Fréttablaðið - 25.11.2021, Síða 58

Fréttablaðið - 25.11.2021, Síða 58
Það hefur ekki einu sinni verið rætt hvort hann eigi að koma með. Ég held reyndar að hann hafi lítinn áhuga á skotveiði. Hann rekur augun í það að ég er eitthvað að hreyfa mig og er svona rjúpulegur og þá fer hann að spyrja mig út í þetta. KVIKMYNDIR The French Dispatch Framleiðendur: Wes Anderson, Jeremy Dawson, Steven Rales Leikstjóri: Wes Anderson Aðalhlutverk: Benicio del Toro, Adrien Brody, Tilda Swinton, Léa Seydoux o.fl. odduraevar@frettabladid.is Fingraför fárra leikstjóra eru eins auðþekkjanleg og fingraför leik- stjórans Wes Anderson. Nýjasta mynd hans The French Dispatch er þar engin undantekning. Stjörnum hlaðin myndin er ástaróður til blaðamanna og bregður heims- frægum leikurum fyrir í nánast hverri einustu senu. Hér bregður Anderson á leik og segir þrjár örsögur í einni kvik- mynd, sem allar tengjast tímarit- inu French Dispatch, sem byggt er á hinu annálaða bandaríska tíma- riti New Yorker. Sög- urnar eru missterkar en halda manni að mestu við efnið. Setja má spurningarmerki við hversu vel tekst að flétta þær saman í heildrænan söguþráð. Kvikmyndataka og sviðssetning hafa lík- lega aldrei verið betri hjá okkar manni And- erson, sem hér leikur sér að frumlegri kvik- myndatöku í bland við sína gamalkunnu miðjusetningu myndavélarinnar. Leikararnir eru hins vegar það besta við myndina, enda stýrir Anderson hér einhvers konar heimsmeistaraliði stórleikara, þar sem þau Benicio Del Toro, Adrien Brody og Léa Sedoux fara, að mínu mati, fremst í f lokki og algjörlega á kostum í hlutverkum sínum í örsögunni af ótrúlegum listamanni í fangelsi. Jeffrey Wright gerir sömuleiðis gott mót. Timothée Chalamet og Frances McDormand standa fyrir sínu í sinni sögu, sem og Bill Murray og Owen Wilson. Ein- hverjum kann þó að þykja Anderson nota þá, auk Willem Dafoe og Edward Norton, glæp- samlega lítið. n NIÐURSTAÐA: Mynd sem mun heilla eldheita kvikmyndaunn­ endur á meðan almennum áhorf­ endum gæti leiðst á köflum. Wes Anderson stendur þó, þegar upp er staðið, fyllilega fyrir sínu. Wes Anderson er Wes Anderson  Þegar söngvarinn Friðrik Ómar leiddi rokkarana Berg- svein Arilíusson og Stefán Jak- obsson saman fyrir sjö árum tókust með þeim svo miklar rjúpuástir að nú fara þeir árlega saman á rjúpu á heima- velli Stefáns í Mývatnssveit. odduraevar@frettabladid.is „Þetta er sjöunda árið í röð,“ segir Bergsveinn, betur þekktur sem Beggi í Sóldögg, um veiðiferðina norður í Mývatnssveit þar sem hann veiðir í Búrfellshrauni, para- dís rjúpnaveiðimannsins. Hann og Stefán Jakobsson, rokkari allra landsmanna í Dimmu, hafa undan- farin sjö ár verið óaðskiljanlegir einu sinni á ári. „Það er eiginlega Friðriki Ómari að þakka að þetta veiðifélag varð til. Það er svo magnað, ég held að hann sé ekkert í skotveiði en hann setti saman sýningu til heiðurs U2 fyrir tja, sjö árum síðan örugglega og þar bara kynntumst við Stefán í fyrsta skiptið,“ útskýrir Beggi um tilurð veiðifélagsins. Á rjúpu vegna U2 og Frikka Beggi segir þetta hafa verið mik- inn happafund en Stefán er land- eigandi að