Fréttablaðið - 09.12.2021, Side 23
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
FIMMTUDAGUR 9. desember 2021
Ferskt og gott fiski-taco slær í gegn.
starri@frettabladid.is
Léttur réttur sem gott er að njóta á
aðventunni milli þyngri máltíða.
Fiski-taco
Fyrir fjóra
Fiskurinn
900 g þorskhnakki í bitum
1 ½ tsk. chiliduft
1 tsk. reykt paprika
½ tsk. hvítlauksduft
¼ tsk. salt
1 msk. ólífuolía
Sósan
½ bolli grísk jógúrt
1 ½ msk. límónusafi
½ tsk. hvítlauksduft
¼-½ tsk. sriracha-sósa
Smá salt
Meðlæti
8 litlar tortilla-kökur
½ lítill rauðkálshaus. Rífið smátt
1 lárpera, sneidd niður
¼ bolli saxað kóríander
1 límóna, skorin í litla báta
Blandið kryddinu og kryddið fiski-
bitana. Steikið fisk á pönnu við
miðlungshita.
Setjið í skál jógúrt, límónusafa,
hvítlauksduft, sriracha-sósu og
salt. Útbúið meðlætið og setjið í
nokkrar skálar. Hitið tortilla-kök-
ur og berið fram ásamt fiskinum
og sósunni. Setjið rauðkálið neðst,
næst fiskbita, svo lárperuna, sósu
yfir og að lokum kóríander. Smá
límónusafa yfir. n
Gott fiski-taco
Birna Magnúsdóttir í Selenu segir aðventuna skemmtilega þegar viðskiptavinir koma í leit að jólagjöf handa konum í sínu lífi. MYND/ANNA GEIRLAUG ÁRNADÓTTIR
Kúrt í nýjum náttkjól um jólin
Það leynir sér ekki að jólin eru að koma í undirfataversluninni Selenu. Þar fæst margt svo
undurfagurt í jólapakkann sem gleður allar konur, og lofar bæði vellíðan og kósí stundum.
Líka heillandi skógjafir sem margir hafa fyrir sið á aðventunni handa sinni heittelskuðu. 2