Fréttablaðið - 09.12.2021, Blaðsíða 34
Ein af vinsælum jólamynd-
um er án efa The Holiday,
sem margir leggjast yfir ár
eftir ár til að fá í sig jóla-
stemningu. Það er ekki síst
litla kotið í ensku sveitinni
sem gerir myndina róman-
tíska og hlýlega.
elin@frettabladid.is
Litla enska kotið sem í myndinni
nefnist Rosehill Cottage, er því
miður ekki til í alvöru. Það var
sviðsett og útveggirnir byggðir í
hlíð, nálægt enska þorpinu Shere.
Hönnuður myndarinnar, Jon Hut-
man, hafði leitað lengi að svipuðu
húsi á Englandi sem þó mátti ekki
vera of langt frá London. Krútt-
legasta og minnsta húsið fann hann
nálægt National Trust, en það var
einangrað og í meira en fjögurra
stunda akstursfjarlægð frá London.
Ef þau hefðu notað það hefði það
orðið of dýrt, þar sem leikararnir
voru staðsettir í höfuðborginni.
Úthliðar Rosehill Cottage voru því
búnar til og rifnar eftir að tökum á
myndinni lauk.
Innblástur að hönnun hússins
var fenginn frá hinu raunveru-
lega Honeysucle Cottage, sem er
staðsett í þorpinu Holmbury St.
Mary nálægt Dorking. Rosehill,
hið skáldaða hús í myndinni, sem
var heimili Iris Simpkin, leikinnar
af Kate Winslet, var byggt nálægt
Shere, sem er bær staðsettur um
40 mínútur fyrir utan London.
Atriði úr bænum voru raunar tekin
Sveitakot með einstakri hlýju og rómantík
Sena úr The
Holiday þar sem
Cameron Diaz,
sem lék Amanda
Woods, labbar
hér út frá Rose-
hill Cottage.
Kósí andrúms-
loft var skapað í
stofunni án þess
að gera hana
ömmulega.
Eldhúsið var ekki síður skemmtilega hannað.
upp á tveimur stöðum, Shere og
Godalming.
Kvikmyndateymið fékk góða
aðstoð við að byggja Rosehill sem
síðar reyndist verða rómantískur
staður með mikinn sjarma og
karakter. Innréttingar í húsinu
voru hins vegar gerðar í Kali-
forníu. Allt svo notalegt og skapaði
fullkomna innlifun áhorfandans
á litlu, ensku sveitahúsi. Bjálkar
í lofti og arineldur, ósamstæð
húsgögn sem virkuðu vel saman.
Upphaflega átti að nota nútímaleg
húsgögn en frá því var horfið þar
sem þau hefðu ekki skapað sömu
stemningu. Húsið mátti þó ekki
vera ömmulegt, þar sem ung kona
var búsett í því.
Eldhúsið var til dæmis afar
heillandi með máluðum stein-
veggjum og himinbláum skápum,
opnum hillum og bláu og hvítu
matarstelli.
Þeir sem ætla að gera sér ferð til
Shere til að skoða húsið verða fyrir
vonbrigðum því það finnst ekki.
Hins vegar er Shere einkar fallegur
staður, friðsælt þorp í Guildford í
Surrey sem er í raun vinsæll ferða-
mannastaður. Þarna búa um 4.000
íbúar og í þorpinu má sjá krár sem
koma fyrir í myndinni eins og
Hvíta hestinn og William Brau. Í
bænum er auk þess kirkja frá 12.
öld. Áin Tillingbourne rennur í
gegnum þorpið.
Þorpið Shere hefur verið notað
í nokkrum frægum bíómyndum
auk The Holiday og má þar nefna
Four Weddings and a Funeral
(1994), Bridget Jones: The Edge of
Reason (2004) og The Wedding
Date (2005). n
ELITE
hvíldarstólar
3 tegundir
3 möguleikar
Anelin leður allan hringinn
3 litir
Teg. ALEX
Teg. Charles
Teg. CHARLES
Teg. WILLJAM
Húsgagnaverslunin Nýform ehf. • Strandgata 24 • Sími 565 4100 • nyform@nyform.is • www.nyform.is
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e s l u n
Komið og skoðið úrvalið
Opið virka daga
11-18
laugardaga
11-15
Teg. WILLJAM
6 kynningarblað 9. desember 2021 FIMMTUDAGURHÆGINDASTÓLAR