Búrfellshrauni og hefur gengið til rjúpna síðan hann var smápolli. Þekkir nánast hvern hól og hverja þúfu í úfnu hrauninu. „Ef ég man rétt þá var þetta akk- úrat á þeim tíma sem rjúpnaveiði- tímabilið var að byrja og hann rekur augun í það að ég er eitthvað að hreyfa mig og er svona rjúpu- legur og þá fer hann að spyrja mig út í þetta og úr verður Veiðifélagið Han,“ segir Beggi laufléttur. Hann segir veiðina í ár hafa verið góða en ferðin snúist um svo miklu meira. „Þetta gengur alltaf vel. Það fléttast inn í þetta villibráðarhlað- borð og við gerum vel við okkur á hverju ári og þetta er mikil gæða- stund,“ segir Beggi. Þá skemmi nátt- úrufegurðin ekki fyrir. „Það þarf ekkert að ræða það að Mývatnssveit er fallegasti staður á landinu og jafnvel þótt víðar væri leitað. Þetta er orðið stór hluti af aðventunni,“ segir Beggi. Hann segist eiga Friðriki Ómari margt að þakka en telur ólíklegt að sá dún- mjúki söngfugl myndi þiggja boðið. „Það hefur ekki einu sinni verið rætt hvort hann eigi að koma með. Ég held reyndar að hann hafi lítinn áhuga á skotveiði, ef nokkurn,“ segir Beggi í Sóldögg, hlæjandi. n Beggi í Sóldögg segist sjaldan betri en á Mývatni. MYND/AÐSEND Veiðifélag þeirra félaga ber nafn með rentu: Veiðifélagið Han og dingdong. MYND/AÐSEND Leikhús Lára og Ljónsi – jólasaga Sigríður Jóns­ dóttir, leiklistar­ gagnrýnandi Fréttablaðsins, segir sýninguna Lára og Ljónsi, jólasaga, sem sýnd er í Þjóð­ leikhúsinu, vera tilvalda fyrir allra yngstu leikhúsgestina. „Hér er á ferðinni krúttleg tæp klukkustund í góðum félagsskap þar sem leik­ hústöfrar svífa yfir leiksviðinu eins og snjókorn." Leikritið hugljúfa er eftir Birgittu Haukdal og Guðjón Davíð Karlsson leikstýrir. Ungir leikhúsgestir fá síðan tækifæri til að hitta persónur verksins eftir sýningu, sem er vitanlega mikil og sterk upplifun. n Allra best Bókin Nornirnar, eftir Roald Dahl Öll börn verða að kynnast bókum Roald Dahls. Þær bestu eru hreinir gim­ steinar. Það á við um Nornirnar, en aðalper­ sónan, drengur, læsist óvart inni í sal þar sem fram fer ársþing norna. „Óhreinn, illa lyktandi, lítill strákur! Við kremjum hann! Við kreistum hann! Við hökkum hann og étum!“ skrækja nornirnar þegar þær koma auga á hann. Drengurinn þarf á öllu sínu hugviti að halda til að sleppa undan þeim. Hann nýtur þar að­ stoðar hinnar stórskemmtilegu og karaktermiklu ömmu sinnar, sem kann ýmislegt fyrir sér. Afar snjöll, fyndin og myrk klassísk barnasaga. Magdashop.is Nýja uppáhalds fatabúðin þín FRÍ HEIM- SENDING SamdægurS Í rEYKJaVÍK Jólafötin þín finnur þú hjá okkur Sérstakur afsláttur föstudag til mánudags Notið kóðann „Black“ til að fá auka afslátt Sjónvarp Dexter: New Blood Geðþekki rað­ morðinginn Dexter Morgan er upp risinn í sjónvarpi, að því er virðist með allnokkrum stæl, þannig að eftir þrjá þætti er ekki seinna vænna að stökkva um borð í líkvagn Dext­ ers. Showtime útdeilir einum nýjum þætti vikulega og þaðan skila þeir sér í Sjónvarp Símans og enn bendir allt til þess að í vændum sé stórgóð Dexter­sería. 50 Lífið 25. nóvember 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.