Fréttablaðið - 11.12.2021, Page 36

Fréttablaðið - 11.12.2021, Page 36
mhj@frettabladid.is Yfirþjálfarar landsliðanna, Björn Björnsson og Hrefna Þorbjörg Hákonardóttir, voru einstaklega stolt af íslensku landsliðunum að móti loknu. Þegar Fréttablaðið náði af þeim tali strax eftir sigur kvenna- liðsins áttu þau erfitt með að koma tilfinningum sínum í orð. „Það er erfitt að lýsa þessu. Við höfum beðið lengi eftir þessu. Í rauninni bara síðan 2012. Þetta hefur alltaf verið naumt en sennilega aldrei jafn naumt og núna. Það var virki- lega gott að þetta lenti okkar megin enda voru stelpurnar frábærar. Þær lögðu sig allar fram og kláruðu þetta með stæl,“ sagði Björn. Kvennalandslið Íslands var 0,950 stigum á eftir Svíþjóð í undan- keppninni en liðið bætti sig um 3,1 stig í úrslitunum og skilaði sigrinum heim. Spurð um hvað hafi valdið því sagði Björn þjálfarana alltaf fara taktískt yfir undankeppnina og gera viðeigandi breytingar fyrir úrslitin. „Við lærum líka í undankeppninni hvað andstæðingurinn er að gera og hvernig þú þarft að byggja upp þitt prógramm til að hámarka árangur- inn. Þannig að það er ekki skrýtið eins og við erum að sjá hjá stúlkna- liðinu að þær eru að hækka sig um fjóra heila,“ sagði Björn. Hrefna bætti við að breytingarnar í ár væru ögn meiri en vanalega og skilaði það liðinu yfir línuna. „Það voru frekar miklar breytingar sem skiluðu okkur miklu. Við gerðum gólfið mjög öruggt og fengum rosalega háa gólfeinkunn,“ sagði Hrefna en bæði stúlkna- og kvennalið Íslands báru af á gólfinu. n Erfitt að lýsa þessu Landsliðsþjálfararnir Björn og Hrefna voru í skýjunum með árangur Íslands. MYND/MAGNÚS H. JÓNASSON mhj@frettabladid.is Kolbrún Þöll Þorradóttir er ein reynslumesta landsliðskonan í kvennalandsliðinu þrátt fyrir ungan aldur en hún varð 22 ára í gær. Kol- brún fær það hlutverk að vera síðust í öllum stökkumferðum íslenska kvennalandsliðsins enda þarf erf- iðleikinn að fara stigvaxandi með hverju stökkinu. Kolbrún keppti með eitt erfiðasta stökk mótsins á EM bæði í undankeppninni og í úrslitunum er hún gerði tvöfalt heljarstökk með beinum líkama og þrefaldri skrúfu. Það trylltist allt í keppnishöllinni þegar Kolbrún lenti stökkið. Það eru fá stökk sem gefa liðinu jafn mörg stig en Ísland þurfti á öllum sínum stigum að halda til að sigla sigrinum heim enda endaði liðið með 57,250 stig eins og Svíþjóð. Ísland fékk hins vegar 17,750 stig á trampólíni og Svíþjóð 16,600 stig og vann því Ísland á því að hafa unnið bæði gólf og trampólín. Kolbrún var í unglingalandslið- inu sem vann EM árið 2012. Hún var einnig í lykilhlutverki hjá unglinga- landsliðinu árið 2014 þegar mótið var haldið á Íslandi áður en hún fór upp í meistaraflokk. Kolbrún Þöll, Tinna Ólafsdóttir og Hekla Mist Valgeirsdóttir hafa nú unnið allt sem hægt er að vinna í hópfimleikum. Þær hafa orðið Evr- ópu- og Norðurlandameistarar í unglinga- og fullorðinsflokki ásamt því að hafa orðið bikar- og Íslands- meistarar með Stjörnunni. n Kolbrún Þöll er stigahæsti liðsmaður íslenska kvennalandsliðsins Hekla Mist, Tinna Ólafs og Kolbrún