Fréttablaðið - 25.11.2021, Síða 12

Fréttablaðið - 25.11.2021, Síða 12
Þingið býður 250 krónur á hvert skinn en bændur vilja 323. Eftir að hafa neyðst til þess að lóga öllum dýrum sínum hafa minkabændur í Dan- mörku lögsótt ríkið. Telja þeir bæturnar sem þingið hefur boðið of lágar. Málið skók danska stjórnmálaheiminn í fyrra. kristinnhaukur@frettabladid.is DANMÖRK Eigendu r d a nsk r a minkabúa hafa lögsótt danska ríkið vegna skipunar um að af lífa öll dýrin. Skipunin var gefin út í nóvember árið 2020 vegna stökk- breytts af brigðis Covid-19 og olli miklu fjaðrafoki. Krefjast bænd- urnir þess að fá 600 milljónir danskra króna, eða um 12 millj- arða íslenskra króna, aukalega í bætur ofan á það sem þingið hefur ákveðið. Danska þingið hef ur þegar ákveðið að bæta bændunum skað- ann. Verður bændum boðnar 250 danskar krónur fyrir hvert skinn, eða tæpar 5 þúsund íslenskar krón- ur. Alls er pakkinn 19 milljarðar danskra króna og 2,5 milljarðar hafa þegar verið greiddir út. Þetta eru bændurnir ekki sáttir við því að meðalverð skinna á mörkuðum í ár er 323 krónur, og vantar því 73 krónur upp á. Er krafa bændanna byggð á þessum mun. „Dýrin, sem var lógað í nóvember í fyrra, átti að selja í ár. Þess vegna ættum við að fá greitt samkvæmt núverandi verðlagi,“ sagði Jens Jensen minkabóndi í samtali við sjónvarpsstöðina TV2. Mette Fredriksen forsætisráð- herra tilkynnti þann 4. nóvember í fyrra að allar 15 milljónir minka landsins skyldu af lífaðar sam- stundis. Sagði hún að hið stökk- breytta af brigði sem fannst gæti ógnað væntanlegum bóluefnum, en á þeim tíma voru fyrstu bólu- efnin að líta dagsins ljós. Eftir rannsóknir fannst kóróna- veiran í alls 207 minkabúum og hið stökkbreytta af brigði dró úr næmi mótefnanna. Minkabændur lýstu aðgerðunum sem endalokum minkaræktunar í Danmörku. Málið hafði miklar pólitískar afleiðingar því að viku eftir ákvörð- un ríkisstjórnarinnar kom í ljós að ekki hafði reynst lagalegur grund- völlur fyrir henni. Þann 19. nóvem- ber axlaði Mogens Jensen landbún- aðarráðherra ábyrgð og sagði af sér embætti. „Ég er búinn að biðjast afsökunar og geri það aftur, sérstaklega bið ég minkaræktendur afsökunar sem eru í erfiðum aðstæðum,“ sagði Jensen. Eftir að minkarnir voru aflífaðir voru þeir urðaðir á vöktuðu svæði á vesturhluta Jótlands sem áður var æfingasvæði fyrir danska her- inn. Voru þeir grafnir einn metra ofan í jörðina en það dugði ekki til því þegar hræin rotnuðu og blésu út komu þau upp úr fjöldagröfum sínum og lágu eins og hráviði úti um allt. „Vandamálið er að jarðvegurinn hér í Vestur-Jótlandi er of léttur,“ sagði Thomas Kristensen, upplýs- ingafulltrúi ríkislögreglunnar, við ríkisútvarpið DR þann 24. nóvem- ber. Var þó talin lítil smithætta af fjöldagröfunum. n Minkabændur krefjast milljarða frá danska ríkinu 15 milljónir minka voru urð- aðar á heræf- ingasvæðinu í Holstebro. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP Gerðu þína eigin þakkargjörð! Pssst ... Mmm ... Ljúfengur matur með fjölskyldu eða vinum! Afgreiðslutímar á www.kronan.is ALLAR PIZZUR AF MATSEÐLI Á 1.690 KR. EF ÞÚ SÆKIR, 22.–29. NÓV. 2021 Tímapantanir á opticalstudio.is og í síma 511 5800 SMÁRALIND • HAFNARTORG • KEFLAVÍK Sjónmælingar eru okkar fag 12 Fréttir 25. nóvember 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.