Fréttablaðið - 25.11.2021, Síða 56
Ég hef heyrt þetta áður.
toti@frettabladid.is
Útrásarpartíið var í blússandi gangi
þegar Bubbi Morthens seldi trygg-
ingafélaginu Sjóvá-Almennum
höfundarréttinn á öllum verkum
sínum fyrir tugi milljóna króna.
Þessi óvænta ákvörðun Bubba
lagðist misvel í fólk og Valur Gunn-
arsson, sem þá var ritstjóri Reykja-
vik Grapevine, ákvað að efna til
nokkuð sérstakra mótmæla þegar
hann fór með tuttugu Bubba-plötur
úr safni sínu og jarðaði þær á plan-
inu þar sem frystihúsið Ísbjörninn
hafði áður staðið.
Frystihúsið var vitaskuld, eins
og alþjóð veit, Bubba kröftugt
yrkisefni á fyrstu plötunni sinni,
Ísbjarnarblús, og auk þess að bera
plöturnar þar til moldar lagði Valur
hvíta rós ofan á þær „til minnis um
listamanninn Bubba Morthens sem
illa fór fyrir“, eins og hann orðaði
það í samtali við Fréttablaðið á
sínum tíma.
„Einhver varð að reyna að stoppa
Góðæris-Bubbann í okkur öllum
af,“ segir sagnfræðingurinn, rithöf-
undurinn og blaðamaðurinn, þegar
hann lítur um öxl með Fréttablað-
inu sextán árum síðar.
„Auðvitað gerir það lítið gagn til
lengdar að jarða nokkrar Bubba-
plötur, en þegar Bubbi var endan-
lega kominn á bankanna vald
fannst mér eins og vegið væri
nokkuð nálægt sál þjóðarinnar. En
kannski var ég að misskilja bæði
Bubba og þjóðina.“
Breyttir tímar
Valur hefur í seinni tíð rýnt meira
í sálir þeirra þjóða sem á sínum
tíma mynduðu Sovétríkin sálugu
og hann gerði nýlega góða grein
fyrir mannlífsrannsóknum sínum
handan gamla járntjaldsins í bók-
inni Bjarmalönd.
Járntjaldið stóð hins vegar óhagg-
að þegar Bubbi braust til frægðar og
ungur Valur eygði enn von í rokk-
inu. „Í mína tíð trúði enginn á neitt
en rokkið skipti máli og átti ekki
að vera til sölu. Nú trúa allir á eitt-
hvað, nema kannski rokkið, og allir
eru að „plögga“ eins og þeir best geta
og hafa tekjur þar sem það er hægt,
enda ekki annað hægt á tímum
þar sem plötur eru varla lengur til
og tónleikahald meira og minna
bannað. Þetta eru breyttir tímar.“
Gengisfallið gúanó
Valur gekk svo langt að segja Bubba
hafa selt sál sína þegar hann undir-
ritaði það sem þá var kallað „tíma-
Gróf Góðæris-Bubba á Ísbjarnarplani
Þunginn í andófi
Vals var slíkur
að hann jarð-
setti Bubba-
safnið sitt 2005
með einni hvítri
rós. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/VILHELM
odduraevar@frettabladid.is
Only Fans-gyðjan Edda Lovísa
Björgvinsdóttir hefur ekki farið var-
hluta af því að hún þyki sláandi lík
bandarísku söngkonunni Billie Eil-
ish. „Ég hef heyrt þetta áður,“ segir
Edda, sem er meðal tekjuhæstu
Only Fans-stjarna landsins.
„Alveg þónokkrum sinnum,“
bætir hún hlæjandi við, þegar hún
er spurð hvort henni hafi oft verið
bent á líkindin við Billie Eilish sem
hefur farið með himinskautum á
vinsældalistum vestanhafs, hér
heima og miklu víðar undanfarin ár.
Edda segist vera gríðarlega mikill
aðdáandi söngkonunnar góðu, en
hún og Billie eru einmitt jafngamlar,
báðar fæddar árið 2001 og því tutt-
ugu ára. „Uppáhaldslagið mitt með
henni er You Should See me in a
Crown.“ n
Edda Only Fans-stjarna er hin íslenska Billie Eilish
Edda Lovísa er eiginlega alveg eins og Billie Eilish og
helsti munurinn er kannski ... MYND/AÐSEND
... að hún er frek til fjörsins á Only Fans á meðan Eilish á
„million fans“. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Valur Gunnarsson hafnaði
græðgis væðingunni með því
að jarða Bubba-plöturnar
sínar á gamla Ísbjarnarplan-
inu eftir að rokkarinn seldi
Sjóvá höfundarrétt verka
sinna. Uppgjör við Góðæris-
Bubba í Borgarleikhúsinu
hefur mýkt afstöðu Vals.
mótasamningur“ við þá Þorgils
Óttar Mathiesen, forstjóra Sjóvár,
og Bjarna Ármannsson, sem var for-
stjóri Íslandsbanka.
„Hann gerði það reyndar fyrir
löngu, en núna hefur hann dæmt
allt marklaust sem hann hefur sagt
í gegnum tíðina. Öll hans vinna fer
beint í vasa tryggingafyrirtækis sem
þýðir endanlegan sigur jakkalakka
yfir gúanórokkaranum.
