Fréttablaðið - 09.12.2021, Page 20
Verður
nú spenn-
andi að sjá,
hvernig
nýr ráð-
herra tekur
á þessu
stórfellda
dýran-
íðs- og
hneykslis-
máli.
30. nóvember var viðtal við Hrönn
Ólafíu Jörundsdóttur, forstjóra
MAST, á Hringbraut, þar sem farið
var ofan í saumana á blóðmera-
haldinu og hinum hryllilegu hlið-
um þess, en þetta dýraníð Ísteka og
fjölmargra bænda var loks komið
svo skýrlega upp á yfirborðið –
þökk sé erlendum dýraverndunar-
samtökum – , að MAST gat ekki
lengur leitt það hjá sér.
Meðal annars sagði forstjórinn, að
það væri mat MAST, að hægt væri
að framkvæma blóðtöku af fylfull-
um merum – reka blóðmerahald
– án þess að ógna velferð dýranna.
Þetta mat vakti furðu mína.
Skorti forstjórann hér nauðsynlega
þekkingu eða góða dómgreind?
Hvernig á að vera hægt, með
góðu, að koma ótömdum, hálfvillt-
um hryssum, úr útigangi, sem búið
er að rífa folaldið frá, inn í þröngan
blóðtökubás, þar sem hryssan er
njörvuð niður og höfuð strengt upp
með reipum – staða dýrsins negld
– til að hægt sé að opna slagæð
á hálsi og tappa þar af blóði í 15
langar mínútur!? Heila eilífð fyrir
dýrið.
Hvernig getur forstjórinn ímynd-
að sér, að þessi fjötrun ótaminnar
hryssu og það of beldi, sem beita
þarf dýrið, til að koma nál í háls og
tappa 5 lítrum af blóði af því, geti
farið fram með friði og spekt!?
Hræðsla og æsingur hryssunnar
byrjar vitaskuld þá strax, þegar 2-3
mánaða folaldið er rekið frá henni,
og má ætla, að skelfingin stigmagn-
ist, þegar blóðtökumenn höggva
aftur og aftur í sama knérunn, beita
sama of beldinu, viku efir viku, í 8-9
vikur, ár eftir ár.
Árétta skal, að hér er langmest
um hálfvilltar, ótamdar merar að
ræða, sem eru í útigangi.
Auðvitað ætti forstjóranum að
vera ljóst, að mannúðlegt og dýra-
vænt blóðmerahald í þessu formi
er ekki til!
Vafasamt framlag dýralækna
Þá vildi forstjóri MAST gera nokk-
uð með það, að dýralæknar væru
alltaf við, við hverja einustu blóð-
töku, eins og hún orðaði það.
Þeir voru þá líka við í öllum þeim
tilfellum, þar sem gögn AWF og TSB
dýraverndunarsamtakanna sýna
misþyrmingar og of beldi við dýrin!
Þessi athugasemd sýnir því
fremur, að ekkert er á þetta dýra-
læknakerfi að treysta, heldur en
hitt, að viðvera og meint eftirlit og
handleiðsla dýralækna komi hér að
nokkru gagni.
Úrvinnsla MAST vandræðaleg
Þá segir forstjórinn þetta: „MAST er
búið að hafa samband við (erlendu)
dýraverndunarsamtökin, sem birtu
umrætt myndefni, til að fá mynd-
efnið, á hvaða bæjum þessar mynd-
ir voru teknar. Verið er að fara yfir,
hvort tilkynningar (hverra?) um
slæma meðferð hafi borizt MAST
og hvernig hafi verið brugðist við
þeim“.
Fyrir mér er það allt annað en
uppbyggilegt að MAST skuli þurfa
að nýta sér rannsóknir erlendra
aðila til að átta sig á dýrahaldi,
sem MAST sjálft á að hafa eftirlit
með og bera ábyrgð á, að fari fram
af mannúð, á grundvelli dýravel-
ferðar og standist lög.
Aðkoma Fagráðs til lítils sóma
Þann 25. apríl 2016 fór fram fundur
í Fagráði um velferð dýra. Fundar-
boðandi var Þóra J. Jónasdóttir,
dýralæknir gæludýra og dýravel-
ferðar. Fundarstjóri var Sigurborg
Daðadóttir, yfirdýralæknir. Aðrir
fundarmenn voru meðal annars
Katrín Andrésdóttir, fulltrúi Dýra-
læknafélagsins, dr. Sigríður Björns-
dóttir, dýralæknir hrossasjúkdóma
og Jón Kalmann, fulltrúi Siðfræði-
stofnunar Háskóla Íslands.
