til ný ríkisstjórn tekur við.
Kristján Þór var ekki í fram-
boði og ætlar að draga sig í hlé frá
stjórnmálum, en þarf enn að mæta
til vinnu, tveimur mánuðum eftir
alþingiskosningarnar.
„Mér líður alls ekki eins og ég sé
á einhvern hátt lokaður af, það eru
alltaf áhugaverð og skemmtileg
verkefni til að sinna í ráðuneytinu
og ég geng til þeirra eins lengi og mér
ber skylda til,“ segir Kristján Þór.
Aðspurður hvort ekki sé farið að
styttast í að nýr ráðherra taki við
kveðst Kristján vonast til þess. „Í
öllu falli trúi ég að þetta gangi allt
upp löngu fyrir blessuð jólin.“
Kristján Þór segist ekki farinn að
huga að því hvað hann ætli að gera
þegar hann losnar úr ráðuneyt-
inu. Hann hafi verið búinn undir
að endurnýjun stjórnarsamstarfs-
ins gæti tekið tíma, enda verk sem
vanda þurfi til.
„Ég hlakka til að hafa meira frelsi
og ráða meira tíma mínum og verk-
efnum, en auðvitað er eftirsjá að
því að hverfa frá skemmtilegum
viðfangsefnum og vinnufélögum.
Tilfinningarnar verða því ef laust
blendnar þegar kemur að þessu,“
segir Kristján Þór Júlíusson, sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra. n
Kristján mun sakna vinnufélaganna
Kristján Þór
Júlíusson,
sjávarútvegs- og
landbúnaðar-
ráðherra
Á léttu augna-
bliki í búðinni á
níunda áratug
síðustu aldar
með samstarfs-
mönnum.
MYND/AÐSEND
ég segi sjálfur frá. Þjónustulundin
átti strax mjög vel við mig, ég er ekki
betri í neinu öðru en að þjóna fólki
og spjalla við það.“
Um breytingarnar á ríflega hálfri
öld í fatabransanum segir Ragnar að
fyrir 56 árum hafi tengdapabbi hans
rekið heljarstóra saumastofu þar
sem tæplega 100 manneskjur á Akur-
eyri, mest konur, unnu á vöktum.
„Þær saumuðu gallabuxur, skyrtur
og annað en nú er allt flutt inn.
Spurður hvenær hann ætli að
hætta segist hann eiga eftir 28 ár.
„Helminginn af þeim tíma, næstu
fjórtán árin, ætla ég að vera áfram
í búðinni,“ svarar öldungurinn og
skellihlær. n
Þingfundur hefst klukkan eitt í dag. Má búast við að umræður um kjörbréfamálið standi yfir í allan dag. „Ég á ekki von á að umræður dragist langt fram á
kvöld,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, starfandi þingforseti. Þó þurfi tíma til að ræða málið. Atkvæðagreiðslu verði frestað til morguns, dragist um-
ræður mjög. Búist er við að greidd verði atkvæði um þrjár tillögur og að sú tillaga sem lengst gangi verði afgreidd fyrst og svo koll af kolli. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Ingi veit ekki um
hvað kæran snýst
2 Fréttir 25. nóvember 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