Fréttablaðið - 25.11.2021, Page 34

Fréttablaðið - 25.11.2021, Page 34
Dýrasta ilmvatn í heimi nefnist nefni- lega Clive Christian’s Imperial Majesty en 30 ml kosta um 350 þúsund krónur. Það er líklega enginn vafi á því að Chanel No. 5 er mest selda ilmvatn allra tíma. Ilmvatnið sló rækilega í gegn þegar Marilyn Monroe sagð- ist einungis vera í Chanel No. 5 í rúminu í viðtali árið 1952. elin@frettabladid.is Þótt Coco Chanel hafi þróað Chan­ el No. 5 á sínum tíma og Marilyn gert það að eftirsóttri vöru er langt frá því að það sé dýrasta ilmvatnið á markaðnum. Dýrasta ilmvatn í heimi nefnist nefnilega Clive Christian’s Imperial Majesty en 30 ml kosta um 350 þúsund krónur. Það var árið 2006 sem Clive Christian ákvað að bjóða upp á algjörlega sérstakan ilm í glæsilegu glasi sem hann og glerblásara­ meistarar framleiðanda hins virta franska Baccarat kristals byggju til. Þetta vildi hann gera fyrir mjög sérstaka viðskiptavini. Ilm­ vatnsglasið sjálft er úr slípuðum kristal með 18 karata gulli og 5 karata demanti. Svo dýrmætar eru umbúðirnar að aðeins tíu stykki voru búin til. Sjö stykki voru keypt af einkasöfnurum en hin þrjú ferðast um heiminn sem hluti af sérstöku safni Clive Christian. Sjálfur kallar hann vöruna ilmvatn hjarta síns. Ilmvatnið hefur komist í heimsmetabók Guinness fyrir að vera dýrasta ilmvatn í heimi. Flaska af DKNY Golden Deli­ cious sem er skreytt skartgripum Dýrustu ilmvötn heims Marilyn Monroe gerði Chanel No. 5 að einu eftirsóttasta ilmvatni allra tíma þegar hún sagði í viðtali árið 1952: „Fimm dropar af Chanel No. 5 og ekkert annað í rúminu.“ Þessum orðum gleymir enginn. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Tíu dýrustu ilmvötnin 1 Joy Baccarat Pure Parfum, Limited Edition Þetta ilmvatn kostar um 235 þúsund krónur hjá Bergdorf Goodman í New York. Ilmvatnið skapaði Jean Patou árið 1930 og hefur ávallt verið hátt verðlagt enda hefur ilmurinn að geyma 10.600 jasmínblóm og 28 tugi rósa í hverri flösku. Þetta ilmvatn var lengi það dýrasta sem hægt var að fá. Ilmvatnið er alltaf framleitt í mjög takmörkuðu upplagi. 2 Les Royales Exclusives Jardin d’Amalfi Fragrance Þessi ilmur kemur frá breska ilmvatnshúsinu Creed en þaðan komu einmitt uppáhaldsilmir þeirra Audrey Hepburn og Grace Kelly. Creed kynnti þennan Royal Exclusives ilm árið 2011 til að fagna 250 ára afmæli fyrirtækis- ins. Ilmurinn á að vera slakandi og minna á ítalskan skrautgarð með blómum og ávöxtum ásamt sedrusviði og kanil. Flaskan er handblásin og glasið kostar rúmlega 130 þúsund krónur í Nordstrom. 3 Original Collection No. 1 Feminine Þessi ilmur kemur líka frá Clive Christian sem fann upp dýrasta ilm í heimi. Hægt er að fá þennan ilm fyrir tæpar 70 þúsund í Saks Fifth Avenue í New York. 4 Roja Haute Luxe Það var Roja Dove sem setti þennan ilm á markað en hann þykir magnaður hönnuður í ilmvatnsframleiðslu. Óhræddur við að blanda saman blóma- angan við alls kyns krydd eins og engifer, kanil, negul og fleira. Aðeins 500 eintök eru framleidd á hverju ári af þessum ilmi sem kostar rétt tæpa hálfa milljón í Saks Fifth Avenue í New York. 5 Amorem Rose Parfum in Lalique Crystal Flacon Þetta ilmvatn er unnið af ilm- vatnsmeistaranum Maurice Roucel. Ilmurinn er með keim af búlgarskri rós, saffranblómum og mahoníviði. Ilmurinn er í fal- legu glasi úr kristal sem táknar flug ástarinnar. Þetta ilmvatn kostar 394 þúsund krónur hjá Bergdorf Goodman í New York. 6 Maison Francis Kurkdjian Paris – À La Rose Vel þekktur ilmur en í hverri flösku eru 250 Grasse-rósir. Þeir segja að ilmurinn sé skapaður fyrir konur sem séu vandlátar. Flaskan kostar um 70 þúsund krónur í Nordstrom. 7 Gardenia Les Exclusifs de Chanel – Parfum Grand Extrait Glasið kostar um 70 þúsund krónur hjá Nordstrom. Þetta Chanel-ilmvatn þykir hátíska í ilmvatnssköpun. Kraftmikill ilmur sem var gerður í virðingarskyni við Coco Chanel. Til er sérstök hátíðarútgáfa í mjög takmörkuðu upplagi en verðið er töluvert hærra eða rúmar fjórar milljónir. 8 Fabulous Eau de Parfum Decanter frá Tom Ford Ilmur fyrir þær sem vilja vera gordjöss að hætti Páls Óskars. Ilmurinn þykir vera sprenging úr jurtaríkinu með lavender og salvíu, möndlum og sætri vanillu. Ilmvatnið kostar 113 þúsund í Nordstrom. 9 Love is in the Air - Limited Edition Ilmur sem ætlaður er sem gjöf til elskunnar sinnar, sem kostar um 160 þúsund hjá Bergdorf Good- man í New York. Ilmurinn þykir minna á jasmín, plómur og hafa yfir sér rómantískan blæ. Glasið er einstaklega fallega skreytt. 10 Eleganter Schwan 06 – Limited Edition perfume Albert Krigler fékk innblástur frá Neuschwanstein-kastalanum í Bæjaralandi þegar hann hann- aði þennan ilm. Kastalinn var fyrirmynd Disney í bíómyndinni um Þyrnirós. Ilmurinn ber nafn sitt af frægum svönum sem hafa komið fyrir í þekktum bókmenntum. Ilmvatnið var vinsælt á fyrri hluta 20. aldar en hefur verið endurvakið og kostar tæpar 60 þúsund hjá Krigler.com. Martin Katz, næstum 3.000 gim­ steinum og 2.700 demöntum, var seld á góðgerðaruppboði árið 2011 fyrir rúmlega 130 milljónir króna. Þá má geta þess að í Emirates­versl­ unarmiðstöðinni í Dúbaí er mögu­ legt að finna demanta­ og perlu­ húðað ilmvatnsglas, Shumukh by Spirit of Dubai, sem var verðlagt á 1,295 milljónir Bandaríkjadala eða 170 milljarða króna þegar það var frumsýnt árið 2019. Verðið á dýrustu ilmvötnum endurspeglar gjarnan það sem lagt er í umbúðirnar. Ef fólk vill hins vegar einkailm frá tilteknu fyrirtæki þarf líka að borga stóra upphæð fyrir það. Ilmvatnsfram­ leiðendur segja að því meira sem þú borgar, þeim mun minni líkur séu á að þú rekist á einhvern annan með sama ilm. Það eru mörg ilm­ vötn mjög dýr og hér eru nokkur. n 1 2 3 4 5 6 7 8 10 9 6 kynningarblað A L LT 25. nóvember 2021 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.