Fréttablaðið - 11.12.2021, Page 58
Umhverfissvið Kópavogsbæjar óskar eftir arkitekt til starfa í skipulagsdeild.
Arkitekt starfar með skipulagsfulltrúa við afgreiðslu skipulagsmála.
Um er að ræða fjölbreytt starf og spennandi verkefni.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Vinna að gerð aðal- deili og hverfisskipulags
• Eftirlit með deiliskipulagsvinnu ráðgjafa og lóðarhafa
• Umsjón með úrvinnslu erinda sem berast skipulagsráði
• Gagnaöflun og undirbúningur funda skipulagsráðs ásamt kynningu erinda
• Vinnsla umsagna um skipulagsmál
• Veita íbúum ráðgjöf varðandi skipulagsmál
• Samskipti við lögaðila og stofnanir
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólapróf í arkitektúr, skipulagsfræði eða önnur menntun í samræmi við 7. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010
• Reynsla af skipulagsmálum æskileg
• Reynsla af verkefnastjórnun æskileg
• Góð þekking á teikniforritum sem nýtast í starfi
• Góð almenn tölvukunnátta
• Góð hæfni í mannlegum samskiptum
• Góð geta til að geta kynnt efni fyrir framan fólk
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Góð færni í íslensku í ræðu og riti
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi
stéttafélags.
Nánari upplýsingar veitir Auður D. Kristinsdóttir, í s. 441-0000.
Umsóknarfrestur er til 9. janúar.
Við hvetjum alla til að sækja um óháð kyni.
Sótt er um starfið á alfred.is
kopavogur.is
Arkitekt á skipulagsdeild
FORRITARI IÐNSTÝRINGA
Óskum eftir að ráða kraftmikinn og metnaðarfullan
einstakling sem hefur brennandi áhuga á
hugbúnaðargerð og sjálfvirkni. Ef þú vilt starfa á
líflegum vinnustað og vera hluti af þróun lausna sem
seldar eru um allan heim þá gæti þetta verið starfið
fyrir þig. Teymið sem þú værir að vinna í, vinnur að
gerð hugbúnaðar allt frá því að stýra einföldu tæki í að
stýra heilli matvælavinnslu þar sem sjálfvirkni er í
fyrirrúmi.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Hugbúnaðargerð, prófanir og gangsetning
ásamt eftirfylgni í verkefnum í samstarfi við
viðskiptavini.
• Aðstoð við þjónustudeild í að finna lausnir á
vandamálum.
• Boðið er uppá agile vinnuumhverfi þar sem
lögð er áhersla á þverfaglegt teymi með skýra
framtíðarsýn og vel vörðuð verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Menntun í rafmagns-,hátækniverkfræði eða
sambærilegu. Iðnmenntun kostur.
• Mikil þekking á þróun fyrir iðnstýringar og
skjákerfi.
• Þekking og reynsla af gagnagrunns hönnun og
forritun er kostur.
• Góð greiningarhæfni, rökhugsun auk hæfileika
í leit að rót vandamála.
• Sjálfstæð vinnubrögð og skipulag í starfi.
Hluti starfsins fer fram hjá viðskiptavinum fyrirtækisins
víða um heim og því þarf starfsmaður að hafa aðstöðu
og áhuga til ferðalaga um framandi slóðir.
Hugbúnaðarteymið er ungt og mikill metnaður er hjá
stjórnendum að efla hugbúnaðargerð til að mæta
auknum kröfum viðskiptavina um sjálfvirkni og betri
verkfæra til ákvarðanatöku.
Við hvetjum ykkur til að kíkja við hjá okkur á Facebook
og LinkedIn.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Jens Bjarnason
jens@skaginn3x.com
Umsókn ásamt ferilskrá skal sendast í
job@skaginn3x.com
Umsóknarfrestur er til og
með 17.desember 2021.
Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík
Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is
10 ATVINNUBLAÐIÐ 11. desember 2021 LAUGARDAGUR