Fréttablaðið - 25.11.2021, Blaðsíða 22
Á Víknaslóðum er aragrúi skemmtilegra örnefna sem
lífga enn frekar upp á stórkostlega náttúruna. Má þar
nefna Kjólsvík en hún liggur milli fjallanna Glettings
(554 m) og Grenmós, norðan Breiðuvíkur. Í Kjólsvík er
undirlendi lítið en skriðuhlaup úr snarbröttum hlíðum
Glettings setja svip sinn á landslagið. Óvenjulegt nafn
sitt dregur víkin af kletti í hlíðum Glettings sem kallast
Kjóll, orð sem í fornu máli var notað yfir bátskjöl. Engu
að síður var útræði aldrei stundað frá klettóttri Kjólsvík
og brugðu bændur sér því yfir Gletting út á Glettingsnes
til að sækja þar sjó. Í Víkinni var hins vegar stundaður
landbúnaður alveg fram til 1938, aðallega sauðfjár-
rækt, oft við afar erfiðar aðstæður. Má sjá rústir eyði-
býlisins skammt frá ströndinni. Þarna gerðust válegir
atburðir árið 1705, sem leiddu til þess að þremur árum
síðar var vinnukonunni Hallfríði Magnúsdóttur drekkt
í Drekkingarhyl á Þingvöllum. Átti hún að hafa sængað
með bæði Ólafi Kolbeinssyni vinnumanni á bænum og
bóndanum Sigmundi Vigfússyni, sem var giftur þriggja
barna faðir. Í vettvangskönnun sýslumanns til Kjóls-
víkur sá hann að úr brjóstum Hallfríðar lak mjólk, en
barnið fannst síðan eftir leit, niðurgrafið skammt frá
bænum. Sagði Hallfríður Ólaf hafa borið út barnið.
Fyrir þetta var Ólafur hálshöggvinn en Sigmundur
aðeins dæmdur til húðstrýkingar fyrir hórdómsbrot.
Þótti dauðadómur Hallfríðar og Ólafs endurspegla bága
réttarstöðu vinnuhjúa á þessum tíma.
Óhætt er að mæla með heimsókn í Kjólsvík en þangað
er aðeins hægt að komast gangandi eða ríðandi. Fyrst er
haldið upp á Kjólsvíkurvarp og er einfaldast að komast
þangað sunnan úr Breiðuvík, þar sem er vistlegur skáli
Ferðafélags Fljótsdalshéraðs og tjaldstæði. Annar val-
kostur er að hefja gönguna í Borgarfirði og fylgja Þránd-
arhrygg að Kjólsvíkurvarpi. Þaðan liggur stórkostleg
gönguleið meðfram klettóttum hlíðum Glettings, eftir
svokölluðum Kjólsvíkurmelum, yfir Hall og niður Háu-
hlaup að gamla bæjarstæðinu. Þarna leitar hugurinn
ósjálfrátt að lífsbaráttu þeirra sem þarna náðu að draga
fram lífið á einhverjum afskekktasta stað á Íslandi. Í
norður glottir Glettingur og erfitt að sjá fyrir sér hvernig
hægt var að klöngrast yfir hann til að sækja sér björg í
bú. Á leiðinni til baka er fylgt sömu leið, annað hvort
aftur til Breiðuvíkur eða haldið yfir í Borgarfjörð eftir
Þrándarhrygg. n
Glettilega
falleg Kjólsvík
Ólafur Már
Björnsson
augnlæknir og
ljósmyndari
Tómas
Guðbjartsson
hjartaskurð
læknir og náttúru
unnandi
FÓKUS Á HJARTA LANDSINS
Strönd Kjóls-
víkur er klettótt
og hentar því
ekki fyrir út-
ræði. Í staðinn
var stundaður
þar búskapur
og þegar mest
lét bjuggu þar
16 manns. Í
forgrunni sjást
rústir gamla
bæjarins og
fjallið Grenmór í
fjarlægð.
MYND/ÞÓRHALLUR
ÞORSTEINSSON
Gönguleiðin
niður í Kjólsvík
er mikið fyrir
augað og hlíðar
Glettings skarta
litríku líparíti.
MYND: TG
Ofan Kjólsvíkur eru fallegar tjarnir sem fífa og ský ná að spegla sig í. MYND/TG
25. nóvember 2021 FIMMTUDAGUR