Heilsuvernd - 01.03.1959, Qupperneq 39
HEILSUVERND
Frá Heilsuhæli N.I.F.Í. í Hveragerði
Heilsuhæli félagsins hefur oftast verið fullskipað í vet-
ur. Þó hefur aðsókn verið miklu minni en yfir sumar-
mánuðina, og hafa flestir komizt að með litlum fyrirvara,
sem leitað hafa eftir dvöl. Við því má búast, að breyting
verði á undir vorið, og er því ástæða til að minna fólk á
að panta í tíma. Ennfremur verður að gera ráð fyrir, að
erfitt geti reynzt að lofa ákveðnum komutíma, því að ó-
mögulegt er að sjá fyrir með vissu, hversu lengi sjúklingar
þurfa að dveljast til þess að ná tilætluðum árangri.
<o>
Rýmkuð hefur verið heimild sjúkrasamlaga til stuðn-
ings við sjúklinga er dveljast á hælinu úr kr. 80.00 í kr.
100.00 frá 1. marz að telja. Ennfremur hafa daggjöld
sjúklinga verið lækkuð (öll meðferð innifalin) úr kr. 150.00
í kr. 135.00. Ættu þessar breytingar að létta mikið undir
með þeim sjúklingum er á hælinu dveljast. Heimild sam-
laga til stuðnings við sjúklinga gildir aðeins um þá, sem
haldnir eru gigtarsjúkdómum.
<o>
1 samráði við Tryggingastofnun ríkisins hefur sú ákvörð-
un verið tekin, að dvalargestir, sem koma á timabilinu 15.
júní — 15. ágúst, skuli eJcki njóta samlagsréttinda. Öllum
sem pantað hafa vist á áðurgreindu tímabili, verður gert
aðvart bréflega, svo að þeim gefist kostur á að færa til
dvalartíma sinn, ef þeir æskja þess, að svo miklu leyti
sem við verður komið.
<o>
Unnið er að nýju viðbyggingunni, þó hægar fari en æski-
legt væri. Veldur því fjárskortur. Þar sem afkoma hælis-
ins batnar mjög við þessa stækkun, sem nemur 18 her-