Fréttablaðið - 09.12.2021, Page 23

Fréttablaðið - 09.12.2021, Page 23
KYNN INGARBLAÐ ALLT FIMMTUDAGUR 9. desember 2021 Ferskt og gott fiski-taco slær í gegn. starri@frettabladid.is Léttur réttur sem gott er að njóta á aðventunni milli þyngri máltíða. Fiski-taco Fyrir fjóra Fiskurinn 900 g þorskhnakki í bitum 1 ½ tsk. chiliduft 1 tsk. reykt paprika ½ tsk. hvítlauksduft ¼ tsk. salt 1 msk. ólífuolía Sósan ½ bolli grísk jógúrt 1 ½ msk. límónusafi ½ tsk. hvítlauksduft ¼-½ tsk. sriracha-sósa Smá salt Meðlæti 8 litlar tortilla-kökur ½ lítill rauðkálshaus. Rífið smátt 1 lárpera, sneidd niður ¼ bolli saxað kóríander 1 límóna, skorin í litla báta Blandið kryddinu og kryddið fiski- bitana. Steikið fisk á pönnu við miðlungshita. Setjið í skál jógúrt, límónusafa, hvítlauksduft, sriracha-sósu og salt. Útbúið meðlætið og setjið í nokkrar skálar. Hitið tortilla-kök- ur og berið fram ásamt fiskinum og sósunni. Setjið rauðkálið neðst, næst fiskbita, svo lárperuna, sósu yfir og að lokum kóríander. Smá límónusafa yfir. n Gott fiski-taco  Birna Magnúsdóttir í Selenu segir aðventuna skemmtilega þegar viðskiptavinir koma í leit að jólagjöf handa konum í sínu lífi. MYND/ANNA GEIRLAUG ÁRNADÓTTIR Kúrt í nýjum náttkjól um jólin Það leynir sér ekki að jólin eru að koma í undirfataversluninni Selenu. Þar fæst margt svo undurfagurt í jólapakkann sem gleður allar konur, og lofar bæði vellíðan og kósí stundum. Líka heillandi skógjafir sem margir hafa fyrir sið á aðventunni handa sinni heittelskuðu. 2

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.