Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.11.2021, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 25.11.2021, Qupperneq 22
Á Víknaslóðum er aragrúi skemmtilegra örnefna sem lífga enn frekar upp á stórkostlega náttúruna. Má þar nefna Kjólsvík en hún liggur milli fjallanna Glettings (554 m) og Grenmós, norðan Breiðuvíkur. Í Kjólsvík er undirlendi lítið en skriðuhlaup úr snarbröttum hlíðum Glettings setja svip sinn á landslagið. Óvenjulegt nafn sitt dregur víkin af kletti í hlíðum Glettings sem kallast Kjóll, orð sem í fornu máli var notað yfir bátskjöl. Engu að síður var útræði aldrei stundað frá klettóttri Kjólsvík og brugðu bændur sér því yfir Gletting út á Glettingsnes til að sækja þar sjó. Í Víkinni var hins vegar stundaður landbúnaður alveg fram til 1938, aðallega sauðfjár- rækt, oft við afar erfiðar aðstæður. Má sjá rústir eyði- býlisins skammt frá ströndinni. Þarna gerðust válegir atburðir árið 1705, sem leiddu til þess að þremur árum síðar var vinnukonunni Hallfríði Magnúsdóttur drekkt í Drekkingarhyl á Þingvöllum. Átti hún að hafa sængað með bæði Ólafi Kolbeinssyni vinnumanni á bænum og bóndanum Sigmundi Vigfússyni, sem var giftur þriggja barna faðir. Í vettvangskönnun sýslumanns til Kjóls- víkur sá hann að úr brjóstum Hallfríðar lak mjólk, en barnið fannst síðan eftir leit, niðurgrafið skammt frá bænum. Sagði Hallfríður Ólaf hafa borið út barnið. Fyrir þetta var Ólafur hálshöggvinn en Sigmundur aðeins dæmdur til húðstrýkingar fyrir hórdómsbrot. Þótti dauðadómur Hallfríðar og Ólafs endurspegla bága réttarstöðu vinnuhjúa á þessum tíma. Óhætt er að mæla með heimsókn í Kjólsvík en þangað er aðeins hægt að komast gangandi eða ríðandi. Fyrst er haldið upp á Kjólsvíkurvarp og er einfaldast að komast þangað sunnan úr Breiðuvík, þar sem er vistlegur skáli Ferðafélags Fljótsdalshéraðs og tjaldstæði. Annar val- kostur er að hefja gönguna í Borgarfirði og fylgja Þránd- arhrygg að Kjólsvíkurvarpi. Þaðan liggur stórkostleg gönguleið meðfram klettóttum hlíðum Glettings, eftir svokölluðum Kjólsvíkurmelum, yfir Hall og niður Háu- hlaup að gamla bæjarstæðinu. Þarna leitar hugurinn ósjálfrátt að lífsbaráttu þeirra sem þarna náðu að draga fram lífið á einhverjum afskekktasta stað á Íslandi. Í norður glottir Glettingur og erfitt að sjá fyrir sér hvernig hægt var að klöngrast yfir hann til að sækja sér björg í bú. Á leiðinni til baka er fylgt sömu leið, annað hvort aftur til Breiðuvíkur eða haldið yfir í Borgarfjörð eftir Þrándarhrygg. n Glettilega falleg Kjólsvík Ólafur Már Björnsson augnlæknir og ljósmyndari Tómas Guðbjartsson hjartaskurð­ læknir og náttúru­ unnandi FÓKUS Á HJARTA LANDSINS Strönd Kjóls- víkur er klettótt og hentar því ekki fyrir út- ræði. Í staðinn var stundaður þar búskapur og þegar mest lét bjuggu þar 16 manns. Í forgrunni sjást rústir gamla bæjarins og fjallið Grenmór í fjarlægð. MYND/ÞÓRHALLUR ÞORSTEINSSON Gönguleiðin niður í Kjólsvík er mikið fyrir augað og hlíðar Glettings skarta litríku líparíti. MYND: TG Ofan Kjólsvíkur eru fallegar tjarnir sem fífa og ský ná að spegla sig í. MYND/TG 25. nóvember 2021 FIMMTUDAGUR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.