Fagráðið gerði sér lítið fyrir og
gaf grænt ljós á þann ófögnuð og
það dýraníð, sem sannast hefur
að blóðmerahaldið er, og allt þetta
fólk hefði átt að vita, að svo sé,
hefði það viljað eða reynt að kynna
sér það.
Í raun hefði almenn skynsemi átt
að duga við slíkt mat.
Bókunin var stutt og einföld:
„Fagráðið er jákvætt gagnvart nýju
leyfi með þeim fyrirvörum sem
fram komu í umræðum, sbr. texta“.
Hér voru 4 dýralæknar og sér-
stakur fulltrúi Siðfræðistofnunar
Háskóla Íslands að verki! Hver
hefði trúað svona vinnubrögðum
upp á þetta mæta fólk, sem maður
hefði haldið, að svo væri?
Lagagrundvöllur fyrir
leyfisveitingu líka út í hött
20. júní 2016 gaf MAST svo út „Leyfi
til blóðsöfnunar úr hryssum ...“ til
Ísteka. Byggði MAST þetta leyfi á
reglugerð nr. 279/2002, en sá galli
er á gjöf Njarðar, að þessi reglugerð
nær eingöngu til dýratilrauna.
Það vekur athygli, að það var
Þóra J. Jónasdóttir, dýralæknir
gæludýra og dýravelferðar, sem gaf
út leyfið, en hún var líka fundar-
boðandi, þegar Fagráðið gaf grænt
ljós á þessa óiðju.
Í 1. gr. reglugerðar 279/2002
stendur: „Markmið reglugerðar-
innar er að tryggja velferð dýra sem
notuð eru í tilrauna- eða vísinda-
skyni eða alin í þeim tilgangi“.
Hvernig í ósköpunum er hægt
að tengja saman dýratilraunir við
stórframleiðslu á blóði, 170 tonn,
170.000 lítra, á ári!?
Hér reyndi virkilega á frjótt
ímy ndu na r a f l , sveig ja nleik a,
afstöðu og meðvirkni stjórnvalda,
að mati undirritaðs.
Undirritaður spurði yfirlögfræð-
ing MAST, hvort hann hefði veitt
stjórn MAST leiðsögn, hvað varðar
notkun þessarar reglugerðar við
leyfisveitingu. Hann sagðist ekki
minnast þess. Vildi að því er virtist
hvergi að þessari lagatúlkun koma.
Önnur lög, nr. 55/2013, hefðu átt
að koma með öllu í veg fyrir þessa
leyfisveitingu, þessa óiðju, en 1.
gr. þeirra hljóðar: „Markmið laga
þessara er að stuðla að velferð dýra,
það er að þau séu laus við vanlíðan,
hungur og þorsta, ótta og þjáningu,
sársauka, meiðsli og sjúkdóma, í
ljósi þess, að dýr eru skyni gæddar
verur“.
Og, hver á að sjá um framkvæmd
þessara laga!? Sú stofnun heitir ein-
mitt Matvælastofnun: MAST!
Nýr ráðherra
Í febrúar 2020, fyrir tæpum tveimur
árum, veltum við, Jarðarvinir, upp
þeim ófögnuði, sem blóðmerahald-
ið er, og skoruðum á yfirdýralækni,
stjórnendur MAST og ekki sízt á
þáverandi landbúnaðarráðherra,
Kristján Þór Júlíusson, að þessi
óiðja yrði stöðvuð, m.a. annars út
af því, að hún bryti í bága við lög.
Ráðherra gerði ek kert með
málið, frekar en fjölmörg önnur
dýraverndunar- og dýravelferðar-
mál. Var meira í öðru misgæfulegu.
Verður nú spennandi að sjá,
hvernig nýr ráðherra tekur á þessu
stórfellda dýraníðs- og hneykslis-
máli, sem varpar skugga á okkur
öll, víða um lönd, þessa dagana. n
Aðkoma MAST
og Fagráðs að
blóðmerahaldi
tóm tjara!
Ole Anton
Bieltvedt
stofnandi og for-
maður Jarðarvina
Fullkomið
í veisluna
20 Skoðun 9. desember 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