Heilsuvernd - 01.03.1959, Page 14
6
HEILSUVERND
skurðlækni, dr. med. lic. Oluf Poulsen frá Hróarskeldu.
Doktorsritgerð sína, „Experimental and statistical studies
on extrinsic factors in carcinogenesis“ (Rannsóknir byggð-
ar á tilraunum og skýrslum um ytri orsakir krabbameins-
myndunar), varði hann 13. júní 1949.
Það merkilegasta í ritgerð þessari, auk víðtækra dýra-
tilrauna, var rannsókn á dauðsföllum úr krabbameini og
berklum meðal adventista í Danmörku. I 50 ár hafa þeir
rekið stórt heilsuhæli, Skodsborg, við Eyrarsund skammt
fyrir norðan Kaupmannahöfn, og hefir það um fleiri tugi
ára verið skoðað sem sterkasta vígi jurtaneytenda á Norð-
urlöndum. Það hefir notið ekki minna álits en heilsuhæli
Bircher-Benners í Zúrich í Sviss, en hefir verið stærra
og betur stjórnað. Þangað leita sjúklingar hvaðanæfa
til meðferðar með mataræði og öðrum læknisdómum.
Jurtaneytendur á Norðurlöndum hafa litið á fæðið í
Skodsborg sem fyrirmynd, sem ekki væri hægt að
bæta um.
Adventistar eru almennt jurtaætur, sem fylgja bókstaf
Biblíunnar, þar sem segir: „Ég gef ykkur allskonar sáð-
berandi jurtir á allri jörðinni, og allskonar tré, sem bera
ávöxt með sæði í. Það sé ykkur til fæðu.“ Það gefur að
skilja að dr. Poulsen var mikið í mun að rannsaka, hvaða
áhrif lifnaðarhættir þeirra höfðu á heilsufar þeirra al-
mennt, sérstaklega með tilliti til krabbameins, sem var
meginverkefni doktorsritgerðar hans.
Stjórn adventista í Danmörku lét dr. Poulsen fúslega
í té allar nauðsynlegar skýrslur, sem hann rannsakaði
ítarlega. Og niðurstaðan kom honum mjög á óvart. Krabba-
mein reyndist jafnalgengt meðal danskra adventista og
annarra, og berklar voru öllu tíðari, einkum meðal barna.
Fréttin um árangurinn af þessum rannsóknum fór sem
eldur í sinu um öll Norðurlönd og vakti geysilega athygli,
og það þeim mun fremur sem kenningar Waerlands höfðu
náð þar mikilli útbreiðslu og orðið vel ágengt í að útrýma
sjúkdómum. I dönskum, sænskum og norskum blöðum