Fréttablaðið - 09.12.2021, Blaðsíða 55
BÆKUR
Einlægur önd
Eiríkur Örn Norðdahl
Fjöldi síðna: 283
Útgefandi: Mál og menning
Þorvaldur S. Helgason
Þegar ég stundaði nám í ritlist við
Háskóla Íslands fór ég eitt sinn
með samnemendum mínum í
skáldaferð til Eiríks Arnar Norð
dahl á Ísafjörð. Margt af því sem
gerðist í þessari ferð hefur fallið
í gleymskunnar dá, en ég minn
ist þess þó að eitt verkefnið
sem Eiríkur lagði fyrir okkur
ritlistarnemana var að skrifa
einn sannleika og eina lygi með
verkfærum skáldskaparins.
Þetta rifjaðist upp fyrir mér
við lestur nýjustu „skáldsögu“
Eiríks Arnar sem fjallar bæði
um mörk hins sanna og ósanna,
sem og ritlistarkennslu.
Bókin, sem ber titilinn Einlægur
önd, er eins konar skáldævisaga
eða kannski frekar skáldsaga með
ævisögulegu ívafi. Höfundur gerir
raunar í því að ögra mörkum þess
ara forma og tvískinnungurinn
gerir vart við sig strax á titilsíðum
bókarinnar, sem eru tvær. Á þeirri
fyrri er titillinn ritaður sem Einlæg
ur önd – ævisaga, en á þeirri seinni
sem Eiríkur Örn – skáldsaga. Höf
undur notar raunverulega atburði
og staðreyndir úr sínu eigin lífi í
bókinni en fer frjálslega með. Aðal
persóna bókarinnar heitir vissulega
Eiríkur Örn Norðdahl og er rúm
lega fertugur rithöfundur frá Ísa
firði sem gengur með harðkúluhatt
á höfði. Flest annað er þó skáldað,
þar með talið nöfnin á börnum og
eiginkonu Eiríks, en slíkt mun þó
sennilega ekki vera ljóst þeim les
endum sem þekkja ekki til Eiríks
persónulega.
Bókin gerist í fyrstu bylgju
Covidfaraldursins og segir frá því
þegar Eiríkur Örn neyðist til að
f lytja frá Ísafirði í sollinn í höfuð
borginni, til að geta eytt tíma með
börnum sínum í kjölfar skilnaðar. Í
Reykjavík tekur Eiríkur að sér það
verkefni að stýra ritlistarnámskeiði
á netinu fyrir norska ritlistarfyrir
tækið Fiktiv, eins konar af bökun á
sænska hljóðbókarisanum Storytel.
Fyrirgefning og útskúfun
Einlægur önd varpar upp ýmsum
áhugaverðum hugleiðingum um
eðli og hlutverk skáldskapar í borg
aralegu samfélagi. Þessar hugleið
ingar birtast gjarnan í formi fyrir
lestra sem Eiríkur Örn heldur fyrir
nemendur sína sem eru í senn heim
spekilegir, kómískir og yfirdrifnir.
„Allar fagurbókmenntir sem
standa undir nafni rannsaka nún
ing veruleika og skáldskapar, lyga
og sannleika annars vegar; og nún
ing siðlegrar breytni og siðlausrar
breytni hins vegar,“ segir Eiríkur
Örn í einum fyrirlestrinum og gæti
sú fullyrðing vel staðið sem lýsing á
skáldsögunni.
Einlægur önd spyr áleitinna
spurninga um hlutverk fyrirgefn
ingar og útskúfunar í nútímasam
félagi og kemur inn á ýmis eldfim
umfjöllunarefni sem hafa verið í
deiglunni undanfarið, á borð við
slaufunarmenningu og hvort hægt
sé að aðskilja listina frá listamann
inum. Í söguheimi bókarinnar lenti
Eiríkur Örn í því að vera „slaufað“
fyrir leikritið/skáldsöguna Hans
Blær og ósæmilega hegðun sem
hann sýndi af sér í frumsýningar
partíi. Í raunveruleikanum voru
þessir atburðir ekki alveg jafn hisp
urslausir, því þótt leikritið Hans
Blær hafi vissulega vakið umtal á
sínum tíma, er langt frá því að höf
undinum hafi verið slaufað fyrir
það. Þetta er sennilega skýrasta
dæmið um það hvernig Eiríkur
Örn „rannsakar núning veruleika
og skáldskapar“ og leikur sér að
mörkum sannleika og lygi í Ein
lægur önd.
Súr bræðingur af meta-narratívu
Höfundur nýtir sér einnig frásagn
artækni dæmisögunnar og skapar
eins konar hliðarveruleika innan
hliðarveruleika skáldsögunnar,
með sögunni af Felix Ibaka frá
Arbítreu sem persónan Eiríkur Örn
hefst handa við að skrifa. Hlutirnir
f lækjast þó til muna þegar dæmi
sagan fer að blandast söguheimi
skáldsögunnar, sem aftur blandast
raunheimi lesenda svo úr verður
dásamlega súr bræðingur af meta
narratívu sem mun láta jafnvel fær
ustu bókmenntafræðinga klóra sér
í hausnum. Þótt undirritaður hefði
vissulega verið til í að stytta kaflana
um Felix frá Arbítreu örlítið, þá eru
heildaráhrifin svo skemmtilega
galsafull að maður verður að fyrir
gefa höfundi tilraunamennskuna,
þótt hún sé vissulega bæði ruglings
leg og langdregin á köflum.
Einlægur önd er sennilega ekki
allra en undirrituðum fannst hún
þó bæði skemmtileg og spennandi.
Bókin dansar á mörkum sjálfsháðs
og sjálfsupphafningar, sem rímar
fullkomlega við ringulreið samtím
ans. Þá verður það að teljast jákvætt
að stærsta bókaútgáfa landsins,
Forlagið, skuli taka áhættuna á að
gefa út svo tilraunakennt og krefj
andi verk. Stærsta spurningin er
þó hvort bókin muni rata til hins
almenna lesanda, eða bara okkar
bókmenntanördanna. n
NIÐURSTAÐA: Skemmtilegt og
galsafullt verk þar sem höfundur
dregur bæði sjálfan sig og sam-
félagið sundur og saman í beittri
ádeilu.
Núningur veruleika
og skáldskapar
Bókin dansar á mörk-
um sjálfsháðs og
sjálfsupphafningar
sem rímar fullkomlega
við ringulreið sam-
tímans.
FIMMTUDAGUR 9. desember 2021 Menning 35