Fréttablaðið - 09.12.2021, Blaðsíða 28
Sumum
finnst
gaman að
klæða sig í
sitt fínasta
púss við
hvert
tækifæri á
þessum
árstíma.
Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is
TRAUST Í 80 ÁR
S Í G I L D K Á P U B Ú Ð
Fylgdu
okkur á
Facebook
Allt íjólapakkann
LAXDAL
ER Í LEIÐINNI
Skoðið
laxdal.is
Það eru engar reglur um
hvernig á að klæða sig um
jólin. Sumir vilja fylgja
hefðum og klæða sig upp á,
en aðrir vilja bara vera í nátt-
fötum. Allt er leyfilegt.
sandragudrun@frettabladid.is
Um jólin og á aðventunni er oft
mikið um að vera og alls kyns við-
burðir og veislur í gangi. Það getur
oft verið erfitt að ákveða í hverju
á að vera við mismunandi tilefni.
Sumum finnst gaman að klæða sig
í sitt fínasta púss við hvert tækifæri
á þessum árstíma, meðan öðrum
líður betur að klæðast einhverju
þægilegu en þó snyrtilegu.
Jólapeysur eru á síðustu árum
orðnar vinsæll klæðnaður á
aðventunni. Oft er haldinn jóla-
peysudagur á vinnustöðum, vinir
hittast og halda jólapeysupartí
eða fjölskyldur skera út laufabrauð
saman í jólapeysunum sínum.
Jólapeysur þurfa alls ekki að vera
asnalegar og það er jafnvel hægt að
klæða þær upp með töff jakka.
Sumir vilja halda í hefðir og klæð-
ast sínu fínasta pússi á aðfangadags-
kvöld og klæðast jakkafötum með
bindi eða slaufu, sem er jafnvel enn
hátíðlegra. Aðrir kjósa afslappaðri
klæðnað eins og skyrtu og betri
buxur. Þá getur verið skemmtilegt
að blanda saman mynstrum og
litum fyrir þá sem vilja skera sig úr
og eru djarfari í fatavali. Sumum
þykir bara best að vera í náttfötum
öll jólin. ■
Jakkaföt og jólapeysur eða jafnvel náttföt
Jólapeysur
þurfa ekki að
vera asnalegar.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Falleg jakkaföt og bindi eru klassísk
jólaföt, vestið gerir fötin sparilegri.
Það er skemmtilegt að blanda saman mynstrum og
litum. Þessi samsetning er afslöppuð en sparileg.
Sumum líður einfaldega best að
vera í náttfötum öll jólin, það má.
6 kynningarblað A L LT 9. desember 2021 FIMMTUDAGUR