einbeittar fyrir næstu stökkum- ferð. Þær hafa nú unnið allt sem hægt er í hópfimleikum. MYND/STEFÁN PÁLSSON Kolbrún Þöll var valin í lið mótsins á EM. MYND/STEFÁN ÞÓR FRIÐRIKSSON Fjórtán lönd sendu lið á EM í ár og sendi Ísland landslið í fjórum flokkum: Unglinga- landslið stúlkna, blandað lið unglinga og kvenna- og karla- lið í fullorðinsflokki. Öll landslið Íslands náðu á verð- launapall á mótinu sem hefur aldrei gerst áður og sýnir það þann mikla undirbúning sem Fimleikasamband Íslands, þjálfarar og keppendur, hafa lagt í verkefnið í ár undir erfiðum kringumstæðum vegna Covid. Stúlknalandslið Íslands var hárs- breidd frá því að gera Ísland að tvö- földum Evrópumeisturum er liðið endaði 0,1 stigi frá því sænska sem tók titilinn heim. Stelpurnar geta þó borið höfuðið hátt enda gerðu þær frábært mót í úrslitunum. Þær voru í þriðja sæti eftir undankeppnina með 50,275 stig á eftir bæði bresku og sænsku stúlkunum. Þær flugu hins vegar upp í 54,200 stig í úrslitunum og flugu yfir Bret- ana og söxuðu allverulega á forskot Svíanna. Stelpurnar tóku silfrið heim og er ljóst að framtíðin er svo sannar- lega björt hjá Íslandi á næstu árum. Blandaða unglingalandsliðið nældi sér síðan í bronsverðlaun en liðið, líkt og stúlknaliðið, átti frábær úrslit. Bætti liðið sig um næstum tvö stig úr undankeppninni og er ljóst að íslensku liðunum líður vel undir pressu. Jóhann Gunnar Finnsson flaug manna hæst á trampólíninu sem skilaði liðinu mikilvægum stigum. Sögulegt Evrópumeistaramót hjá Íslandi Blandaða unglingalandsliðið nældi sér í brons á EM í ár. MYNDIR/STEFÁN ÞÓR FRIÐRIKSSON Stúlknalandslið Íslands bar af á gólfinu á EM. Ísland var grátlega nálægt því að vinna tvöfalt á mótinu í ár. Karlalandslið Íslands fagnaði ákaft eftir að Helgi lenti í síðasta stökki. Magnús Heimir Jónasson mhj @frettabladid.is Kolbrún, Tinna og Hekla hafa unnið allt sem hægt er að vinna. Stúlknalandslið Íslands var hársbreidd frá því að gera Ísland að tvöföldum Evrópu- meisturum. Stelpurnar geta þó borið höfuðið hátt enda gerðu þær frábært mót í úrslit- unum. Rúmur áratugur er síðan Ísland sendi karlalið á EM síðast og verður að segjast að karlaliðið sem mætti til leiks í ár var vissulega í öðrum gæðaf lokki en fyrri lið Íslands. Helgi Laxdal Aðalgeirsson, einn af lykilmönnum liðsins, lokaði mótinu með tvöföldu framheljarstökki með beinum líkama og tveimur og hálfri skrúfu en enginn hefur gert svo erfitt stökk á EM áður. Það ætlaði allt um koll að keyra bæði innan liðsins og hjá íslensku stuðningsmönnunum þegar hann negldi það. Íslenskt karlalandslið hefur aldrei lent á verð- launapalli áður og fór svo að strák- arnir nældu sér í silfur á mótinu í ár. Þar sem Evrópumeistaramótið í ár átti í raun að fara fram 2020 eru ekki nema níu mánuðir í næsta mót. Það verður því virkilega gaman að fylgj- ast með liðum Íslands í eldlínunni aftur að ári. n Við höfum beðið lengi eftir þessu. Í rauninni bara síðan 2012. Þetta hefur alltaf verið naumt en sennilega aldrei jafn naumt og núna. 34 Helgin 11. desember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.