Heilsuvernd - 01.03.1959, Page 10

Heilsuvernd - 01.03.1959, Page 10
HEILSUVERND ÁVARP Kæru vinir og féiagar, konur og menn. Ykkur þakka ég, að starfi voru hefir skilað nokkuð áfram á síðustu áratugum, eftir að ég lét af embætti sem læknir. Þessu starfi hefir fylgt Guðs blessun. Ég þakka forsjón lífsins, að hún hefir vakið ykkur til skilnings á því og þýðingu þess fyrir land vort og þjóð. Ég kynntist náttúrulækningastefnunni fyrst vestur í Ameríku, á hinu heimsfræga heilsuhæli Kelloggs. Árið 1921 dvaldi ég þar um þriggja vikna skeið, sem gestur Kelloggs. Þeim kynnum á ég mikið að þakka. Síðar kynnt- ist ég sir Arbuthnot Lane. Hann stofnaði félag til umbóta á heilsu manna, og hann nefndi það New Health Society. Löngu áður hafði dr. Bircher Benner byggt heilsuhæli í Zúrich, sem ennþá er starfrækt eftir meir en 60 ár, og er heimsfræg stofnun. Hér á norðurlöndum, í Svíþjóð kom Waerland af stað stofnun til heilsuræktar, sem hann síðar og kona hans útbreiddu um allt Þýzkaland, og eru þau heimskunn orðin. I Danmörku stofnaði dr. K. Nolfi heilsuhælið Humle- gárden. Dr. Nolfi hafði fengið krabbamein í annað brjóst- ið, og óx það mjög hratt, en með sérstöku matarhæfi tókst henni að lækna það. Upp úr því stofnaði hún hælið Humlegárden, sem frægt er um öll norðurlönd. Bæði Waerland og dr. K. Nolfi hafa komið hingað til lands og flutt mörg ágæt erindi víðsvegar um landið. En Islendingar hafa verið fremur tómlátir fyrir þessu heilsuræktarstarfi. Mikill hluti læknastarfsins hefir farið til þess að lækna sjúkdómaeinkenni, frekar en orsakir þess að sjúkdómar verði til. En þeir sjúkdómar, sem við lækn-

x

Heilsuvernd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.