Fréttablaðið - 11.12.2021, Side 78

Fréttablaðið - 11.12.2021, Side 78
Í dag endurspegla jóla- verurnar fjölmenningar- samfélagið á Íslandi sem við búum í enn frekar. Lambafrelsir var fyrstur, laumaðist fjárhúsin í. Ekkert þó vildi með féð, annað en sleppa því. 01 Lambafrelsir 02 Hænuhvísla 03 Ljúfur 04 Þarasmjatta 05 Hafraþamba 06 Berjatína 07 Tófúpressir 08 Hummusgerður 09 Vökvareykir 10 E-efnagægir 11 Raknakrefur 12 Plöntuklókur 13 Smjörlíkir Vegan jólaverurnar Vegan jólaverur dúkkuðu upp í íslensku samfélagi fyrir nokkrum árum og pluma sig vel, að sögn Samtaka grænkera. arnartomas@frettabladid.is Samhliða jólasveinunum þrettán sem eru landsmönnum kunnugastir, byrja aðrar jólaverur að tínast til byggða um helgina. Það eru hinar svokölluðu vegan jólaverur sem skutu fyrst upp kollinum árið 2018 og eru bæði vænar og grænar. Þessar nýstárlegu en þjóðlegu vættir eru tilkomnar á vegum Samtaka græn- kera, sem fengu Jóhannes Árnason til að semja vísur um verurnar í anda vísna Jóhannesar úr Kötlum um sveinana þrettán. Fyrstur til byggða er Lamba- frelsir, sem frelsar lömb frekar en að borða þau, og fylgja systkini hans tólf daglega þar á eftir. „Verurnar hafa verið að pluma sig mjög vel, og eru sérstaklega vinsælar meðal okkar grænkera og barnanna okkar sem hafa kynnst þeim,“ segir Val- gerður Árnadóttir, formaður Samtaka grænkera, sem segir að verurnar hafi verið uppfærðar aðeins í gegnum árin. „Í dag endurspegla jólaverurnar fjölmenn- ingarsamfélagið á Íslandi sem við búum í enn frekar.“ Verurnar eru þannig alls konar, en til að mynda er E-efnagægir á einhverfu- rófinu og Rakakrefur hán. Misjafn smekkur Aðspurð hvort einhver vera sé vinsælli en önnur, segir Valgerður að það fari einna helst eftir smekk barnanna. „Á mínu heimili er það Ljúfur, sem tamdi Jólaköttinn, en hann er voða krúttlegur,“ segir hún. „Svo er það Tófú- pressir sem er svo sterkur og mikill kall. Svo kemur Þarasmjatta líka sterk inn, en mörg börn í dag fá þara með í nesti í skólann í staðinn fyrir kex eða eitthvað álíka.“ Valgerður segir að jólaverurnar séu ekki í samkeppni við jólasveinana en séu frekar viðbót við jólahefðina. „Barnið mitt býr á tveimur heimilum – hjá pabba hans eru hefðbundnu jóla- sveinarnir og hjá mér eru það jólaver- urnar, og honum finnst það bara mjög skemmtilegt,“ útskýrir hún. „Jólasvein- arnir eru svo sögulega auðvitað miklu fleiri en bara þrettán.“ Þegar fyrst var tilkynnt um jólaver- urnar fóru þær öfugt ofan í suma, sem töldu að um einhvers konar áróður væri að ræða. Valgerður minnir á hvernig hefðir eiga það til að breytast í gegnum ár og aldir. „Það fussa margir yfir nýjum hefðum og vilja helst engu breyta, en það má benda á að það eru bara hundrað ár síðan Jóhannes úr Kötlum ákvað að jóla- sveinarnir væru bara þrettán og fimmtíu ár síðan fólk fór að borða hamborgar- hrygg á jólunum,“ segir hún. „Hefðir breytast með tíðarandanum og okkur finnst mikilvægast að allir geti séð sig í samfélaginu og líka á jólunum.“ ■ Jólaverurnar vænu og grænu halda til byggða Valgerður segir að það sé mikilvægt að hægt sé að velja jólahefðir sem henti hverjum og einum. Jólaverunum sé ekki ætlað að koma í stað sveinanna. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Sú fjórða Þarasmjatta, fjöruna leitar í. Söl í sækir og þara, snefilefnin fær úr því. Hænuhvísla var önnur, hafði ekki hátt. Fiðraða vini frelsaði, forðaði um næstu gátt. Plöntuklókur sá tólfti, pælir í öllum gróðri. Gjarnan sést í garðinum, eða að gægjast út úr rjóðri Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir, amma og langamma, Kristbjörg Sigurbjörnsdóttir frá Múlastekk í Skriðdal, fædd 3. apríl 1933, lést á hjúkrunarheimilinu Eir sunnudaginn 5. desember síðastliðinn. Útför hennar fer fram í Grafarvogskirkju á Lúsíudag 13. desember kl. 10 -11, í viðurvist allranánustu ættingja vegna sérstakra aðstæðna. Jarðsett verður í Gufuneskirkjugarði. Hjartans þökk fyrir einlæga samkennd og samúð. Athöfninni verður streymt frá Grafarvogskirkju á YouTube-síðu Grafarvogskirkju. Yst Ingunn St. Svavarsdóttir Sigurður Halldórsson Kristbjörg, Kristveig, Halldór Svavar Birna Kristín Svavarsdóttir Kristinn Ingólfsson Svava, Ásdís, Sigurbjörn Erla Kolbrún Svavarsdóttir Gunnar Svavarsson Guðrún Mist, Melkorka Alma Eir Svavarsdóttir Guðjón Birgisson Magnús Már, Svavar og fjölskyldur. Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Auðbrekku 1, Kópavogi Sverrir Einarsson Jóhanna Eiríksdóttir síðan 1996 Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Ástkær faðir minn, bróðir okkar, tengdafaðir og afi, Ingimundur Axelsson Ugluhólum 2, Reykjavík, lést mánudaginn 6. desember á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð. Útför fer fram 15. desember kl. 11. Vegna aðstæðna í samfélaginu verða eingöngu nánustu aðstandendur viðstaddir. Aðalheiður Erla Ingimundard. Ingi Rúnar Georgsson Steinunn Helga Axelsdóttir Lárus Konráðsson Páll Konráð Konráðsson Kristjana Ingibergsdóttir Erla Lárusdóttir Bjarni Torfi Álfþórsson Ingimundur Vilberg og Þórey Lilja 52 Tímamót 11. desember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐTÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 11. desember 2021 LAUGARDAGUR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.