Ég hef verið aðdáandi Bubba lengi
og maður hefur fyrirgefið honum
ýmislegt en nú er tónlistarmaðurinn
Bubbi Morthens endanlega búinn,“
sagði Valur við Fréttablaðið laugar-
daginn 5. mars 2005.
Frelsi til sölu?
„Minn Bubbi er eiginlega rokk-
stjörnu-Bubbi miðáttunnar,“ segir
Valur og kemur ef til vill ekki mjög á
óvart, þegar hann er spurður hvaða
birtingarmynd Bubba sé í mestu
uppáhaldi hjá honum.
„Ég bjó þá í Noregi og nemendur
máttu stundum koma með spólur í
skólann til að hlusta á. Ég kom iðu-
lega með Frelsi til sölu, sem vakti
litla lukku norskra, en einhver spurði
fyrir kurteisissakir hvað margir væru
í þessari hljómsveit Bubba.“
Bubbi keypti höfundarréttinn
á lögum sínum aftur til baka frá
Straumi fjárfestingarbanka 2012 og
núna, enn síðar, má segja að dragi
enn til tíðinda eftir að Fréttablaðið
fékk Val til þess að horfa á sýning-
una Níu líf í Borgarleikhúsinu.
Þar túlka ólíkir leikarar Litla-
Bubba, Unga-Bubba, Gúanó-Bubba,
Utangarðs-Bubba, Egó-Bubba,
Góðæris-Bubba og Sátta-Bubba,
sem saman mynda margbrotna og
síkvika persónu Bubba Morthens í
meðal annars góðærisuppgjöri, sem
Valur er sáttur við.
„Þessi sýning er eiginlega ótrú-
lega vel heppnuð, það er svo margt
sem hefði getað farið úrskeiðis en
hér tekst listilega vel að sigla á milli
Blindskers og Brynju,“ segir Valur.
„Þegar fjallað er um mann sem
allir þekkja getur það auðveldlega
orðið að helgimynd, eða í hina áttina
að niðurrifi. Í staðinn birtist mynd af
afar breyskum manni sem er, í það
minnsta stundum, að gera sitt besta.
Það er kannski ekki mikið hægt
að læra af Bubba, en það er hægt
að þykja vænt um hann og varla er
annað hægt að sýningu lokinni.“
Ísland mun aldrei eignast aðra
eins rokkstjörnu, enda er tími rokk-
stjörnunnar sem slíkrar liðinn. Í
staðinn fyrir kókaín í hylki og gull-
plötur er það sojalatte og streymis-
veitur. Bubbi verður auðvitað aldrei
svalari en hann var í upphafi, en ég
myndi frekar vilja hitta Sátta-Bubba
í dimmu húsasundi heldur en Utan-
garðs-Bubba.“ n
Valur kinkar
kolli til Bubba
sextán árum eftir
að hann jarðaði 20
Bubba-plötur.
odduraevar@frettabladid.is
Jeff í sínu besta formi í 41. serí-
unni af Survivor
„Skemmtilegt að
þú skulir spyrja
að þessu, því ég
er einmitt að fara
í Survivor-partí
í k völd!“ sagði
Ó s k a r S t e i n n
Ómarsson, sam-
f é l a g s m i ð l a -
stjarna og stjórn-
málamaður.
„Á mínu heimili
fylgjumst við vel
með 41. þáttaröð af Survivor, en í
þessari þáttaröð er öllu til tjaldað.
Jeff Probst er í sínu besta formi
hingað til og býður okkur upp á
sannkallaða rússíbanareið þar sem
ekkert er eins og það virðist og eitt-
hvað óvænt leynist alltaf handan
við hornið.
Keppendahópurinn er fjölbreytt-
ari en nokkru sinni fyrr og virkilega
skemmtilegt að fylgjast með því
hvernig þessir ólíku persónuleikar
vinna saman. Ég er sérstaklega
spenntur fyrir örlögum samvisku-
lausa prestsins Shan, sem sumir
telja helst til ráðríka. Nær hún að
halda stjórn á leiknum til enda eða
fá bandamenn hennar nóg og rísa
upp gegn henni áður en það verður
of seint?“ n
Óskar Steinn
Ómarsson
n Á skjánum
Bý mér til mína eigin línulegu
dagskrá
„Þegar ég dett inn
í þætti þá horfi ég
á þá einn í einu
á akkúrat viku
fresti, bý þannig
til línulega dag-
skrá,“ segir Birkir
Vagn Ómarsson,
eigandi Mínus 2
gym, sem staðsett
er í Borgartúni.
Birkir stýrir
hinu rómaða
MGT-námskeiði sem færri komast
á en vilja. Hann var að klára For-
mula 1: Drive to Survive og er byrj-
aður á annarri seríu af Tiger King.
„Það byrjar vel eins og síðasta
sería. Geggjaðir þættir um glæsi-
legt eintak,“ segir hann og hlær. „Ef
þú átt eftir að horfa á Squid Game
þá öfunda ég þig. Það eru topp
fimm þættir sem ég hef séð,“ segir
líkamsræktarfrömuðurinn. n
Birkir Vagn
Ómarsson
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
48 Lífið 25. nóvember 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